Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 23
Írsk yfirvöld og formaður við-
skiptanefndar Evrópuþingsins hafa
bæst í vaxandi hóp gagnrýnenda
á MERCOSUR-sam komu laginu
sem náðist milli ESB og Argentínu,
Brasilíu, Paragvæ og Úrúgvæ á síð-
asta ári. Áður höfðu ráðherrar í
Frakklandi og Þýskalandi lýst and-
stöðu vegna skorts á sjálfbærni í
Suður-Ameríku.
Samningurinn þýðir meðal annars
að Mercosur-ríkjunum verður heim-
ilt að flytja 99.000 tonn af nautakjöti
til ESB árlega með 7,5 prósenta tolli.
Írland efins um samninginn
Aðstoðarforsætisráðherra Írlands,
Leo Varadkar, sagði í viðtali við
írska Independent á þriðjudag að
bæta yrði við samninginn við ríki
Suður-Ameríku ef Írland ætti að
fullgilda samninginn. Setja yrði
ábyrgðir gegn umhverfisspjöllum
og skógareyðingu inn í samninginn.
Varadkar telur að það væri rangt
að gera sífellt strangari framleiðslu-
kröfur til írskra bænda og sætta sig
um leið við að regnskógurinn í
Amasón verði fyrir verulegu tjóni.
Andstaða frá öðrum
ríkisstjórnum
Fyrr í haust lýsti franska ríkis-
stjórnin yfir andstöðu við samn-
inginn. Ástæðan var birting á nýju
áhrifamati.
Landbúnaðarráðherra Þýska-
lands, Julia Klöckner, lýsti því yfir
á fundi með kollegum sínum í hinum
ESB-ríkjunum í september að hún
væri mjög efins um samninginn við
Mercosur eins og hann er í dag.
Einnig andstaða í Evrópuþinginu
Yfirmaður viðskiptanefndar
Evrópuþingsins, Bernd Lange, lýsti
því yfir fyrr í vikunni að samningur-
inn væri langt frá því að vera tilbúinn
til staðfestingar og annaðhvort yrði
að breyta honum eða setja í frystinn.
Að mati Lange er of margt ábóta-
vant í samningnum. Til viðbótar
við skógareyðingu og umhverfis-
spjöll nefndi Lange veikar reglur
sem gilda í Mercosur-löndunum til
verndunar starfsmanna í landbúnaði.
Þá væru lítil takmörk fyrir notkun
skordýraeiturs, auk þess sem illa
væri farið með frumbyggja í Suður-
Ameríkuríkjum.
Ferlið endalausa
Það er búið að taka 20 ár að
hnoða MERCOSUR-við skipta-
samningnum saman. Búið er að
gera talsverðar endurbætur í ferlinu
og þýða samninginn á öll tungumál
ESB. Næsta skref er að fá full-
gildingu allra ESB-ríkjanna og
Evrópuþingsins á samningnum.
Eins og staðan er nú virðist úti-
lokað að óbreyttur samningur verði
fullgildur. Áhyggjur af ein stökum
þáttum samningsins innan ESB
geta leitt til krafna um að samn-
ingaferlið verði hafið upp á nýtt.
Það hefur í för með sér bindandi
ákvæði um sjálfbæra framleiðslu.
Þá munu líða enn fleiri ár í þrot-
lausu samningaþófi lögfræðinga frá
báðum samningahópunum þar til
viðskiptasamningur getur mögulega
orðið að veruleika.
/Landbruk.no//HKr.
Í Ostóber er tími til að njóta osta. Gæddu þér á þínum
uppáhaldsostum, smakkaðu nýja og prófaðu spennandi
uppskriftir á gottimatinn.is, þar sem íslenskir ostar
koma við sögu.
Íslenskir
ostadagar
í október
UTAN ÚR HEIMI
MERCOSUR-viðskiptasamningur ESB og
Suður-Ameríkuríkja að sigla í strand
– Mikil andstaða meðal lykilríkja inna ESB vegna umhverfis- og velferðarmála virðist útiloka fullgildingu samningsins
Eftir mörg ár með stórum hóp-
uppsögnum hjá Danish Crown
leita þeir nú eftir hundruðum
nýrra starfsmanna vegna auk-
innar eftirspurnar, sérstaklega
á svínakjöti, til Asíu. Nú ræður
fyrirtækið inn 160 nýja starfs-
menn í sláturhúsinu í Ringsted,
150 í sláturhúsinu í Horsens og 45 í
Blans ásamt nokkrum á skrifstofu
fyrirtækisins.
Það er ekki langt síðan fyrirtæk-
ið stóð í hópuppsögnum og því eru
ráðningarnar nú gleðiefni. Í fyrra var
175 manns sagt upp störfum í slátur-
húsinu í Horsens og árið 2018 misstu
140 manns vinnu hjá fyrirtækinu.
„Þetta eru fjölmennustu ráðn-
ingarnar hjá okkur síðan við opn-
uðum sláturhúsið í Horsens fyrir 15
árum. Við höfum not fyrir starfsfólk
við slátrun, úrbeiningar og að pakka
okkar vörum. Við reiknum með að
allir nýju starfsmennirnir fái kennslu
og ekki er gerð krafa um sérstaka
reynslu svo ef fólk hefur ástríðu fyrir
handverki og gæðum þá er góður
möguleiki á að það komi sér í vinnu
hjá okkur,“ segir Per Laursen, fram-
leiðslustjóri í Danish Crown Pork.
ehg/ politiken.dk
Danmörk:
Danish Crown að
fjölga starfsfólki