Bændablaðið - 08.10.2020, Side 14

Bændablaðið - 08.10.2020, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202014 HLUNNINDI&VEIÐI FRÉTTIR Kolbeinn Lárus Sigurðsson tekur við viðurkenningunni frá ráðherra.  Mynd/umhverfis-ogauðlindaráðuneytið Matarbúðin Nándin fékk Bláskelina: Sjálfbært matvælakerfi og niðurbrjótanlegar umbúðir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra veitti Matarbúðinni Nándinni Bláskelina á dögunum, sem er viðurkenning fyrir framúrskar- andi plastlausa lausn og prýði- legt fordæmi. Fær Nándin viður- kenninguna fyrir það markmið að skapa sjálfbært matvælakerfi, þar sem sett er upp hringrás fyrir glerumbúðir ásamt því að selja matvöru í niðurbrjótanlegum og moltuhæfum umbúðum. Um fjölskyldufyrirtæki er að ræða sem stendur að rekstri verslunarinnar en hún er staðsett við Austurgötu í Hafnarfirði og í Kolaportinu í Reykjavík. „Fjölskyldan leggur áherslu á að hvetja viðskiptavini og samstarfsaðila til að vinna með sér að plastlausum heimi og um leið að vekja fólk til umhugsunar um áhrif umbúða á náttúruna og framtíðina,“ segir í tilkynningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Ómetanlegt að fá opinbera hvatningu Það var Kolbeinn Lárus Sigurðs- son hjá Matarbúðinni sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fjölskyldunnar. „Í því vandasama verkefni að setja upp plastlausa matarbúð, finna og flytja inn um- búðir, þróa ferla og pakka nánast öllum vörum, er það ómetanleg hvatning að fá opinbera viður- kenningu sem þessa,“ sagði Kolbeinn Lárus af þessu tilefni. Í úrslitahóp dómnefnd- ar komust þrír aðilar auk Matarbúðarinnar Nándarinnar; Bioplastic Skin, Krónan og Plastplan. Bioplastic Skin er verkefni sem snýr að hönnun umhverfisvænna umbúða úr dýrahúðum sem nota má til að pakka kjötvörum, Krónan hefur unnið markvisst að því að draga úr magni plasts sem fellur til í verslunum og auka endurvinnslu og Plastplan sérhæfir sig í plast- endurvinnslu, hönnun og fræðslu. Bláskelin var veitt í fyrsta skipti í fyrra og er viðurkenn- ingunni ætlað að draga fram það sem vel er gert varðandi plast- lausar lausnir og veita nýsköpun aukinn slagkraft. /smh Fyrstu fræjunum sáð í Kópavogi í landssöfnun birkifræja Fyrsta sáningin sem tengist landssöfnun birkifræja fór fram föstudaginn 25. september í landi Kópavogs í Lækjarbotnum. Nemendur í 3. og 4. bekk í Wal- dorfs kólanum tóku sáninguna að sér ásamt Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, og full- trúum aðstandenda verkefnisins. Landssöfnun birkifræja var hleypt af stokkunum 16. septem- ber en það er Landgræðslan og Skógræktin sem eru aðstandend- ur verkefnisins, Kópavogsbær er einn samstarfsaðila þess, en fræjum sem safnast á höfuðborgarsvæðinu verður sáð í örfoka land í Selfjalli í Lækjarbotnum. Söfnunarkassar fyrir birkifræ eru aðgengilegir víða á starfsstöðvum Skógræktarinnar, Landgræðslunnar, Terru og í versl- unum Bónuss, þá eru söfnunar- tunnur komnar í verslanir Bónuss. Upplýsingar um verkefnið og hvernig á að safna fræjunum eru á heimasíðu verkefnisins, birkiskog- ur.is. /MHH Á myndinni eru nemendur í 3. og 4. bekk í Waldorfskólanum Lækjarbotnum. Nöfn þeirra frá vinstri: Stella, Kría, Edda, Nóah, Benedikt, Úlfur, Birkir og Óskar. Þá eru á myndinni Hafdís Hrund Gísladóttir, kennari í Waldorfskólan- um, Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Bergljót Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs og Hrefna Einarsdóttir frá Skógræktarfélagi Kópavogi. Mynd/Kópavogsbær Elsti Íslendingurinn lagði birkifræs- verkefninu lið með fræsöfnun Dóra Ólafsdóttir, elsti Íslend- ingurinn, sem er 108 ára gömul, fædd 6. júlí 1912, brá sér nýlega bæjarferð úr Reykjavík, þar sem hún býr, í Hveragerði til að safna birkifræi og leggja þar með landsátaki um söfnun fræja lið. Dóra hefur alltaf verið mikil landgræðslu og skógræktarkona og vill að útbreiðsla birkiskóga verði aukin en talið er að þeir hafi þakið a.m.k. fjórðung landsins við land- nám. Birkifræinu sem safnast verð- ur dreift á völdum svæðum í öllum landshlutum. Allar nánari upplýs- ingar um hvernig best er að tína fræ, varðveita og dreifa er að finna á vefnum birkiskogur.is. /MHH Dóra Ólafsdóttir, sem er 108 ára og elst allra Íslendinga, ásamt syni sínum, Áskeli Þórissyni (sem heldur á fræ- söfnunarboxinu) og Kristni H. Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Kópavogs, og barnabarni hans, Andreu Lind, sem er átta ára gömul, þegar þau hittust í Hveragerði og söfnuðu birkifræi. Mynd/MHH Finnska leiðin í tillögum um betri merkingar matvæla: Allt ferskt kjöt verði með sýni- legum upprunamerkingum Í síðasta Bændablaði var fjall- að um tillögur samráðshóps um betri merkingar matvæla, sem var skilað til ráðherra á dögunum. Tillögurnar eru tólf, en ein þeirra er kölluð „Finnska leiðin“ og geng- ur út á að skylda staði sem selja óforpökkuð matvæli til að upplýsa viðskiptavini sína með sýnilegum upplýsingum um uppruna þess ferska kjöts og kjöthakks sem þeir hafa í boði. Þær þurfi þó ekki að vera á matseðli heldur geti verið á töflu eða í bæklingi. Í dag er einungis skylt að veita slíkar upplýsingar munnlega. Reglugerðin, sem tók gildi í Finnlandi þann 1. maí 2019, hefur tveggja ára gildistíma og skulu Finnar skila inn umsögn um áhrif og virkni hennar til framkvæmdastjórn- ar ESB að honum loknum. Bæta skilyrði og stöðu neytenda Að sögn Oddnýjar Önnu Björns- dóttur, formanns samráðshópsins, fjallaði hópurinn ítarlega um þessa tillögu. „Markmiðið með henni er að bæta skilyrði og stöðu neytenda til að taka meðvitaða og upplýsta ákvörðun tengda uppruna þess ferska kjöts sem er á boðstólum á veitingastöðum, mötuneytum og öðrum stöðum sem selja óforpökkuð matvæli og tekur til þess kjöts sem skylt er að upprunamerkja þegar því er forpakkað. Eins og fram kemur í skýrslunni voru skiptar skoðanir meðal þeirra veitingamanna sem hópurinn ræddi við. Rekstraraðilar lítilla veitingastaða sáu mestu hindranirnar sem tengdust fyrst og fremst mögulegum viðbótarkostnaði tengdum auknu eftirliti sem og auk- inni vinnu, þar sem uppruni kjöts í sama réttinn getur verið breytilegur milli sendinga og matseðlar sumra breytast reglulega.“ Tillagan beinir því til ráðherra að taka til skoðunar hvort taka eigi upp slíkar reglur hér á landi verði reynsla Finna góð. En óháð því vildi hópur- inn að rekstraraðilar yrðu hvattir til að eiga frumkvæði að því að upplýsa neytendur um uppruna þess kjöts sem þeir hafa á boðstólum,“ segir Oddný enn fremur. /smh Samkvæmt „Finnsku leiðinni“ er skylda að upplýsa neytendur um uppruna ópakkaðs kjöts.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.