Íþróttablaðið - 01.04.1994, Page 30
Kristján Arason heilsar hinum heimskunna handknattleiksmanni, Joachim Deckarm sem hlaut heilaskaða eftir fall á
steingólf íleik. Menn velta því fyrir sér hver taki við þjálfun FH-liðsins þegar Kristján fer til Þýskalands.
Hver tekur við
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ bregður sér í
flugulíki og hlerar hugsanlegar
breytinsar á þjálfurum hjá
liðunum í 1. deild í handknattleik
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Það er borðliggjandi að einhver
lið í 1. deildinni í handknattleik
skipta um þjálfara að keppnistíma-
bilinu loknu en hverjar breytingarn-
ar verða er erfitt að segja til um. A
þessum árstíma er að jafnaði mikið
hvíslað og menn heyra eitt og annað
sem gaman er að setja á blað. Til að
byrja með skulum við kíkja á það
sem menn hafa verið að tala um og
síðan líta á það sem er líklegra að
gerist í þjálfaramálum.
Þar sem KRISTJÁN ARASON,
þjálfari FH, hefur tekið að sér þjálfun
í Þýskalandi er Ijóst að feitur biti bíð-
ur nýs þjálfara Hafnarfjarðarrisans.
Menn segja að ÞORBIRNIJENSSYNI,
þjálfara Vals, hafi þegar verið boðinn
samningur en slíkt má vitanlega ekki
gera opinbert á þessum tímapunkti,
sé það rétt. Þorbjörn hefur þjálfað Val
í mörg ár með góðum árangri og hef-
ur GEIR SVEINSSON, fyrirliði lands-
liðsins, verið nefndur sem eftirmaður
hans en einnig hefur nafn BRYNJARS
KVARAN komið upp í því sambandi.
Sumir eru á því að einhver losara-
bragur gæti komið á leikmenn Vals
fari Þorbjörn frá félaginu og því geti
Valsmenn ekki til þess hugsað að
missa hann.
JÓHANN INGI GUNNARSSON
verður að öllum líkindum áfram með
Hauka enda er hann á góðri leið með
að gera Hauka að stórveldi. Það kem-
ur reyndar í Ijós eftir úrslitakeppnina
hvort Haukar eða FH verður risinn í
Hafnarfirði. Ef marka má ummæli
sumra leikmanna FH eftir innbyrðis
viðureignir liðanna í vetur hræðast
þeirfyrrum „litla bróður" ískyggilega
mikið.
Heyrst hefur að EINAR ÞOR-
VARÐARSON og SIGURÐUR
SVEINSSON fari íeinum pakkatil HK
nái félagið að vinna sér sæti í 1. deild
og yrði það mikill fengur fyrir Kópa-
vogsliðið en jafnframt gífurlegur
missir fyrir Selfoss.
Heyrst hefur að ALFREÐ GÍSLA-
SON ætli að hætta að spila og sömu-
leiðis að þjálfa og að BRYNJAR
KVARAN verði ekki áfram með ÍR og
GUNNAR EINARSSON ekki með
Stjörnuna. Þá er vístekki vilji af hálfu
forráðamanna ÍBV að endurráða
SIGURBJÖRN ÓSKARSSON sem
þjálfara og komist Grótta f 1. deild er
ólíklegt að HILMAR SIGURGÍSLA-
SON verði áfram með liðið. Nái ÍH
hinsvegaraðtryggjasérsæti íJ. deild
verður að teljast líklegt að GUÐ-
30