Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Blaðsíða 7
ÁHRIF BRENNISTEINSÁBURÐAR 5
VEGATUNGA
S i úrkomu
Úrkoma
2. MYND. Brennisteinn í úrkomu og úrkoma í Vegatungu 1950-1973 mecíaltöl mónada. Tekid- samcsn eftir mælingatölum í
Vedróftunni 1360-1962, 1967, 1970 og 1974.
FIG. 2. Sulphur in rainwster end prssipitation in Vegatunga 1960-1973. Monthly averages. From Vedráttan 1960-1962.1967. 19?0, 1974.
steinn út í andrúmsloftið en við iítinn áburð-
arskammt, en sá hluti, sem plönturnar tóku
til sín beint úr andrúmsloftinu, varð mjög
lítill hluti af heildarupptöku.
Brennisteinn í úrkomu hefur verið mældur
á vegum Veðurstofu Islands á Rjúpnahæð
og í Vegatungu í Biskupstungum frá 1958.
Þær mælingar sýna að miklar sveiflur eru á
brennisteini í regni frá ári til árs, frá 3 kg/
ha af S og upp í 13 kg/ha. Á 1. og 2. mynd
má sjá, hvernig brennisteinn í úrkomu á
þessum tveimur stöðum breytist á árinu og
eru tekin meðaltöl áranna 1958—1973.
Brennisteinsmagnið á aðalsprettutímanum
maí—júlí hefur mælst 0,4—7 kg/ha. Er
það jafnframt sá árstími þegar minnst er af
brennisteini í úrkomu. Á Rjúpnahæð og í
Vegatungu var ársmeðaltal 1958—1973 6,9
kg/ha S og meðaltal maí-júlímánaða 1,5
kg/ha S.
Hér á landi hefur Jóhannes Sigvaldason
(1966, 1967) gert tilraunir með brennisteins-
áburð og hann rannsakaði brennisteinsskort
á Norðurlandi. Einnig efnagreindi hann hey-
sýni úr tilraununum. Helstu niðurstöður hans
eru þær að brennisteinsskortur hafi verið
víða á Norðurlandi. Virðist hann vera „mest
áberandi á úrkomulitlum svæðum og þar
sem loftslag er væntanlega næst því að vera
landrænt”. Telur hann að 8 kg/ha af brenni-