Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 87

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 87
mmmmiu® Þeir hafa staðið saman í bílðu og stríðu í 17 ár: Brian Clough og Peter Taylor. Árangur þeirra með lið Notthingham Forest í vetur má flokka undir kraftaverk. aðdá- >nn í liðið. Clough sýndi fljótlega hvaða leikmenn það voru sem hann hafði á- huga á. Hann sendi John Middleton til Derby og Paul Richardson til Stoke, en keypti í þeirra stað Kenny Burns frá Birmingham fyrir 150.000 pund, Archie Germmill frá Derby fyrir 130.000 pund og Peter Shilton frá Stoke fyrir 275.000 Pund. Þóttu þessi kaup Clough nokkuð djarfmannleg, þar sem sjóðir Nott- hingham Forest eru ekki alltof digrir þegar keppnistímabilið hófst. En þess var ekki lengi að bíða að Brian Clough sýndi hæfileika sína. Strax í byrjun keppnistímabilsins var Notthingham Forest-liðið sem vel smurð vél, og vann hvem leikinn af öðrum. Leikmenn sem fram til þessa höfðu verið lítt áberandi urðu nú allt í einu að stórstjörnum, og er hinn mark- sækni Tony Woodcock, bezta dæmið um slíkt. í leikjum Notthingham sat ekki endilega baráttan og puðið í fyrir- rúmi, heldur leikskipulag og samvinna leikmanna, sem skilaði líka strax frá- bærum árangri. Spurningarnar tóku að vakna: — Stendur Brian Clough við orð sín eftir allt saman? Verður Notthing- ham Forest það lið sem mest hefur komið á óvart í ensku knattspyrnunni um árabil. Og allt í einu fóru veðmálin að verða Notthinghamliðinu í hag. Á miðju keppnistímabili hafði það náð góðri forystu í 1. deildinni og hún var ekki látin af hendi. Og ekki nóg með það. Liðið hreppti einnig enska deildarbik- arinn í fyrsta sinn í sögu þess, og átti um tíma möguleika á enska bikarnum. Hefði það verið saga til næsta bæjar ef liðið hefði hlotið „þrennu“ á þessu fyrsta keppnisári sínu í 1. deild að þessu sinni. Styrkleiki Brian Clough sem stjórn- anda er fyrst og fremst talinn vera sá, að hann nær mjög góðu sambandi við leikmenn sína. Þeir eru vinir hans, og vilja allt fyrir hann gera. Hann þykir líka ótrúlega útsjónarsamur við liðs- uppstillingu, og þótti t.d. athyglisvert hversu oft hann breytti stöðum í liðinu í Framhald á bls. 97 87

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.