Ljósmæðrablaðið - des. 2020, Blaðsíða 88
88
Þegar Ólöf Ásta Ólafsdóttir var níu ára gömul bjó hún á Sauðárkróki
ásamt fjölskyldu sinni. Ólöf Ásta átti kindur hjá sauðfjárbænd-
um í grenndinni og fékk að taka þátt í að koma nýjum lömbum í
heiminn á vorin. Einn bjartan sumardag var Ólöf Ásta á heimleið
úr heyskap þegar ljósmóðirin á sjúkrahúsinu kallaði á hana úr
dyragættinni. María ljósa, sem var fjölskylduvinur, hafði nýlokið við
að taka á móti dótturdóttur sinni og lagði hvítvoðunginn í fangið á
Ólöfu Ástu. Þessi töfrastund kveikti neista í hjarta ungu stúlkunnar
sem síðar varð einn helsti frumkvöðull Íslands í kennslu og rann-
sóknum í ljósmóðurfræði.
Ólöf Ásta fetaði í fótspor Maríu ljósu með prófi frá Ljósmæðraskóla
Íslands. Þessi kjarkmikla og forvitna kona lét ekki þar við sitja heldur
varð það hennar helsta ævistarf að skapa nýja þekkingu í ljósmóð-
urfræði og kveikja sama fróðleiksþorsta og býr í hennar eigin brjósti
í hjörtum nýrra ljósmæðra. Þegar Ólöf Ásta var ein fárra íslenskra
ljósmæðra með meistaragráðu var henni falið það mikilvæga verk-
efni að setja á fót háskólanám í ljósmóðurfræði. Ólöf Ásta var með-
vituð um mikilvægi þess að varðveita þann mikla fjársjóð sem var
fólginn í langri sögu ljósmæðramenntunar á Íslandi, en ekki síður
hversu nauðsynlegt það var að vera óhrædd við að rugga bátnum.
Undir styrkri stjórn Ólafar Ástu öðlaðist ljósmæðranám á Íslandi nýtt
eðli og inntak þar sem það besta úr sögu stéttarinnar var ofið saman
við framsýnar hugmyndir og kvenlæga hugmyndafræði. Nýju ljós-
mæðranámi var í fyrsta sinn á Íslandi stýrt af ljósmæðrum sjálfum
og kennslan mótaðist af þeirra eigin hugmyndafræði um fæðingu
sem eðlilegan, náttúrulegan viðburð. Við umönnun kvenna var
áherslan á þarfir, óskir og gildismat kvennanna sjálfra. Gamlir
draugar forræðishyggju voru særðir á brott með nýjum hugmynd-
um um samráð, sjálfræði og rétt kvenna til að eiga upplýst val.
En forvitna stúlkan frá Sauðárkróki hélt áfram að spyrja áleitinna
spurninga og Ólöf Ásta varð fyrsta ljósmóðir á Íslandi til að ljúka
doktorsgráðu í ljósmóðurfræði. Þar sem þróun þekkingar í ljós-
móðurfræði á Íslandi var rétt að byrja að slíta barnsskónum fór
Ólöf Ásta beint að kjarnanum, en doktorsverkefni hennar fjall-
aði um menningu og þekkingu ljósmæðra í starfi þeirra með
konum. Niðurstöðurnar vörpuðu ljósi á mikilvægi og hlutverk
yfirsetu í stuðningi við eðlilega fæðingu og myndun þeirra mik-
ilvægu tengsla og innsæisþekkingar sem starf ljósmóðurinnar
hvílir á. Ólöf Ásta hefur síðan verið í fararbroddi í faglegri þróun
ljósmóðurfræði hér á landi auk þess að taka þátt í alþjóðlegu
samstarfi um kennslu og rannsóknir. Þegar kom að endur-
skoðun ljósmæðranámsins var Ólöf Ásta lykilkona við gerð nýrr-
ar námskrár í ljósmóðurfræði til meistaragráðu.
Í öllum störfum sínum hefur Ólöf Ásta verið holdgervingur hug-
myndafræði ljósmæðra og lagt áherslu á innsæi, reynsluþekk-
ingu og andlega meðvitund sem flæðir frá kynslóð til kynslóðar
með fæðingarsögum þeirra. Hún hefur jafnframt haldið á lofti
leiðtogahlutverki ljósmæðra í valdeflingu kvenna í trú á eigin
getu til að fæða án aðstoðar. Með djúpu innsæi sínu í eðli mann-
eskjunnar, hnífskarpri sýn á heiminn og ódrepandi ástríðu fyrir
ljósmæðrastarfinu hefur Ólöf Ásta kveikt neista í brjóstum heill-
ar kynslóðar af íslenskum ljósmæðrum. Með hlýju og einlægri
umhyggju hefur hún setið yfir ljósmæðranemum meðan þeir
takast á við krefjandi þroskaverkefni og leyfa ljósmæðrahjörtun-
um að vaxa í brjóstum sínum. Hún hefur ýtt verðandi ljósmæðr-
um út úr þægindarammanum, hvatt þær til að gera það sem er
erfitt og kennt þeim að virða eigin styrk og innsæi. Ólöf Ásta er
ljósmóðir íslenskra ljósmæðra.
Portrett:
Sunna María Helgadóttir
Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Ljósmóðir ljósmæðranna