Bændablaðið - 05.11.2020, Page 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 19
Ertu með áætlun
til að bregðast við óvissu?
Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fullkomið
öryggi í rekstri með öflugum varaafllausnum frá EATON.
Tryggðu þér hnökralausa orku og hugarró í vetur.
Skoðaðu vöruúrvalið á okbeint.is eða
hafðu samband í síma 570 1000.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
komin í botn og mikil skuldsetning
hefur dregið úr getu til að styðja
við almenning og fyrirtæki með
sértækum aðgerðum.
Viðfangsefni stjórnvalda snýst
um grunnspurninguna; „Hvað á og
er hægt að veita miklu fjármagni í
að viðhalda núverandi ástandi/fyr-
irkomulagi“. Þetta er í raun samtal
um atvinnustefnu.
Starfsfólk
Gríðarlegt atvinnuleysi og
flótti ungs fólks úr landi. Mikill
spekileki úr greininni. Eigendur
og stjórnendur fyrirtækja ganga
sjálfir í flest störf.
Samkeppnisstaða
Innanlandsmarkaður fer að skipta
meira máli. Öðru hvoru glæðast
vonir um betri tíð sem lifir þó
skammt. Ímyndaruppbygging
Íslands hefur ekki gengið eftir.
Neikvæð áhrif á greinina verða
meiri miðað við samkeppnislönd
eftir því sem ástandið varir lengur.
Batinn er mjög hægur sem hefur
kallað á mikla uppstokkun ferða-
þjónustunnar og fyrir vikið hefur
tekið langan tíma að endurreisa
atvinnugreinina. Umtalsverður
og viðvarandi fjármagnsskortur,“
segir í lýsingu á sviðsmyndinni.
Lítil viðspyrna
Sviðsmyndin Lítil viðspyrna gerir
ráð fyrir ástandi þar sem ferðaþjón-
ustan var ekki tilbúin þegar mark-
aðir tóku við sér, þar sem bæði
vantaði mannauð (lykilstarsmenn)
og innviði. „Dýrar samgöngur, lé-
leg þjónusta, innviðir ónógir, sterk
króna, há skuldsetning ferðaþjón-
ustunnar, hátt launastig og verðlag
einkennir starfsumhverfið. Mikill
kostnaður við endurræsingu.
Rekstrarumhverfið
Framleiðni greinarinnar er mjög
lág og verðmætasköpun lítil.
Skortur á samstarfi innan greinar-
innar. Almennt óundirbúin og van-
máttug gagnvart tækifærum. Félög
almennt skuldsett og eiga erfitt
með að laða til sín öfluga einstak-
linga og fjármagn. Virðiskeðja
ferðaþjónustunnar (flug, rútur,
hótel, afþreying) er víða um land
löskuð.
Samkeppnisstaðan
Afþreyingarkostum hefur fækkað
þar sem mörg félög tengd afþr-
eyingu hafa hætt starfsemi. Lítil
nýsköpun og vöruþróun í grein-
inni ásamt minnkandi markaðs-
starf. Lítil áhersla á gæðamál.
Vörumerkið Ísland veikt og verið
lítið sinnt.
Aðkoma opinberra aðila
Ekki er verið að fylgja eftir mót-
aðri sýn og stefnu fyrir greinina
enda áhugi lítill á ferðaþjónust-
unni. Vantar fjármagn í greinina
(áhættufé og þolinmótt fjármagn).
Áherslur landsmanna eru á aðrar
atvinnugreinar.
Starfsfólk
Þekking að leita úr greininni. Aðrar
atvinnugreinar taka til sín vinnuafl
ásamt því að margir kjósa að starfa
erlendis. Atvinnuleysi hefur aukist
þar sem félög hafa ekki getað greitt
samkeppnishæf laun. Eigendur hafa
þurft að vera allt í öllu. Lítil sérhæf-
ing og einhæf hefðbundin þjónustu-
störf á hótelum, veitingastöðum og
við grunnafþreyingu.
Umhverfismál
Umhverfismál og sjálfbærni eru
vaxandi áhersluþættir á mörkuðum
en minna hérlendis. Náttúruperlur
í hættu vegna veikra innviða.
Þolmörk lítið í umræðunni,“ segir
í lýsingu á sviðsmyndinni.
Mikilvægt að ná sterkri
viðspyrnu sem fyrst
Í samantekt um alla mögulega þró-
unarferla ferðaþjónustunnar kemur
fram að til mikils sé að vinna til að
ná sterkri viðspyrnu sem fyrst og
geta þannig mætt jákvæðri þróun
varðandi almennan bata þegar sú
þróun kemur.
Með öflugum og markvissum
aðgerðum í atvinnugreininni og
stuðningi hins opinbera og annara
hagaðila sé hægt að komast hjá
verulegum samfélagslegum kostn-
aði.
„Þróun einstakra fyrirtækja getur
verið ólík, staða einstakra fyrirtækja
og aðgerðir hafa áhrif á hver þróun
þeirra verður. Kraftur og útsjónar-
semi einstakra fyrirtækja sem og
greinarinnar í heild ásamt öflugum
stuðning frá opinberum aðilum og
öðrum hagaðilum, fjárfestum og
fjármögnunaraðilum skipta máli
við að mæta nýjum veruleika.
Samfélagslegt tap getur verið
mikið ef samkeppnishæfni ferða-
þjónustunnar og Íslands minnkar.
Tapið felst í samdrætti í tekjum og
ýmsum kostnaði s.s. atvinnuleysi.
Því betur sem ferðaþjónustan er
búin undir að mæta aukinni eftir-
spurn því fyrr næst að auka þjóðar-
tekjur að nýju,“ segir í skýrslunni
um þróunarferlana og samfélags-
lega hagsmuni sem eru í húfi. /smh
Þróun Móðuharðindanna 2.0 er W-laga.
Þróunin á ferli Lítillar viðspyrnu er Trog-laga.