Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 20204
FRÉTTIR
Tilboðsmarkaður með mjólkurkvóta haldinn 2. nóvember:
Að hámarki hægt að óska eftir
50 þúsund lítrum til kaups
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið hefur tilkynnt um næsta
tilboðsmarkað fyrir greiðslumark
mjólkur og verður hann haldinn
þann 2. nóvember næstkomandi.
Reglur kveða á um að hægt sé
að óska eftir 50 þúsund lítrum til
kaups að hámarki á hverjum slíkum
markaði, eða alls 150 þúsund lítrum
árlega. „Þá má hlutdeild framleið
anda eða framleiðenda sem eru í
eigu einstakra aðila, einstaklinga,
lögaðila eða tengdra aðila ekki nema
hærra hlutfalli en 1,2% af árlegu
heildargreiðslumarki mjólkur,“ segir
í tilkynningu ráðuneytisins.
Sem fyrr eiga nýliðar forkaupsrétt
á fimm prósentum af því greiðslu
marki sem boðið er til sölu á hverj
um markaði, svo lengi sem þeir
uppfylla skilyrði reglugerðarinnar
um gilt kauptilboð og að því gefnu
að þeir bjóði verð sem er jafnt eða
hærra en jafnvægisverð.
Eitt tilboð fyrir hvert lögbýli
„Einungis er heimilt að skila inn
einu tilboði um kaup eða sölu fyrir
hvert lögbýli og af sama aðila eða
tengdum aðila. Tilboðsgjöfum er
skylt að gæta að því að einungis eitt
tilboð komi frá aðilum sem teljast
tengdir. Óheimilt er að bjóða fram
mismunandi verð í sama tilboði.
Óheimilt er aðilum að gefa upp
magn og verð sem tiltekið er í til
boðunum, sem opnuð eru á mark
aðsdegi. Sé það gert skal þeim
tilboðum vikið til hliðar,“ segir í
til kynningunni.
Á síðasta tilboðsmarkaði, þann
1. september síðastliðinn, bárust 13
gild tilboð um sölu á greiðslumarki
mjólkur, en gild tilboð um kaup voru
209. Jafnvægisverð fyrir hvern lítra
mjólkur var 249 krónur – sem er
ákvarðað hámarksverð. Þá bárust 12
gild kauptilboð frá nýliðum.
Lokað fyrir tilboð
á miðnætti 10. október
Kaupendum er skylt að inna af
hendi staðgreiðslu fyrir andvirði
greiðslumarksins fyrsta virka dag
næsta mánaðar eftir opnun tilboða.
Heimilt er að krefjast frekari upp
lýsinga og gagna ef tilefni þykir til
þess. Þá er heimilt að senda kröfu
til innheimtu fyrir kauptilboði ef
hún er ekki greidd á gjalddaga á
kostnað tilboðsgjafa. Einnig er
heimilt að leggja fram með kauptil
boði eða fyrir upphaf markaðsdags
staðgreiðslu fyrir andvirði greiðslu
marksins.
Tilboðum um kaup og sölu
greiðslumarks skal skila rafrænt
á afurd.is, en opnað verður fyrir
tilboð þann 28. september 2020.
Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti
10. október næstkomandi. /smh
Einungis er heimilt að skila inn einu tilboði um kaup eða sölu fyrir hvert
lögbýli og af sama aðila eða tengdum aðila.
PIR og steinullar yleiningar
Stuttur afgreiðslutími
YLEININGAR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Húnaþing, Dalabyggð, Strandabyggð og Reykhólahreppur:
Þungar áhyggjur af lágu afurða-
verði til sauðfjárbænda
„Í heimsfaraldri vegna COVID-
19 fengu Íslendingar áminningu
um mikilvægi innlendrar mat-
vælaframleiðslu,“ segir í bókun
frá Byggðarráði Húnaþings
vestra og sveitarstjórnum Dala-
byggðar, Strandabyggðar og
Reykhóla hrepps sem lýst hafa
yfir þungum áhyggjum af lágu
afurðaverði til sauðfjárbænda.
Þá átelja sveitarstjórnir einnig
seinagang við birtingu afurða-
stöðvaverðs nú í haust.
Sauðfjárrækt er mikilvæg bú
grein í öllum sveitarfélögunum
fjórum og ein af forsendum búsetu
í dreifbýli. Rúmlega 21% af fram
leiðslu kindakjöts í landinu árið
2019 fór fram í þessum sveitarfé
lögum.
Vilja sjá afurðaverð fyrir 2021
gefið út um áramót
„Á undanförnum árum hafa orðið
ábúendaskipti á þónokkrum bú
jörðum í sveitarfélögunum og
yngra fólk með fjölskyldur tekið
við. Þessar fjölskyldur efla samfé
lagið, styðja við þjónustu ásamt því
að halda uppi atvinnustigi. Líkt og í
öðrum rekstri er mikilvægt að sauð
fjárbændur fái viðunandi verð fyrir
sína vöru og hafi þannig forsendur til
áætlanagerðar og ákvarðanatöku“,
segir í bókuninni og er skorað á af
urðastöðvar að gefa út afurðaverð
2021 fyrir komandi áramót.
Bent er á að samkvæmt saman
tekt Landssamtaka sauðfjárbænda
var afurðaverð til íslenskra sauðfjár
bænda á síðasta ári það lægsta sem
finnst í Evrópu og miðað við nýbirtr
ar verðskrár 2020 er vegið meðal
verð 502 krónur fyrir kílóið. Hefði
afurðaverð fylgt almennri verðlags
þróun frá 2014 ætti það að vera 690
krónur. Því vantar enn tæpar 200
krónur upp á afurðastöðva verð fylgi
verðlagsþróun.
„Skapa þarf greininni stöðugleika
í rekstri til lengri tíma og styðja á
öflugan hátt við innlenda mat
vælaframleiðslu.“ /MÞÞ
Fjórar sveitarstjórnir hafa skorað á afurðastöðvar að gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót. Skapa þurfi
greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvælaframleiðslu. Mynd / MÞÞ
Mjólkursamsalan fagnar októbermánuði:
Ostóber – tími til
að njóta osta
Þriðja árið í röð heldur Mjólkur-
samsalan októbermánuð hátíð-
legan undir yfirskriftinni Ostóber
– tími til að njóta osta.
Ostóber er tími til að fagna
gæðum og fjölbreytileika í íslenskri
ostagerð og vill MS með þessu
framtaki hvetja landsmenn til að
borða sína uppáhaldsosta, smakka
nýja og prófa sig áfram með ostana í
matargerð. Hvað er betra en að hafa
það huggulegt heima í skammdeg
inu, kveikja á kertum og gæða sér
á íslensku ostagóðgæti?
Á uppskriftasíðunni gottimat
inn.is er að finna heilan hafsjó af
uppskriftum þar sem íslenskir ostar
koma við sögu og ber þar hæst að
nefna uppskriftir með Óðalsostum,
Dalaostum, rjómaostum og rifnum
ostum, en nýverið bættust í safnið
uppskriftir sem innihalda Goðdala
ostana Feyki, Gretti og Reyki sem
eru sælkeraostar úr Skagafirði. Í
tilefni af Ostóber koma nokkrir
nýir ostar á markað og verða þeir
í boði í takmörkuðu magni nú í
október. Þeirra á meðal eru Búri
með sinnepsfræjum og kúmeni
auk Tinds sem geymdur hefur
verið lengur en venjulega eða í 12
mánuði.
Bændasamtök Íslands með viðbrögð vegna COVID-19:
Óska eftir framlengingu
á afleysingaþjónustu
Í ljósi ástandsins vegna COVID-
19 faraldursins hafa Bænda-
samtökin farið þess á leit við
Tryggingasjóð sjálfstætt starf-
andi einstaklinga að samkomulag
við sjóðinn um að standa undir
kostnaði við afleysingaþjónustu
á búum þar sem COVID-19 sýk-
ing kemur upp verði framlengt
til áramóta.
Þeir bændur sem ekki geta sinnt
sínum störfum vegna sýkingarinn
ar, ættu með því kost á að sækja um
afleysingu að hámarki í 14 daga en
Búnaðarsamböndin sjá um utan
umhald. Fyrra samkomulag sama
efnis gilti frá 15. mars–31. maí sl.
Svar við beiðninni hefur ekki
borist enn, en greint verður frá því
strax og til þess kemur. /ehg
Ef bændur veikjast vegna COVID-19 er afar mikilvægt að hægt sé að bregðast
skjótt við til hjálpar við að sinna skepnum. Mynd / HKr.