Bændablaðið - 08.10.2020, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 29
gæðum náttúrunnar til lands og
sjávar. Sumrin voru nýtt út í ystu
æsar til þess að afla matar fyrir
veturinn. Stíft var róið til fiskjar
á sumrin áður en sláttur hófst og
síðan tók heyskapurinn við og
loks sláturtíðin.“
Þröngt máttu sáttir sitja
Mundína og Finnur voru sam-
heldin við barnauppeldið og
heimilishaldið. Um margt voru
þau þó ólík. Finnur var áber-
andi maður í byggðarlaginu og
sagði skoðun sína umbúðalaust á
mönnum og málefnum. Mundína
var að sögn Óskars jafnlynd kona
sem skipti aldrei skapi og gekk
að verkum sínum með bros á vör.
„Hún sagði stundum að hún
skipti sér ekki af því sem henni
kæmi ekki við. Að fæða tuttugu
börn er sérstakur kapítuli. Tuttugu
fæðingar á tuttugu og átta árum,“
segir hann og bætir við að í barna-
hópnum voru engir tvíburar.
„Þrátt fyrir mikil þrengsli
kvörtuðu krakkarnir ekki. Eldri
börnunum var gert ljóst að for-
eldrarnir kæmust ekki hjálpar-
laust yfir að annast öll verk sem
þyrfti að vinna á heimilinu og því
yrðu þau að koma í ríkum mæli
að uppeldi yngri systkina sinna.
Það þótti eldri börnunum sjálfsagt
og eðlilegt og því skapaðist mikil
samheldni milli systkinanna sem
hefur haldist alla tíð.“
Ummælin eru
afkomendum ráðgáta
Mundína var að sögn almennt
heilsuhraust og fæddi öll börn sín
án teljandi vandkvæða. Sýndi hún
börnum sínum og barnabörnum
alla tíð mikla ástúð og umhyggju.
Ein frægasta setning íslenskrar
sjónvarpssögu er að sögn Óskars
afkomendum hennar nokkur ráð-
gáta. Tuttugu barna móðirin sagði
í viðtali við Sigrúnu , fréttakonu
á Ríkissjónvarpinu, árið 1980
að hún hafi eiginlega ekki haft
gaman af börnum! Og bætti svo
við: – „Þetta er sjálfskaparvíti
manns sjálfs að eiga svona mörg
börn.“
Útgáfuhóf Á Ytri-Á í Tjarnarborg í Ólafsfirði. Sex af átta börnum Mundínu
og Finns sem eru á lífi veittu fyrstu eintökunum viðtöku. Frá vinstri: Jón
Albert, Aðalgeir Gísli, Fjóla Bára, Sólrún Guðrún, Héðinn Kristinn og Óskar
Þráinn Finnsbörn.
Horft til suðurs yfir Kleifar við vestanverðan Ólafsfjörð. Ytri-Á lengst til
vinstri á myndinni, sem var tekin sumarið 1969.
Við höfum vandað vöruúrvalið fyrir fjós með aukna skilvirkni, betri vinnuaðstöðu
og vellíðan gripa að leiðarljósi.
Hjá okkur færðu vandaðar fjósainnréttingar, steinbita, kúabursta, mjúkar mottur og fleira
sem eykur vellíðan gripa í fjósum.
Við bjóðum einnig upp á loftræstikerfi frá Big Dutchman og annan tæknibúnað eins og
mjaltaþjón, fóðurgjafakerfi, flórsköfubúnað og fleira frá GEA sem léttir þér verkin og eykur
afköst.
Hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 540 1100 eða sendu
póst með fyrirspurn á netfangið
lifland@lifland.is.
Velferð og
vinnuhagræðing
Sala og ráðgjöf www.lifland.is Reykjavík Akureyri Borgarnes Blönduós Hvolsvöllur
Sími 540 1100 lifland@lifland.is Lyngháls Óseyri Borgarbraut Efstubraut Ormsvöllur
Næsta
Bændablað
kemur út
22. október
Smáauglýsinga-
síminn er:
563 0300
Eldri blöð má
finna hér á PDF:
.......... þegar við metum
kostina, gæðin og verðið.
Er svarið:
Youtube kynning á:
https://youtu.be/cPx7PPYvNUM
Kraftmikill, léttur og lipur.
Með 4kg Lithium rafhlöðu er
Microlift lítið þyngri, en handtjakkur
50% afsláttur á auka lithium rafhlöðu.