Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Síða 80
1957
— 78 —
mánaðar. Gekk þar til í byrjun des-
ember. Ekki var hægt að kalla veikina
svæsna, eins og' hún hagaði sér hér.
Óvíða lágu allir samtímis á heimili,
og víða tók hún alls ekki nema hluta
af heimilisfólkinu. Af fylgikvillum bar
mest á lungnakvefi, sem virtist vera
einn þáttur veikinnar og tók því nær
alla á 3. —-4. degi. Kvef þetta reyndist
í mörgum tilfellum þrálátt.
Siglufj. í september fór að bera dá-
litið á faraldri, sem líktist mest in-
flúenzu. Faraldur þessi breiddist ört
út, bæði í október og nóvember, en
dvínaði og dó svo út í desember. Ekki
var faraldur þessi mannskæður og
lítið bar á lungnabólgu eða öðrum
fylgikvillum.
Ölafsfj. Sóttin gaus upp i nóvember-
byrjun og var ekki útdauð fyrr en úr
miðjum desember. Alls voru skráðir
249 sjúldingar. Virtist veikin liaga sér
nokkuð með öðrum hætti en venjuleg
inflúenza, einkum að því leyti, að
undirbúningstími var lengri, allt að
viku eða jafnvel vel það. Einnig bar
á því, að sjúklingar, einkum Iiörn,
veiktust aftur og aftur, eftir að þeir
liöfðu verið hitalausir í 2—3 daga og
án þess að nokkru væri um að kenna.
Lítið bar á fylgikvillum. Nokkur börn
fengu væga eyrnabólgu. Aðallega veikt-
ust börn og fólk á bezta aldri, en mjög
fátt gamalt fólk. Mátti telja veikina
varla í meðallagi þunga, og saman-
borið við inflúenzuna í apríl 1956,
var hún sízt þyngri.
Dalvíkur. Faraldrar í janúar og febr-
úar og i nóvember og desember, báðir
vægir.
Akureyrar. Hin svonefnda Asiuin-
flúenza barst hingað síðustu daga
septembermánaðar. Sjúkdómurinn
gekk hægt yfir fyrst í stað, en náði
hámarki í nóvember og mátti telja
lokið með desember. Inflúenzufarald-
ur þessi var í vægara lagi og lítið um
fylgikvilla.
Grenivíkur. 6 heimili hér á Greni-
vik fengu Asiuinflúenzu og 1 uppi í
Fnjóskadal, að ég bezt veit. Þó voru
stöðugar samgöngur við Akureyri
þann tima, sem veikin gekk þar.
Margir voru bólusettir gegn henni.
Breiðumýrar. Kom á 2 bæi í des-
ember. Tók aðeins einn mann á öðr-
um bænum, en nær allt heimafólk á
hinum. Allar líkur eru til, að hér hafi
verið um Asiuinflúenzu að ræða, en
hún gekk þá á Akureyri, og var greið
sinitunarleið þaðan og á þessa bæi.
En það má teljast undarlegt, að hún
skyldi ekki koma upp viðar i hérað-
inu, því að alltaf voru óhindraðar og
greiðar samgöngur við þá landshluta,
sem hún gekk í.
Húsavíkur. Hin svo kallaða Asíuin-
flúenza breiddist aldrei út, þrátt fyrir
það að nokkrir sjúklingar lögðust með
inflúenzueinkenni, fljótlega eftir að
hafa komið heim frá sýktum stöðum
i nágrenninu. Talsvert á annað hundr-
að manns bólusett gegn veikinni, og
skal ég láta ósagt, hvort það hefur
haft álirif á útbreiðslu hennar á Húsa-
vík.
Þórshafnar. Tók að stinga sér niður
í nóvember. Af þorpsbúum veiktust
margir, einkum skólabörn. Barst litið
út um sveitina. Fremur væg. Enginn
fékk alvarlega fylgikvilla.
Vopnafj. Færevkst fiskiskip leitaði
hingað með 4 menn haldna inflúenzu.
Norður-Egilsstaða. Framan af árinu
gerði væg inflúenza vart við sig, en
varð aldrei útbreidd, og í október
komst hin svonefnda Asiuflenza inn
í liéraðið. Áður en veikin barst inn í
héraðið, hafði mér tekizt að bólusetja
am 160—170 manns, aðallega í Tungu,
Fellum og Fljótsdal, enda kom veikin
ekki í þessa hreppa. Veikin barst á
5 bæi á Jökuldal og jafnmarga í
Jökulsárhlið. og urðu sumir allþungt
haldnir, en nokkrir á þeim bæjum,
sem náðst hafði í til að bólusetja,
fengu hana alls ekki. Um nokkra vissi
ég', sem aðeins einu sinni höfðu verið
sprautaðir. Þeir fengu að visu veikina,
en lögðust aldrei. Inflúenzan lognaðist
svo út af í nóvember.
Bakkagerðis. Mánuðina janúar, febr-
úar og marz gekk hér í börnum vond
veiki, sem einkenndist af háum hit®»
hálsbólgu og bronchitis. Fáeinir ful -
orðnir tóku einnig veikina, en urðu
lítið lasnir. í september, október og
nóvember var svo Asiuinflúenzan a
smástinga sér niður á bæjum í Hjalta-
staðaþinghá. Urðu þeir, sem fengu