Bændablaðið - 08.10.2020, Page 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202046
Fyrirsögn á grein í Morgun blaðinu
17. ágúst og orð í fleiri fjölmiðlum, í
þá veru að rýrnun Grænlandsjökuls
sé óafturkræf, benda til misskilnings.
Túlka mætti ýmis þau orð undanfar-
ið í þá veru að jökullinn sé á hraðleið
til algjörrar eyðingar, jafnvel þótt
tækist að snúa við hlýnun jarðar
af mannavöldum. Vissulega getur
jökullinn horfið en þá yrði meðalhiti
jarðar að hafa hækkað um mörg stig
í afar langan tíma.
Elsti ís jökulsins, sem náðst hefur
með borunum, er milli 200 og 300
þúsund ára. Svo hár aldur sannar að
jökullinn hefur legið á Grænlandi
bæði á jökulskeiði og hlýskeiði
ísaldarinnar. Á svo löngu tímabili
hefur hressilega kólnað og hlýnað
á víxl, en þá af náttúrunnar völdum.
Í greininni sem vitnað er til (eftir
Ian Howat og fleiri við Ríkisháskóla
Ohio) skrifa vísindamennirnir þetta
í lok útdráttar síns:
„Við sýnum fram á að víðáttu-
mikil hörfun skriðjökla á árunum
2000 til 2005 olli snöggri við-
bótareyðingu og umskiptum til nýrr-
ar, hvikular stöðu hvað massatap
varðar sem héldi áfram jafnvel þótt
yfirborðsbráðun minnkaði.“
Með þessu er átt við að ísmassi
Grænlandsjökuls getur rýrnað áfram
þrátt fyrir viðbót vegna aukinnar
ákomu/minni bráðnunar í kólnandi
veðurfari, fari svo að núverandi
þróun snúist við. Það eru alvarlegar
rannsóknarniðurstöður, m.a. vegna
hækkunar sjávarborðs. Haldi rýrn-
un jökulsins áfram með svipuðum
hraða og nú, má gera ráð fyrir 50-100
cm hækkun sjávarborðs frá rýrnandi
jöklum víða um heim á öldinni.
Allur Grænlandsjökull myndi skila
6-7 metrum! Hvergi er þó fullyrt í
grein vísindamannanna að heildar
massatapið héldi áfram þar til jök-
ullinn hyrfi. Grænlandsjökull er
seigur, sýnir jarðsagan, gæti leitað
jafnvægis á ný og jafnvel stækkað
aftur. Vonandi gerist það sem fyrst.
Vandinn vegna hraðari lofts-
lagsbreytinga en mæligögn hund-
ruð þúsunda ára afhjúpa er mikill.
Hann vex hratt á meðan ríki heims
hika, það skortir á stamstöðu
þeirra og mótvægisaðgerðir eru of
linar, einkum ríkjanna sem mest
áhrif hafa á loftslagsbreytingarn-
ar. Matvælaframleiðslu jarðarbúa
á landi er hollast að meðalhitinn
breytist sem minnst og sem hæg-
ast, svo ekki sé minnst á þörfina
fyrir miklar viðgerðir á sködduðum
jarðvegi, endurheimt vistkerfa og
uppgræðslu auðna. Auk þess varða
súrefnisframleiðsla gróðurs, og
kolefnisbinding, okkur afar miklu
– eins og allir vita.
Ari Trausti Guðmundsson
Höfundur er jarðvísindamaður
og þingmaður VG
LESENDABÁS
Hverfur Grænlandsjökull?
Uppbygging um allt land
Síðastliðinn vetur var viðburða-
ríkur svo ekki verði meira sagt.
Óveður geisuðu, þau verstu í
manna minnum sem ollu gríðar-
legu eignatjóni, sérstaklega í
raforku- og fjarskiptakerfinu.
Ríkisstjórnin brást skjótt við
og lýsti yfir að fjárhagslegt tjón
yrði bætt. Síðan kom heimsfar-
aldurinn og enn er verið að bæta
í fjárfestingar með opinberri fjár-
festingu til að verja og skapa störf.
Fjölbreyttar fjárfestingar sjást í
samgöngum, byggingum, nýsköp-
un og til styrkingar á innviðum
tengdum fárviðrinu.
Fjárfest er nú meira en nokkru
sinni fyrr í samgöngum- og fjar-
skiptum og eru áætluð tæpir 58,3
ma.kr. á næsta ári og aukast um 10,5
ma.kr. frá gildandi fjárlögum eða um
22% að raunvirði. Sú aukning er að
mestu leyti tilkomin vegna aukinna
framlaga í gegnum fjárfestingar- og
uppbyggingarátakið 2021–2023. Til
að fá raunhæfan samanburð þarf að
bera saman fjárlög heilla ára en hætt
er við miklum skekkjum ef verið er
að bera saman ársfjórðungsuppgjör
mismunandi fjárlagaára.
Allt komið í gang
Vegaframkvæmdir eru ekki hilluvara
úti í búð. Þær eru misumfangsmiklar
og þarf ýmis undirbúningur búinn að
eiga sér stað áður en grafan mætir
á staðinn. Með fjárfestingarátakinu
var hægt að flýta mörgum mikil-
vægum framkvæmdum sem voru
fullhönnuð. Dæmi um slík verkefni
sem voru klár, er breikkun og að-
skilnaður aksturstefna Bæjarháls –
Vesturlandsvegur á Suðurlandsvegi
og breikkun og aðskilnaður
Langitangi – Hafravatnsvegur í
Mosfellsbæ. Önnur stór fjárfestinga-
verkefni til viðbótar við aðrar fjár-
veitingar á samgönguáætlun er að
milljarður var settur til viðbótar í
tengivegi og annað eins í viðhald á
vegum vítt og breitt um landið. Þessar
framkvæmdir eru allar komnar í
gang. Hafnarframkvæmdir og nýjar
tvöfaldar brýr í stað einbreiðra;
Köldukvíslargil á Norðausturvegi,
Gilsá á Völlum, Botnsá í Tálknafirði,
Bjarnadalsá í Önundarfirði,
Núpsvötn, Skjálfandafljót og Stóra-
Laxá á Skeiða og Hrunamannavegi.
Hringtorg á Flúðum, við
Landvegamót og á Eyrabakkavegi.
Fyrir utan þær brýr sem voru á sam-
gönguáætlun.
Stærri vegaframkvæmdir sem
krefjast lengri undirbúnings og voru
settar af stað í fjárfestingaátakinu
voru Reykja nesbraut, Hvassahraun-
Krísuvíku raf legg jari, Suðurlands-
vegur og Fossvellir-Norðlingavað.
Undir bún ingur er fjármagnaður á
þessu ári og á næsta ári verða þær
sýnilegar þegar grafan kemur. Þá er
ótalin ný flugstöð á Akureyri sem er
í hönnun og flughlað ásamt, akbraut
og flughlaði á Egilsstöðum. Allar
boðaðar fjárfestingar í samgöngu- og
fjarskiptamálum sem lagðar voru
fram í samgönguáætlun og sam-
þykktar síðastliðið vor hafa farið af
stað eða eru í undirbúningi, vinnslu
og mörgum þeirra er lokið.
Fjarskiptaöryggi í óveðrum
Af fjarskiptaverkefnum er það að
frétta að verið er að leggja lokahönd
á að styrkja fjarskiptastöðvar víða
um land með auknu varaafli og fær-
anlegum varaaflstöðvum er fjölgað.
Óveðrið sem gekk yfir landið af-
hjúpaði marga veikleika í rafmagns-
og fjarskiptakerfum landsins og
boðaði ríkisstjórnin fjárfestingaátak
sem er að klárast. Tilgangurinn er að
tryggja fjarskiptaöryggi í óveðrum.
Við ætlum að tryggja sem best að
ef slíkt fárviðri geisar aftur sé til
staðar varaafl og nægt rafmagn.
Skipting framkvæmdar fer eftir
stöðu varaaflastöðva sem kom í ljós
að flestar sem viðgerðar þurftu við
eru á Norðurlandi. Þar er búið að
gera heilmiklar úrbætur sem og í
öðrum landshlutum og verða verklok
núna í október. Það er svo sannar-
lega verið að standa við stóru orðin.
Framundan eru einhverjar mestu
umbætur í samgöngum sem sést
hafa. Um leið og við vinnum gegn
samdrætti í hagkerfinu þá stórbætum
við vegakerfið okkar og aukum um-
ferðaröryggi sem hefur verið og er
mitt hjartans mál.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ari Trausti Guðmundsson.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Bændur/ábúendur lögbýla
Nú eða aldrei!
Framleiðnisjóður landbúnaðarins kallar eftir umsóknum um styrki
til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á lögbýlum (B-flokkur)
Í meira en hálfa öld hefur Framleiðnisjóður landbúnaðarins stutt ötullega við nýsköpun og þróun í
íslenskum landbúnaði. Sjóðurinn hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum og hefur starf sjóðsins jafnframt
markast af þeirri sýn að landbúnaður hafi mikilvægu hlutverki að gegna í byggðalegu samhengi.
Matvælaframleiðsla er vissulega meginmarkmið greinarinnar, en slík framleiðsla á sér ekki stað í
einangrun frá öðrum atvinnugreinum dreifbýlisins. Tækifæri framtíðarinnar liggja m.a. í nýjum leiðum
til hlunninda- og landnýtingar, landverndar, sem og í mótun þjónustu af ýmsum toga.
Stjórnvöld hafa nú ákveðið að Framleiðnisjóður verði lagður niður í lok ársins 2020. Stjórnendur
Framleiðnisjóðs hafa ákveðið að síðasta úthlutun sjóðsins beinist fyrst og fremst að grasrótarstarfi
bænda og þeirra viðleitni til eflingar atvinnu í sveitum. Hér er því kallað eftir umsóknum um styrki til
verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar á lögbýlum.
Forgangs njóta þau verkefni sem fela í sér verulega nýbreytni, sem líkleg eru til að leiða af sér um-
talsverða atvinnusköpun og þar sem stuðningur sjóðsins hefur afgerandi þýðingu. Umsækjendur eru
jafnframt beðnir að kynna sér sérstaklega frekari upplýsingar um takmarkanir er gilda um verkefni á
ákveðnum sviðum, styrkhæfan kostnað, framkvæmdatíma verkefna, o.fl. á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu sjóðsins,
www.fl.is, undir flipanum EYÐUBLÖÐ, B-form, umsókn og greinargerð.
Mikilvægt er að vanda til gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum sem farið er fram á í
umsóknarforminu. Sjóðurinn leggur ríka áherslu á að vanda skuli til gerðar allra fylgigagna umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2020.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið fl@fl.is og með hefðbundnum pósti til
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins í síma 430-4300 eða um netfangið
sigridur@fl.is.
Úr Scoresby-sundi, stærsta firði heims. Mynd / Ari Trausti Guðmundsson