Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Síða 74

Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Síða 74
74 Ása Marinósdóttir er fædd að Krossum á Árskógsströnd í Eyjafirði 9. febrúar 1932. Hún hóf nám við Ljósmæðraskóla Íslands haustið 1952 aðeins tvítug að aldri. Móðir Ásu, Guð- munda Ingibjörg Einarsdóttir, var einnig ljósmóðir og var Ása kunnug starfinu í gegnum hana. Eftir útskrift starfaði hún sem umdæmisljósmóðir á Dalvík og í Svarfaðardal um mánaðartíma, en réð sig svo til starfa á fæðingardeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri og vann þar til ársins 1958, utan árs þar sem hún starfaði í Svíþjóð. Eftir að Ása gekk í hjónaband bjuggu þau hjónin veturlangt í Reykjavík þar sem Ása starfaði á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Að þeim tíma loknum tóku þau við búi tengdaforeldra hennar í Kálfs- skinni á Árskógsströnd þar sem Ása var umdæmisljósmóðir í áratugi. Á fyrstu starfsárum Ásu fæddu konur heima, en komu þó stöku sinnum á heimili hennar og fæddu barn sitt þar. Á síð- ari hluta þessa tímabils völdu konur oft að fara að heiman og fæða frekar heima hjá Ásu í Kálfsskinni og liggja þar sængur- legu. Stundum var þessi ákvörðun tilviljun ein, en það sem hafði áhrif á ákvörðun kvennanna var að Ása fékk sjálfvirkan síma á undan öðrum og það jók öryggi að geta haft beint samband við lækni eða sjúkrahús. Þegar nýtt íbúðarhúsnæði var byggt í Kálfsskinni fékk Ása hvatningu og styrk frá fé- lagasamtökum og einstaklingum til að innrétta þar sérstakt fæðingarherbergi. Það þótti Ásu ágætur kostur þar sem henni gafst færi á að hlúa að sængurkonum og börnum þeirra án þess að þurfa að yfirgefa eigið heimili dögum saman eins og svo oft var raunin. Árið 1966 var Ása kölluð frá matarborði á aðfangadagskvöld til þess að aðstoða konu í fæðingu. Þá gekk hún út frá eiginmanni, þremur börnum, því yngsta 8 mánaða gömlu, og öðru heimilisfólki. Hún var sótt á snjó- bíl vegna ófærðar og keyrð til Dalvíkur þar sem hún tók á móti barni síðar um kvöldið. Í sömu götu að morgni annars dags jóla tók Ása á móti öðru barni. Þá var beðið eftir henni í Svarfaðardal þar sem hún dvaldi í nokkra daga hjá konu, en Ása komst ekki heim vegna ófærðar. Það var ekki fyrr en á gamlársdag að þær voru fluttar á fæðingardeild Akureyrar á snjóbílnum í stórhríð, þar sem konan fór í keisaraskurð. Þessi jól kom Ása ekki aftur heim fyrr en á nýársmorgun. Ása starfaði sem ljósmóðir í nærri hálfa öld eða þar til hún varð rúmlega sjötug. Á síðustu árum starfsævi sinnar starf- aði hún við meðgönguvernd á Dalvík ásamt því að sinna áfram sínu umdæmi. Þannig má segja að starfsferill Ásu endurspegli þær sviptingar sem urðu í barneignarþjónustu á 20. öldinni þar sem gamli og nýi tíminn renna saman. Hún var afar farsæl í starfi og skráði hjá sér upplýsingar um allar fæðingar sem hún var viðstödd og hefur haldið utan um þær. Gögnin eru merkileg heimild og hafa til dæmis verið nýtt til rannsókna af barnabarni Ásu sem einnig er ljósmóðir. Á 100 ára afmælishátíð Ljósmæðrafélags Íslands árið 2019 var Ása gerð að heiðursfélaga fyrir sín vel unnu ljósmóðurstörf. Portrett: Margrét Loftsdóttir Ása Marinósdóttir Nútíðin og fortíðin mætast
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.