Bændablaðið - 08.10.2020, Page 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 7
LÍF&STARF
Friðbjörn Björnsson, bóndi í Staðartungu í Hörgárdal, f. 1873, d. 1945, var einn albesti hagyrðingur
síns tíma. Hvergi hef ég komist yfir neitt
heildstætt af vísum hans, en sem betur fer
er þó að finna vísur hans í tímaritum og
bókum. Það sem lifir þáttar verða birtar
vísur eftir Friðbjörn í Staðartungu.
Eitt sinn fór trúboði um sveitina, Halldór
að nafni. Hugðist hann umvenda bónda
nokkrum er Þórður hét. Þá orti Friðbjörn:
Hugsa ég það Halldóri
harðsótt verði glíma.
Að gera Þórð að guðsbarni
getur kostað tíma.
Friðbjörn var á ferðalagi og mætti manni
sem rausaði mjög og óbærilega:
Mikið þvældi þornagrér,
þvaðri ældi framúr sér,
kjaftinn skældi, kjálkaber,
klárinn fældi undir mér.
Þessa mergjuðu mannlýsingu formaði
Friðbjörn í vísu:
Krepptar að mér krumlur skók
kauði einskis nýtur.
Húfa, treyja, buxur brók,
beinagrind og skítur.
Nágranni Friðbjörns var sæmdur riddara-
krossi og var sá harla drjúgur yfir. Friðbjörn
kvað:
Karli til um krossinn fannst,
frá kónginum var hann fenginn.
En fyrir hvað sú vegsemd vannst,
það vissi nú bara enginn.
Sveitungi Friðbjörns fór með sláturfé sitt
til Akureyrar. Hann kom síðan heim með
öll slátrin úr fénu en sagðist hafa selt alla
hausana. Þá Friðbjörn heyrði af viðskipt-
unum orti hann:
Sigmundur í Seli er
síst af öllu vitur;
hraklegasta heim með sér
höfuðið ‘ann flytur.
Sami Sigmundur þurfti einhvern tímann
að heiman. Var honum bent á að hafa fata-
skipti, en hann vildi fara í gegningagall-
anum, sem víst var farið að falla verulega
á. Friðbjörn hlustaði á samtalið og lagði
eftirfarandi til málanna:
Sýnist mér að Sigmundi
sæmi galli skrítinn.
Hann er meir en helmingi
hlýrri fyrir skítinn.
Friðbjörn samdi við bónda einn um kaup
á kú fyrir ákveðið verð. Annar bóndi kom
hins vegar og bauð sjötíu krónum hærra,
og fékk kúna. Þetta gramdist Friðbirni svo
að hann orti:
Orðheldnin er ýmsum hjá
ekki í háu verði núna.
Kristján seldi sína á
sjötíu krónur- upp í kúna.
Eftir kosningu fulltrúa á Sambandsþing
orti Friðbjörn:
Vina minna vitfirring
varla spáir góðu,
að kjósa og senda á Sambandsþing
sjálfsálit í skjóðu.
Og eftir einhverjar aðrar kosningar orti
Friðbjörn:
Illa kaustu, Manni minn,
mér þótti það skitið
hvernig blessuð brjóstgæðin
bældu niður vitið.
Friðbirni mun hafa þótt gott að fá sér í
staupið:
Verum kátir öls við ál,
eyðum gráti og trega.
Nú má láta sál við sál
svigna mátulega.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
259MÆLT AF
MUNNI FRAM
Hlaðvarpið Havarí – samtal um lífræna rækt-
un og framleiðslu, er komið úr sumarfríi og
fór fimmti þáttur í loftið á Hlöðunni í byrjun
vikunnar.
Þátturinn að þessu sinni er helgaður ,,dönsku
leiðinni“ svokölluðu, en það er sú leið sem Danir
hafa farið í viðleitni sinni til að auka og efla
lífræna framleiðslu og er sú leið leidd af sam-
tökunum Lífræn Danmörk. Berglind Häsler
er umsjónarmaður hlaðvarps Havarí og talar
hún við Önnu Maríu Björnsdóttur. Anna María
bjó í Danmörku í tíu ár og er mikil áhuga-
kona um lífræna
framleiðslu. Frá
því í vetur hefur
Anna María
unnið að heim-
ildamynd um líf-
ræna framleiðslu
á Íslandi og nú í
sumar þvælst um
landið og spjallað
við framleiðendur.
Hægt er að
hlusta á hlaðvarp-
ið á öllum helstu
streymisveitum ver-
aldarvefsins en auk
þess má finna grein á vefsíðu Bændablaðsins,
bbl.is, með uppskrift að þættinum.
Ástand grunnvatns leiddi
til heildrænnar stefnu
Danir eiga heimsmetið í markaðshlutdeild á
lífrænum vörum, sem er þó aðeins 12%. Anna
María hefur kynnt sér ,,dönsku leiðina“ og sam-
tökin Lífræn Danmörk sem leiða það verkefni.
,,Það sem ég veit um það er að Danir voru
fyrstir í heiminum til að setja sér reglur um
lífræna framleiðslu, svo settu þeir sér stefnu í
kringum 1990 um að efla lífrænan landbúnað og
lífræna framleiðslu. Þær upplýsingar sem ég hef
fengið frá ýmsum er að þetta hafi sprottið upp
úr neyð vegna þess að grunnvatnið var orðið
svo mengað og það kemur mikið til úr nítrati úr
tilbúnum áburði sem lekur niður í grunnvatnið
– ástandið var orðið þannig að það voru ekki
lengur til ómenguð vatnsból í Danmörku og þá
þurftu þeir að setjast yfir þetta og leita lausna.“
Úr varð heildræn stefna sem teygði sig
yfir alla stjórnsýsluna og langt út fyrir hana.
Jafnframt var hrint af stað markaðsátaki. ,,Því
þeir vissu að ef þeir ætluðu að efla lífrænan
landbúnað þá þyrfti að vera markaður fyrir
hann. Þannig að upplýsingamiðlun til neytenda
var efld.“
Vill auka áhuga á lífrænni
framleiðslu á Íslandi
Áhugi Önnu Maríu á lífrænni framleiðslu jókst
enn meira eftir að hún flutti aftur heim. Hún
fann að hana langaði til að hafa áhrif og hjálpa
til við að ýta undir áhuga hér á landi. Það var
þá sem hún ákvað að vinna heimildamynd um
efnið. Með því vildi hún jafnframt kanna hver
staða lífrænnar framleiðslu sé á Íslandi og hvert
við stefnum.
,,Hér eru aðeins í kringum 30 lífrænir
framleiðendur af 3.000 að mér skilst. Það er
auðvitað mjög lítið og þar af eru margir af
þeim bændum sem hafa unnið að þessu í 30
ár og sumir þeirra eru farnir að íhuga að hætta,
komnir á þann aldur, og þá hugsar maður auð-
vitað, hver tekur við? Þessir bændur búa líka
yfir mikilli vitneskju um íslenskar aðstæður
og að eigin sögn hafa þeir svolítið synt á móti
straumnum, í áratugi, og verið oft einir í sinni
sveit – lífrænir. Mér finnst það mjög aðdáunar-
vert og að sjá að á þessum 30 árum sem hér
hefur verið stunduð lífræn ræktun þá erum við
enn bara með 1%. Þetta hefur ekki aukist eins
og í löndunum sem við berum okkur saman
við þar sem lífræn framleiðsla fer vaxandi
– sérstaklega á síðustu fimm árum. En við
stöndum í stað og þá velti ég því fyrir mér að
ef Ísland fylgir með þessari þróun, þ.e.a.s ef
neytendur fara að kalla eftir lífrænum vörum
í auknum mæli – þurfum við þá að snúa okkur
að enn meiri innflutningi?“ Það sé því til mikils
að vinna með því að efla lífræna framleiðslu
á Íslandi.
Við vinnslu á heimildamynd sinni komu
umhverfismálin Önnu Maríu mest á óvart og
hvað það er til mikið af vitneskju þarna úti um
ágæti lífrænnar framleiðslu en hún hefur ekki
skilað sér til neytenda, til almennings.
,,Það kannski vantar stundum þessa miðlun-
arleið. Ég held að það eigi alveg við um allan
heiminn en það hefur verið erfitt, hef ég komst
að með mínum samtölum, að það virðist vera
svolítið erfitt að fá fólk á þennan vagn og fá
fólk til að hlusta,“ segir Anna María.
Evrópusambandið hefur sett sér markmið
um að hlutfall lífræns vottaðs lands verði 25%
árið 2030 og Danir stefna enn hærra, 30%, og
sama gildir um markaðshlutdeild á lífrænum
vörum. Á Íslandi er hlutfallið 1% og hefur lengi
staðið í stað en ekki hafa verið sett nein mark-
mið um að hækka hlutfallið.
Hægt er að lesa sér til um dönsku leiðina
á vefsíðunni organicdenmark.com. Þess má
geta að nú hefur átaksverkefni verið hrundið
af stað hér á landi undir heitinu Lífrænt Ísland.
Verkefnið er stutt af atvinnu- og nýsköpun-
arráðuneytinu auk Bændasamtaka Íslands og
það er VOR sem leiðir verkefnið.
Hlaðvarp Havarí – samtal um lífræna
ræktun og framleiðslu, eru unnir í samstarfi
við VOR, félag lífrænna framleiðenda og
Bændablaðið.
Anna María Björnsdóttir er viðmælandi Berglindar í Havarí hlaðvarpi. Þær ræða um lífræna ræktun í Danmörku og heimildamynd sem Anna
vinnur nú að um lífræna framleiðslu á Íslandi.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS
Havarí hlaðvarp – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu:
Lífræn framleiðsla í hæstu hæðum í Danmörku
– Anna María vinnur að heimildamynd um lífræna framleiðslu á Íslandi
Kú í selfie-myndatöku á Neðra-Hálsi.
Hvítkálsuppskera á lífrænu býli í Danmörku.
Ólafur Dýrmundsson í viðtali fyrir heimilda-
mynd Önnu Maríu.