Bændablaðið - 05.11.2020, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. nóvember 2020 49
Vesti eru svo falleg á stáka á öllum
aldri við hvaða tilefni sem er. Þetta
fallega vesti er prjónað með
áferðarmynstri úr dásamlega
garninu Cotton Merino frá
Drops.
DROPS Design: Mynstur nr cm-011-bn
Stærðir: 2 (3/4) 5/6 (7/8) 9/10 (11/12) ára
Stærð í cm: 92 (98/104) 110/116 (122/128)
134/140 (146/152)
Garn: DROPS COTTON MERINO fæst í
Handverkskúnst
- Ísblár nr 09: 150 (150) 200 (200) 250 (250) g
Prjónar: Hringprjónn (40-60 cm) nr 3 og 3,5 –
eða þá stærð sem þarf til að 24L x 36 umf með
áferðamynstri eftir mynstri A.1 verði 10 x 10 cm
á prjóna nr 3,5.
Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umf sl og 1
umf br*, endurtakið frá *-*.
Garðaprjón (prjónað fram og til baka): Prjónið
slétt allar umferðir.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1.
Úrtaka (á við um handveg): Fækkið lykkjum
innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri
hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í
garðaprjóni þannig: Takið 1L óprjónaða eins
og prjóna eigi hana sl, 1L sl, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í
garðaprjóni þannig: Byrjið 2L á undan 3
kantlykkjum og prjónið 2L slétt saman.
VESTI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna
upp að handveg. Síðan er fram- og bakstykki
prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna.
FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 128 (140 148
(156) 168 (176) lykkjur á hringprjóna nr 3 með.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að
ofan. Skiptið yfir á hringprjónar 3,5 og prjónið
1 umf slétt Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju
í umf og 1 prjónamerki í 65. (71.). 75. (79.)
85. (89.) lykkju í umf (= í hliðum – nú eru 63
(69) 73 (77) 83 (87) lykkjur á milli lykkja með
prjónamerki í). Prjónið síðan mynstur í hring
eftir mynsturteikningu A.1 (prjónamerki er
staðsett í einni br lykkju í mynstri). Þegar stykkið
mælist 20 (22) 25 (28) 31 (34) cm prjónið 4 umf
garðaprjón yfir miðju 13 lykkjurnar í hvorri hlið
(þ.e.a.s. yfir lykkju með prjónamerki í + 6L hvoru
megin við hana – aðrar lykkjur eru prjónaðar
eins og áður). Í fyrstu umf á eftir garðaprjóni
eru felldar af miðju 7L í hvorri hlið fyrir handveg
og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka hvort
fyrir sig.
BAKSTYKKI: = 57 (63) 67 (71) 77 (81) lykkjur.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með
3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf
= ranga). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umf fram
og til baka er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið
í næstu umf frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA (= 2L
færri). Fellið af í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri
hverri umf frá réttu) alls 4 sinnum í hvorri hlið
= 49 (55) 59 (63) 69 (73) lykkjur. Haldið áfram
með mynstur með 3 kantlykkjum í garðaprjóni
í hvorri hlið þar til stykkið mælist 31 (34) 38
(42) 46 (50) cm. Fellið nú af miðju 25 (27) 29
(31) 33 (37) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl
er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1L í næstu
umf frá hálsi = 11 (13) 14 (15) 17 (17) lykkjur
eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 2 umf eru
eftir þar til stykkið mælist 33 (36) 40 (44) 48
(52) cm (stillið af að næsta umf sé prjónuð frá
réttu). Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf
slétt frá röngu og fellið síðan af með sl frá réttu.
Endurtakið á hinni öxlinni.
FRAMSTYKKI: = 57 (63) 67 (71) 77 (81) lykkjur.
Prjónið eins og bakstykki og fellið af fyrir hand-
vegi í hvorri hlið eins og á bakstykki = 49 (55)
59 (63) 69 (73) lykkjur. Þegar stykkið mælist
28 (31) 34 (38) 41 (45) cm setjið miðju 15 (17)
17 (17) 17 (19) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og
hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú
af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi
þannig: Fellið af 2L, 2 (2) 2 (2) 3 (3) sinnum og
1L, 2 (2) 3 (4) 3 (4) sinnum = 11 (13) 14 (15)
17 (17) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram
þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 33 (36)
40 (44) 48 (52) cm – stillið af eftir bakstykki. Prjónið
1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu og fellið
síðan af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.
FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu, ca 66 (70) 78 (82)
88 (94) lykkjur í hringum háls (meðtaldar l af þræði
að framan) á stuttan hringprjón nr 3. Prjónið 1 umf
br, 1 umf sl og 1 umf br. Fellið síðan laust af með sl.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Strákavesti
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
1 4 7
8 1 2 3
2 3 5 6 8
7 4 1 3
6 9 8 4
3 9 1 5
4 2 7 8 5
2 8 6 9
9 5 6
Þyngst
8 3
5 1 7 4
2
4 8 6 3
9 4 1
2 8 7 4
4
7 1 9 4
5 6
3 7 4
8 6
9 2 1
3 7 9 5
3 1
5 6 3 9
9 8 6
7 8
1 7 8
9 7 8
4 8 2 5
3 2
5 9 1
1 4
6 3 8
7 9
9 5 7 3
6 4 1
Verður gaman á
snjóbretti í vetur
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Óskar Ingimar Ómarsson er 12
ára Hnífsdælingur. Hann á tvö
systkini, Hinrik Elí, 8 ára og
Ester Elísabetu, 3 ára. Óskar æfir
fótbolta og körfubolta af fullum
krafti. Uppáhaldsbækurnar hans
eru Harry Potter-bækurnar.
Nafn: Óskar Ingimar Ómarsson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Hnífsdal.
Skóli: Grunnskólinn á Ísafirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Ekkert sérstakt.
Uppáhaldshljómsveit: Queen,
söngvari Michael jackson.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter.
Fyrsta minning þín? Skreið til
mömmu þegar hún sótti mig á
leikskólann.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og
körfubolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Mig langar að
verða atvinnumaður í fótbolta eða
körfubolta.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Renna mér niður
risabrekku á snjóbretti.
Hvað verður skemmtilegt að gera í
vetur? Það verður gaman um jólin og
að komast á snjóbretti í vetur.
Næst » Óskar Ingimar skorar á
Sigrúnu Ólafsdóttur, frænku sína,
að svara næst.