Bændablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202042
Saga viðskipta með múskat er
blóðið drifin. Ásókn í kryddið
og hagnaðurinn sem því fylgdi
leiddi til þjóðarmorðs á Banda-
eyjum árið 1621. Hollendingar
útrýmdu innfæddum til að ná
yfir ráðum yfir ræktun og versl-
un með múskat. Seinna gerðu
Holl endingar landaskipti við
Breta. Hollendingar fengu eyj-
una Run í Banda-eyjaklasanum en
Bretar Manhattan-eyju eða Nýju
Amsterdam í staðinn.
Áætluð heimsframleiðsla á
þurrkuðu múskati árið 2019 er 52
þúsund tonn. Indónesía framleiðir
um 50% af öllu múskati í heimi. Þar
á eftir eru Indland, Súmatra, Java
og Srí Lanka.
Holland er það land sem flytur
inn mest af múskati allra Evrópu
þjóða og Hollendingar flytja einnig
út mest af kryddinu til annarra
ríkja í Evrópu. Mest af múskatinu
sem Hollendingar versla með
kemur upprunalega frá Indónesíu.
Sameinuðu arabísku furstadæm
in eru stærsti útflytjandi múskats
til annarra Arabaríkja en þar sem
Furstadæmin rækta ekki múskat er
það flutt inn frá Indlandi og síðan
flutt út aftur.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru árið 2019
flutt inn 116 kíló af heilum múskat
hnetum, 949 kíló af pressuðu eða
muldu múskati og 1.049 kíló af
pressuðu eða muldu múskathýði. Af
heilum múskathnetum kemur mest
frá Spáni, eða 56 kíló, af pressuðu
eða muldu múskati kemur mest frá
Hollandi, 620 kíló, og allt pressað
eða mulið múskathýðið kemur frá
Kína.
Auk þess sem talsvert er flutt
inn af múskati sem hluta af krydd
blöndum og í tilbúnum réttum og
drykkjum.
Ættkvíslin Myristica
og tegundin fragrans
Innan ættkvíslarinnar Myristica
teljast yfir 150 tegundir sem finnast
villtar í Asíu og við vestanvert
Kyrrahaf. Tegundirnar eru ólíkar
að stærð og mynda aldin og hnetur
sem eru misjöfn að hæð og lögun
en allar eiga þær það sameiginlegt
að blöðin eru ilmsterk.
Sú tegund sem mest er ræktuð
kallast M. fragrans og er 5 til 30
metra hátt og sígrænt tré sem er
haldið í lægri kantinum í ræktun.
Blöðin dökkgræn á um eins sentí
metra löngum stilk, stakstæð, 5 til
15 sentímetra að lengd og 2 til 7 á
breidd. Öll blóm á hverju tré eru
einkynja þrátt fyrir að einstaka
tré beri blóm af báðum kynjum.
Blómin bjöllulaga, fölgul og vax
kennd viðkomu. Karlblómin standa
ein sér eða allt upp í 10 saman í
hnapp og eru 5 til 7 millimetrar
að lengd. Kvenblómin eitt til þrjú
saman og um 10 millimetrar að
lengd. Kvenplöntur eða tré mynda
slétt og gult perulaga eða hnöttótt
aldin sem er 6 til 9 sentímetra langt
og þrír til fimm sentímetrar í þver
mál. Inni í aldininu er hneta sem er
hulin mjúku hýði sem rifnar eftir
aldininu endilöngu og hylur það
að hluta eftir að það stækkar og
þroskast.
Hnetan er það sem kallast múskat
en hjúpurinn sem umliggur hana
kallast múskathýði. Þrátt fyrir að
hvort tveggja komi af sama aldininu
er munur á því kryddi sem fæst úr
muldri múskathnetu og af muldu
múskathýði. Bragðið af múskathýð
isdufti er sterkara og rammara en
hnetuduftsins og rauðara á litinn.
Múskathýðiskrydd er eingöngu
fáanlegt sem duft.
Við góðar aðstæður tekur sjö
til níu ár frá því að fræ spíra þar
til múskattré gefa aldin en mest er
uppskeran eftir tuttugu ár og að
öllu jöfnu gefur hvert tré af sér til
60 ára aldurs. Þar sem eingöngu
kvenplöntur mynda aldin er trjánum
talsvert fjölgað með ágræðslu.
Tvær tegundir M. malabarica og
M. argentea eru mikið notaðar til að
drýgja og þynna út alvöru múskat
duft úr M. fragrans.
Þjóðarmorð á Kryddeyjunum
Talið er að Rómverjar og Grikkir
hafi þekkt til einhvers konar múskats
í gegnum verslun við Araba og
hugsanlega Silkileiðinni. Ekki fer
mörgum sögum af nytjum þess
meðal þeirra nema að þeir notuðu
það sem krydd en aðallega munu
þeir hafa brennt það sem reykelsi.
Rómverjinn Plyni eldri, upp 23 til
79, sagði um múskat að plantan bæri
hnetur með tvenns konar bragði og
er þá væntanlega að vísa til hnetu
duftsins og duftsins sem unnið er úr
hnetuhýðinu.
Elstu þekktar minjar um notkun
á múskati til manneldis er að finna
í 3.500 ára gömlum leirbrotum sem
fundust á eyjunni Pulau Ai sem er
hluti af Bandaeyjaklasanum austan
við Indónesíu. Bandaeyjar, sem eru
ellefu, voru eina uppspretta þess
múskats sem barst til Evrópu fram
á miðja nítjándu öld.
Persneski læknirinn og fjöl
fræðingurinn Ibn Sina, uppi 980 til
1037, var fyrsti Vesturlandabúinn
sem vitað er um að hafi minnst á
Bandaeyjar og Bandahnetur,
eða jansi ban eins og hann kallaði
múskathnetur, í riti.
Á þrettándu öld höfðu arabískir
sjófarendur og verslunarmenn upp
götvað uppruna múskats í Indónesíu
en héldu honum leyndum fyrir
Evrópumönnum og þannig verði
þess háu.
Mikil eftirspurn og hátt verð á
kryddi varð til þess að heilu flotar
evrópskra skipa lögðu í háskaför
um öll heimsins höf í leit að gulli,
gimsteinum og kryddi eftir að
Kólumbus fann Ameríku. Leiðangur
Kólumbusar var upphaflega ætlað
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Múskat og þjóðarmorð
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Kryddið sem unnið er úr múskathnetum og múskathnetuhýðinu var svo eftirsótt að 15 þúsund íbúum á Banda-eyjum var útrýmt árið 1621 til að ná yfirráðum yfir múskatræktuninni og verslun
með múskat.
Múskathnetur og duft. Aldinið er gult og hnöttótt og inni í
því er hneta sem er hulin mjúku hýði.
Blöðin dökkgræn á um eins sentí-
metra löngum stilk, stakstæð, 5 til
15 sentímetra að lengd og 2 til 7 á
breidd.