Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Fyrir skömmu birtist yfirlit um
reynd naut í notkun hér á síðum
blaðsins. Nú hefur verið keyrt
nýtt kynbótamat fyrir afurðir
og frumutölu síðan þetta yfirlit
birtist. Hins vegar urðu það litl-
ar breytingar á nautunum að lítil
ástæða er til endurtaka það sem
áður hefur verið sagt um þau.
Rétt er þó að taka fram að Loki
12071 lækkaði um eitt stig og
stendur nú í 107 í heildareinkunn.
Þá hækkuðu Hæll 14008, Hnykkur
14029, Stáli 14050 og Bjarki 15011
allir um eitt stig. Svampur 15027 og
Ábóti 15029 styrktu sína stöðu með
hækkun um tvö stig.
Fagráð í nautgriparækt ákvað að
setja eitt nýtt naut í notkun sem reynt
naut og er þar um að ræða Flóða
15047 frá Hnjúki í Vatnsdal. Flóði
er sonur Bamba 08049 móðurfaðir
var heimanaut undan Fonti 98027.
Afurðageta Flóðadætra er í meðal-
lagi en kostirnir felast einkum í góðri
júgurgerð, sterku júgurbandi og vel
bornum júgrum, og frábærum mjölt-
um. Hafa þarf í huga að Flóði gefur
mjög netta spena. Flóði er með 108 í
heildareinkunn. Frekari upplýsingar
um Flóða er að finna á nautaskra.
net og þá mun ný nautaskrá koma
út innan tíðar.
Meginástæða þess að ekki var
hægt að taka afstöðu til fleiri nauta úr
2015-árgangnum er sú að enn skortir
á upplýsingar úr mjaltaathugunum.
Því miður er staðan sú að skil á þeim
hafa versnað frá því sem áður og er
nú svo komið að þetta er þrengsti
flöskuhálsinn er að afkvæmadómi
nautanna kemur. Það er því full
ástæða til að hvetja menn til að skila
mjaltaathugnum hið fyrsta.
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í nautgripa-
rækt
mundi@rml.is
Flóði, nýja nautið í Nautastöðinni á Hesti í Borgarfirði. Flóði er sonur Bamba 08049, móðurfaðir var heimanaut undan
Fonti 98027. Afurðageta Flóðadætra er í meðallagi en kostirnir felast einkum í góðri júgurgerð, sterku júgurbandi
og vel bornum júgrum, og frábærum mjöltum. Hafa þarf í huga að Flóði gefur mjög netta spena. Flóði er með 108
í heildareinkunn. Mynd / SE
Nautastöð BÍ á Hesti í Borgarfirði:
Nýtt naut í notkun
Bæklingur um fóðrun og aðbúnað ungkálfa á mjólkurskeiði
Bænda
22. október
Um nokkra hríð hefur umræða
um að móta beri stefnu í landbún-
aði aukist hér á landi. Bændur
greinir þó á í þessum efnum eins
og öðrum. Við höfum til dæmis
horft upp á kúvendingar meðal
bænda um hvert skuli stefna með
stjórn á framleiðslumagni mjólk-
ur. Á örfáum árum fór stefnan úr
því að leggja niður kvótakerfi í
það að festa kerfið í sessi. Stærri
hluti þeirra fjármuna sem hið
opinbera setur í stuðning við
mjólkurframleiðslu er nú fest við
kvótann.
Síðustu tíu ár hafa sex ráðherrar
setið í landbúnaðarráðuneytinu. Allir
hafa þeir haft góðan hug til land-
búnaðar og ýmsum framfaramálum
verið þokað áfram. Á þessum tíma
hafa þó einnig verið gerðir misgóðir
tollasamningar. Ásetningarhlutfall í
sauðfjárbúskap hefur einnig aukist
og bændur verið hvattir til að fjölga
fé til útflutnings. Blaðinu var svo
snúið við þegar sú tilraun sigldi í
strand. Tilraun var gerð með búvöru-
samninga til lengri tíma en var svo
breytt talsvert til að mæta nýjum
aðstæðum og viðhorfsbreytingu
bænda. Af þessu súpa bændur nú
seyðið. Treglega gengur að ná upp
afurðaverði á lambakjöti og lítil
hreyfing er á greiðslumarki í mjólk
sem þó er augljóslega þörf á ef
slíkt kerfi á að ganga upp til lengri
tíma. Svona hringl, hvort sem það
er vegna sviptinga meðal bænda eða
stjórnmálamanna , er landbúnaðin-
um ekki til framdráttar.
Stefnufestu er þörf
Nú á að móta landbúnaðarstefnu á
næstu mánuðum. Sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra hefur skipað
verkefnastjórn sem á að móta stefn-
una með víðtæku samráði. Það er
ágætt vegna þess að eigi slík stefna
að standast tímans tönn og gera gagn
þarf hún að þola gagnrýni frá frá
öllum köntum og að kjarninn sé skil-
inn frá hisminu. Forvinna hefur átt
sér stað í formi „sviðsmyndagrein-
inga“. Þar held ég að mikilvægt sé
að þeir sem stefnuna móta myndi
sér sjálfstæða skoðun á forsendum
þeirrar greiningar en taki ekki við
sviðsmyndunum sem steintöflum af
Sínaífjalli.
Til að stefnan sé fest í sessi
má líta til hvernig hefur gengið á
öðrum vígstöðvum að móta sátt um
meginmarkmið. Fyrir rúmu ári var
samþykkt þingsályktun um heil-
brigðisstefnu á Alþingi með engu
mótatkvæði. Þeirri stefnu fylgir
aðgerðaráætlun sem uppfærð er
reglulega. Þannig er skýrt fyrir alla
þá sem vinna innan kerfisins hvert
stefnt er og fjármunum forgagns-
raðað til að ná markmiðum.
Þessi nálgun er nokkuð sem ég
tel að geti verið gagnlegt að horfa
til. Talsvert gagn væri af því að
landbúnaðarstefna væri lögð fyrir
Alþingi til að dýpka umræðuna um
landbúnaðarmál þar – en á því er
ekki vanþörf. Ég hef trú á því að
umræða á grundvelli staðreynda og
þekkingar myndi skapa sátt um þá
stefnu sem mótuð er og lyfta henni
uppúr þeim skotgröfum sem við
þekkjum mætavel. Það er komið gott
af því að stefnumótun í landbúnaði
sé eins og lauf í vindi og feykist fram
og aftur í hvert skipti sem að nýr ráð-
herra kemur í ráðuneytið. Sé stefnan
ekki staðfest í formi þingsályktunar
er hætta á því að hún sé eins og söln-
að haustlauf næst þegar lyklaskipti
verða í ráðuneytinu.
Ný sýn byggð á þekkingu
Þó það skipti máli hvernig stefnan er
gerð og hvað er gert við hana þá er
það auðvitað innihaldið sem skiptir
meginmáli. Þekkingarsköpun á sviði
landbúnaðar hefur verið gríðarleg
síðustu tíu ár. Árið 2010 hefði engum
dottið til hugar að hina nýtilkomnu
erfðamarkarækt væri hægt að nýta í
hinum smáa íslenska kúastofni. Eða
að raunhæft gæti verið að framleiða
áburð í heimahúsum, flytja út wasabi
og svona mætti lengi telja. Nú hefur
verið sýnt fram á að erfðamarkarækt
sé vel framkvæmanleg hér á landi.
Hún er örugg og það er jafn ljóst
eins og grasið grænkar á vorin að
hún skilar árangri. Það eina sem þarf
er að byrja og það fyrr en seinna.
Vegna þess hraða sem hefur verið í
tækniþróun er mikilvægt að fólkið
sem mótar þessa vinnu sé ekki of
fast í hugmyndum liðinnar aldar.
Tuttugasta öldin var öld áburðar,
útflutningsbóta, framleiðslustyrkja
og olíu. Ný öld hefur fært okkur
ótal tækninýjungar og mikla þekk-
ingu. Viðfangsefni nýrrar landbún-
aðarstefnu ætti að vera hvernig við
getum aftengt íslenskan landbúnað
erlendum aðföngum eins og kostur
er. Með því er hægt að auka fæðuör-
yggi og og gera okkur klár í að takast
á við stærsta verkefni okkar tíma,
loftslagsbreytingar. Við höfum verið
kyrfilega minnt á að það er ekki
hræðsluáróður að landið geti lok-
ast. Samhliða þessu þarf að breikka
grundvöll búsetu í sveitum þar sem
tækniframfarir munu áfram leiða til
aukinnar hagræðingar og því þurfa
nýjir sprotar að fá að skjóta rótum.
Kári Gautason
Ekki meira hringl með landbúnaðarstefnu
Kári Gautason.
Kallað hefur verið eftir auknu
fræðsluefni um nautakjötsfram-
leiðslu og lagði RML, í samstarfi
við Framleiðnisjóð, af stað í gerð
fræðslubæklings um nautakjöts-
framleiðslu.
Fóður- og nautgriparæktarhóp-
ur RML hóf vinnslu bæklings-
ins en þegar vinnan var hafin þá
hefði fræðsluefnið orðið mjög
yfirborðskennt ef allt ferli nauta-
kjötsframleiðslu væri undir í einum
stuttum bæklingi. Það varð úr að
mismunandi skeiðum framleiðsl-
unnar var skipt upp og stefnan er
að gera röð bæklinga með mis-
munandi tímabil framleiðslunnar
í huga.
Nú er fyrsta afurðin í þessari röð
komin út en fjallar sá bæklingur um
ungkálfa á mjólkurskeiði, en þessi
bæklingur á jafnt við nautakjöts-
framleiðslu og mjólkurframleiðslu.
Lifandi og heilbrigðir kálfar eru
lykilatriði í nautakjötsframleiðslu
og eins og sagt er:
„Lengi býr að fyrstu gerð!“ Hér
er um að ræða einstaklega við-
kvæmt tímabil og mistök á þessu
tímabili geta litað líf kálfsins í
lélegra heilsufari og minni vexti.
Farið er í gegnum fyrstu tíma
kálfsins, mikilvægi broddmjólkur,
mjólkur-, kjarnfóður- og gróffóður-
gjöf og aðbúnað en ef þessi atriði
eru í lagi skilar það bóndanum
betri gripum og auknum hagnaði.
Bæklingurinn er aðgengilegur á
vefsíðu RML, rml.is.
LESENDABÁS