Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1957, Qupperneq 162
1957
— 160
Ólafsfj. Endurbólusetning (kúabólu-
setning) fór fram um leið og skóla-
skoðun. Frumbólusetning fórst fyrir,
þar sem inflúenzan skall á, um þaS
leyti er hún átti aS fara fram. LokiS
var viS aS sprauta í 3. sinn börn þau
og unglinga, er fengiS höfSu tvær
sprautur gegn mænusótt áriS áSur. Ég
gaf almenningi kost á mænusóttarbólu-
setningu á aldrinum 14—45 ára. Því
var litiS sinnt. Alls óskuSu 55 manns
eftir bólusetningu, og svarar þaS til
tveggja árganga af 30. Ég hóf inflú-
enzubólusetningu gegn Asiuinflúenz-
unni, en aSeins tveir höfSu lokiS
henni svo fljótt, aS ónæmiS ætti aS
hafa veriS orSiS eins öflugt og vænzt
var. Voru þaS tvær konur, sem veriS
höfSu berklaveikar. Hvorug veiktist,
en veikin barst þó á heimili beggja.
Sautján manns höfSu aSeins fengiS
eina sprautu, þegar veikin barst hing-
aS. Flest það fólk veiktist mjög vægt
eða alls ekki.
Dalvíkur. Ónæmisaðgerðir margar,
einkum bólusetningar gegn mænusótt.
Akureyrar. Af ónæmisaðgerðum á
árinu var langmest um mænusóttar-
ónæmisaðgerðir, og annaðist héraðs-
læknir þessar aðgerðir einn í skólum
héraðsins, en utan skólanna voru meS
lionum Guðmundur Karl Pétursson,
yfirlæknir, og Snorri Ólafsson, yfir-
læknir. Aðrar ónæmisaðgerðir, svo
sem ónæmisaðgerðir gegn barnaveiki,
kikhósta, stiflcrampa, berklaveiki og
bólusótt, voru framkvæmdar að mestu
í HeilsuverndarstöS Akureyrar, ó-
keypis.
Grenivíkur. Börn voru bólusett gegn
bólusótt og siðasta mænusóttarbólu-
setning á börnum. Unglingar og full-
orðnir bóluscttir tvisvar gegn mænu-
sótt. Ekkert sérstakt var við bólusetn-
inguna aS athuga. Kúabólan kom
sæmilega út. Bólusett var einnig gegn
Asíuinflúenzu.
fíreiðumýrar. Frumbólusetning með
kúabólu var ekki gerð á árinu. LokiS
var við mænusóttarbólusetningu á öll-
um börnum innan fermingaraldurs,
þeim sem byrjað var á árið 1956.
Fullorðnu fólki að 45 ára aldri var
gefinn kostur á mænusóttarbólusetn-
ingu, og voru flestir sprautaðir 2 sinn-
um. Var sú bólusetning sótt af áhuga
og dugnaði, og því meir, sem sveitir
eru afskekktari og strjálbýlli. Þegar
sprautað var í fyrra sinnið, síðustu
daga aprílmánaðar, voru vegir ófærir
vegna aurbleytu að einum bæ i BárS-
ardal vestanverðum. En bóndinn þar,
rúmlega fertugur maður, vann það til
að vaða Skjálfandafljót til þess að
komast í veg fyrir lækni, sem var að
fara á bólusetningarstað, og aftur til
baka að bólusetningu lokinni. Má hann
gilda sem dæmi um áhuga og skilning
héraðsbúa á þessari nýung.
Húsavíkur. AS þessu sinni gerð
gangskör að kúabólusetningu. MeSal
bólusettra voru margar „eftirlegukind-
ur“. Árangur helzt til góður, því að
mörg börn veiktust illa af bólunni, og
út kom á flestöllum. Bólusetningu gegn
mænusótt haldið ófram allt árið, eins
og til var ætlazt. Ekkert bar út af við
bólusetninguna. NokkuS bar á, að full-
orðið fólk sækti illa bólusetninguna.
ÞriSju umferð mun ekki ljúka fyrr en
á næsta ári.
Kópaskers. Lokið var að mestu bólu-
setningu gegn mænusótt i börnum. Um
60 manns óskaði eftir bólusetningu
gegn Asíuinflúenzu, og voru þeir bólu-
settir. Asíuinflúenza barst ekki hing-
aS í héraSið. Aðrar bólusetningar fóru
ekki fram á árinu, svo að ég viti til.
Vopnafj. HaldiS var áfram bólusetn-
ingu barna og unglinga, sem hafin var
1956. í maí var hafizt handa um bólu-
setningu fólks á aldrinum 15—45 ára.
Alls voru bólusettir 206 í 1. og 2. sinn
og 107 i þriðja sinn. Þeir, sem bólu-
settir voru með dönsku bóluefni, —
þ. e. um helmingur — urðu ekki bólu-
settir í 3. sinn á þessu ári. Áhugi
fyrir bólusetningunni var mikill og
almennur.
Norður-Eyiisstaða. Auk hinnar lög-
boðnu kúabólusetningar, þegar bólu-
sett var eins og skýrslurnar bera með
sér, var bólusett við Asiuinflúenzu og
mænusótt. Að lokinni bólusetningu
barna og unglinga var fólki á aldrin-
um 15—45 ára gefinn kostur á mænu-
sóttarbólusetningu. NotfærSi fólk sér
þetta vel, og voru bólusettir um 250
manns á þessum aldri, sem lokið verð-
ur svo við á þessu ári (1958). Kua-