Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 6

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 6
6 Það er ekki laust við að blendnar tilfinningar bær- ist í brjósti mér nú þegar ég sest niður í byrjun desember til að skrifa síðasta pistil minn í Ljós- mæðrablaðið. Þessi ár sem eru liðin frá því að ég tók við formennsku í félaginu hafa verið annasöm, stormasöm og það hafa skipst á skin og skúrir, sigrar og ósigrar. Þetta starf felur í sér miklar áskoranir og ég held að jafn fjölbreytt og lærdómsríkt starf sé vandfundið. Þegar ég lít til baka er mér efst í huga allt það góða fólk sem ég hef kynnst og unnið með. Fólk sem ég hefði alla jafna ekki hitt annars, þetta eru bæði ljósmæður, aðrir formenn stéttarfélaga, stjórnmálamenn, lögfræðingar, hagfræðingar, sáttasemjarar, forstöðumenn stofnana og svo má lengi telja. Af öllu þessu fólki hef ég lært ótal margt. Ekki síst hef ég lært hvernig „kerfið“ virkar. Eitt- hvað sem virkar svo lítið mál að gera getur tekið mörg ár í „kerfinu“ og um leið og skref er tekið áfram kemur hálft skref afturábak. Gott dæmi er leyfi ljósmæðra til að gefa út lyfseðla fyrir getnað- arvörnum. Mál sem hefur verið á borði félagsins og á fleiri stöðum í um tuttugu ár hafðist loks í gegn. Þetta sýnir að aldrei má láta deigan síga og þrátt fyrir að svo virðist sem mál hafi siglt í strand má ekki hætta við, öllu þarf að fylgja fast eftir. Í þessu starfi hefur gefist tækifæri til að skipu- leggja stóra alþjóðlega ráðstefnu, standa að bókaútgáfu, gangast fyrir appútgáfu, heimasíðu- breytingar, skartgripaútgáfa ásamt öðrum félags- vörum, skipuleggja bæði 95 og 100 ára afmæli félagsins, málstofur, námskeið bæði með inn- lendum og erlendum fyrirlesurum, skipuleggja Rússlandsferð, heiðra ljósmæður, afhenda skjala- safn félagsins Kvennasögusafni til varðveislu, skipuleggja og sjá um alþjóðlega fundi, undirbúa afmælissýningu í Þjóðarbókhlöðu, undirbúa mál- sókn fyrir Félagsdómi og síðar Héraðsdómi og loks Hæstarétti. Þetta er bara brot af því sem ég hef fengið að upplifa og þetta hafa allt verið lærdómsrík og Formannspistill Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.