Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 62

Ljósmæðrablaðið - dec. 2020, Side 62
62 Ljósmæðrafélagið skilaði inn tveimur umsögnum við frumvarp félagsmálaráðherra um foreldra- og fæðingarorlof í byrjun október og desember á þessu ári. Í kjölfarið var gerð grein fyrir umsögn- unum fyrir velferðarnefnd Alþingis. Helstu áhersl- ur frumvarpsins snúa að því að lengja orlofið úr samtals 10 mánuðum í samtals 12 mánuði, þar sem hvort foreldri fær 6 mánaða sjálfstæðan rétt og þar af er einn mánuður framseljanlegur yfir til hins foreldrisins. Yfirlýst markmið frumvarpsins er að jafna hlut kynjanna á vinnumarkaði og á heim- ilum. Í fyrstu drögum að frumvarpinu stóð til að stytta tímann sem hægt er að taka út orlofið úr 24 mánuðum eftir fæðingu barns í 18 mánuði en fallið var frá því í seinni útgáfu þess eftir fjölda umsagna sem mæltu gegn því. Innihald umsagna LMFÍ Í meginatriðum beggja umsagna Ljósmæðra- félagsins kom fram að fagna bæri þeim áfanga að lengja orlofið en félagið gerði athugasemdir við að frumvarpið skorti sveigjanleika fyrir for- eldra og tæki þannig ekki tillit til mismunandi aðstæðna fólks og barnsins. Hætta er á að sú tekjurýrnun sem gjarnan fylgir fæðingarorlofi hafi það í för með sér að tekjuhærra foreldrið, sem oftar er faðir barnsins, muni ekki taka orlofið að fullu og nauðsynlegt sé að hækka þakið og auka sveigjanleika. Því lagði félagið til að framseljan- legur réttur yrði að minnsta kosti tveir mánuðir í stað eins til að mæta ólíkum þörfum fjölskyldna. Réttur til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks ætti fyrst og fremst að vera réttur barnsins til samvista við foreldra en ekki öfugt. Við ljósmæður þekkjum það vel í okkar starfi að konur hætta gjarnan að vinna í kringum 36 vikna meðgöngu vegna álags og þreytu sem er algeng- ur fylgikvilli meðgöngunnar. Við sjáum ennfremur aukningu á ýmsum meðgöngusjúkdómum sem Ljósmæðrafélagið viðrar skoðanir sínar á fæðingarorlofskerfinu Inga María Hlíðar Thorsteinson, varaformaður Ljósmæðrafélagsins

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.