Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Page 75

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.03.1969, Page 75
VAXTARKJÖR GRÓÐURS VIÐ SKAFL 73 TAFLA5 Bráðnun jarðklaka í stöð 8, borin saman við jarðvegshita í 5 cm dýpi í stöð 6, dagana 11.—19. júní. Melting of ground ice at site 8 and mean temperature in soil at 5 cm depth in site 6, June 11—19. Athugunar- dagur Observation dates Bráðnun (cm) Melting Meðalhiti jarðvegs Mean temp. in soil °C 1.-2. 2,2 5,3 2.-3. 0,8 6,9 3.-4. 0,1 9,2 4.-5. 1,3 9,9 5.-6. 1,1 10,2 6.-7. 1,7 11,3 7.-8. 1,1 10,9 8.-9. 1,7 8,7 niður á klakann, og varð hann æ þynnri eftir því sem leið á vorið. Fróðlegt hefði verið að fylgjast nákvæmlega með því, hvort klakinn bráðnaði og þynntist aðeins að ofan, en þar sem þykktarmælingarnar voru ónákvæmar, er erfitt um það að dæma. Efsta borð jarðvegsins hitnar fyrst á vor- in, en hitinn færist smám saman niður í jörðina. Er það þessi hiti, sem einkum bræðir klakann að ofan. Aljrekkt er, að frost nær takmarkaðri dýpt frá yfirborði jarðar að vetri, og hugsanlegt er, að varmi að neðan geti brætt neðra borð klakans. Virðist þetta þó gerast í fremur litlum mæli. Bráðnunin er því að mestu leyti háð jarðvegshitanum, sem berst frá yfirborð- inu. Jarðvegshitinn (meðalhiti) í stöð 6 og bráðnunin í stöð 8 eru borin saman í töflu 5. Sem fyrr fór jarðvegshitinn vaxandi fram að tveimur síðustu dögunum. Hins vegar var bráðnunin lítið breytileg frá degi til dags, enda ekki viðbúið, að smávægi- legar hitasveiflur jarðvegsins, sem komu fram við mælingar í 5 cm dýpi, hefðu stór- kostleg áhrif á bráðnun í um 30 cm dýpi. Vaxtarmælingar Mismunandi vöxtur einstakra grasa af sömu tegund og stofni stafa mest megnis af breytilegum vaxtarkjörum, þar sem erfða- eiginleikar þessara grasa eru varla verulega frábrugðnir. Mælingu á lengdarvexti grasa má í vissum tilfellum nota sem mælikvarða á vaxtarkjör og Jiar með uppskeru. 1 Jressari athugun voru mæld grös, sem uxu á hugsaðri línu, er dregin var frá austri til vesturs, þvert yfir skaflinn, sam- síða þeirri, sem hitamælingarnar voru gerð- ar á. Ætlunin var að kanna, hvort vöxtur grasa yrði mismikill eftir því, hver kjör Jrau hlutu um vorið. Með eins metra milli- bili voru valdir tveir grasasprotar, Jreir mældir og merktir með hækkandi númerum frá austri til vesturs. Bezt hefði verið að velja einungis grös ákveðinnar tegundar, en erfitt var að greina tegundir svo snemma vors. Voru Jjví valdir þeir sprotar, sem Jrroskavænlegastir þóttu. Eins og frá er greint í inngangi, vildi svo til, að svæðið var tvískipt að aldri og ræktun. Var eystri hlutinn ári eldri að ræktun en svæðið vest- an við stöð 3. Mæld voru 76 grös, og skipt- ast þau þannig niður á grastegundir: Alls Fjöldi 1 vestari grasa I eystri Túnvingull .... 2 hluta 2 hluta Háliðagras 5 5 Vallarfoxgras .. . 10 10 Flálíngresi 14 12 2 Vallarsveifgras . . 43 21 22 Tvö grös drápust. Af þessu sést, að vallarsveifgrasið varð í miklum meirihluta, bæði í eystri og vest-

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.