Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Side 153
— 151 —
1957
margt annað trú fólksins á fraintíð
byggðarlagsins, hve margir ungir
menn hafa á síðustu árum ráðizt i að
koma sér upp ibúðarhúsi.
Súðnvíkur. Húsakynni við Djúp
viða myndarleg. í Súðavík eru mörg
húsanna óhæf til íbúðar, en þau verstu
hafa verið yfirgefin.
Djúpavikur. Húsakynni i héraðinu
eru yfirleitt ailgóð, og' sums staðar
'ekur það undrun, hversu vistleg
heimili finnast hér norður frá. Undan-
tekningar eru þó t. d. á Gjögri, en þar
eru sum hús léleg. Þrifnaður fer vax-
andi.
Hólmavikur. Talsvert um byggingar
— gripahús og hlöður aðallega — á
mörgum bæjum. Byggingar bænda hér
eru víðast hvar vel vandaðar. Húsa-
hynni eru nú viðast orðin sæmileg, en
bó vantar nokkuð á, að þau séu alls
staðar góð. Þrifnaður eykst, en þó á-
hótavant sums staðar.
Hvammstanga. Haldið er áfram
hyggingu nýrra ibúðarhúsa á Hvamms-
tanga og i sveitinni, og mun nú aðeins
vera búið í tveimur torfbæjum í öllu
héraðinu. Þrifnaður er yfirleitt góður,
á einstaka stað miðlungi góður, til
hæmis fór ég eina ferð gagngert á
hæ í Viðidal vegna háværs orðróms
l|m sóðaskap á háu stigi. Reyndist
orðrómurinn á rökum reistur, og hef
eg ekki orð til að lýsa aðkomunni.
Yfirleitt eru útihús reisuleg og til
fyrirmyndar, og virðist i fljótu bragði
.lafnvel minna hirt um íbúðarhúsin i
samanburði við þau.
Hlönduós. Húsakynni fara stöðugt
hatnandi, bæði á Blönduósi og til
sveita, því að mikið er byggt, og horf-
Ur eru á, að torfbæirnir, sem settu
sinn sérstaka svip á Blönduós fyrir 20
arum, hverfi með öllu úr sögunni á
aaestu árum.
Höfða. Hvort tveg'gja má teljast
saemilegt og fer batnandi.
Dlafsfj. 5 ný einbýlishús komust
‘mdir þak á árinu. Húsakynni fara því
sifellt batnandi, og rýmkast mikið um
'olk, þar sem þvi fækkar, en húsum
ijölgar. Þrifnaður batnandi innan húss
°g utan, en alltaf í miður góðu lagi
v'ð höfnina og á fiskaðgerðarplássum.
Akureijrar. Á árinu voru fullbyggð
30 íbúðarhús með 41 íbúð. Ný íbúðar-
hús, komin undir þak, en ekki full-
byggð, voru 41 með 54 íbúðum. Þá
var hafin bygging 37 íbúðarhúsa með
53 ibúðum, án þess þó að þessi hús
kæmust undir þak á árinu.
Grenivíkur. Byrjað var á byggingu
ibúðarhúss á sveitabýli. Á öðrum bæ
var byggt ofan á ibúðarhúsið. Húsa-
kynni yfirleitt góð. Þrifnaður sæmi-
legur.
Þórshafnar. Húsakynni mjög léleg
og þrifnaði ábótavant. Stendur þó til
bóta.
Vopnafj. í kauptúninu var unnið að
því að fullgera íbúðarhús, sem byrjað
hafði verið á árið áður. Undirbúning-
ur var hafinn að byggingu tveggja i-
búðarhúsa, og á öðrum bæ var unnið
að byggingu viðbótar við íbúðarhús,
sem fyrir var.
Austur-Egilsstaða. Húsakynni fara
sibatnandi. Nokkuð byggt af nýjum
húsum og önnur i smiðum. Þrifnaður
innan liúss og utan batnandi. Húsbún-
aður er i framför og ber vott um
vaxandi velmegun almennings.
Bakkagerðis. Síðustu 6 árin hafa
verið byggð 11 ibúðarhús í Borgar-
fjarðarhreppi, 4 i þorpinu og 7 i sveit-
inni. Eru þetta allt ágæt hús og búa
i þeim rúmlega 60 manns. Auk þess
hafa mörg gömul hús verið löguð og
mikið verið byggt af peningshúsum.
Landnám ríkisins er með 5 nýbýli á
sínum vegum i Hjaltastaðahreppi, og
er búskapur hafinn á einu þeirra. Auk
þess mun einn bóndi vera að byggja
sér þar nýbýli.
Seyðisfj. Alltaf nokkur hús í smíð-
um, aðallega einbýlishús. Flestum
gömlum húsum er lialdið vel við, og
segja má, að fáar lélegar ibúðir séu í
notkun. Þrifnaður yfirleitt góður.
Eskifj. Húsakynni mismunandi, eins
og gengur. Víða þrengsli, en yfirleitt
ekki óþrifaleg. Talsvert um nýbygg-
ingar á Eskifirði og Búðareyri.
Djnpavogs. Hér er ekki svo lítið um
nýbyggð steinhús, en þau eru færri,
sem eru g'óð. Þessir steinkofar eru
ljótir útlits, ómúrhúðaðir og ómálaðir
að utan, oft dimmir, rakir og kaldir
að innan. Hins vegar eru hér um
slóðir mörg gömul timburhús, og sum