Studia Islandica - 01.06.1963, Blaðsíða 15

Studia Islandica - 01.06.1963, Blaðsíða 15
13 II ÆSIR MEÐAL SUÐUR-GERMANA Elzta frásögn um trúarbrögð Germana er í bók Cæsars um Gallastríð (um 50 f. Kr.). En þar segir, að Germanar telji þá eina með goðum, sem þeir skynji og hafi sýnilegt gagn af, svo sem Sól, Vulkanus (eldinn) og Mána. Varla þarf að ætla, að Cæsar hafi haft náin kynni af helgihaldi Germana, enda lýsa aðrir rómverskir rithöfundar, sem að vísu eru uppi nokkru síðar, svo þroskaðri goðadýrkun meðal germanskra þjóðflokka, að vart er hugsanlegt, að öll goð þeirra séu upp runnin eftir daga Cæsars. Um 100 e. Kr. skrifar Tacitus bók sína um Germaníu og minnist allvíða á goðadýrkun og helgihald. Þar segir meðal annars: „Merkúríus tigna þeir [Germanar] mest goða, og kveður svo rammt að dýrkun hans, að á ákveðn- um dögum þykir þeim hlýða að færa honum mannfórnir. Þá blíðka þeir Herkúles og Mars með venjulegum dýra- fórnum. Nokkrir meðal Svefa blóta einnig Isis. Veit ég eigi með neinum sanni, af hverju þessi erlenda blótvenja stafar né hvaðan hún er komin. Það eitt má telja víst, að aðfengin er hún, því að einkunn gyðjunnar er sem létti- skúta í lögun.“ * 1 Hér verður ekki um það dæmt, hvort þessi germanska Isis sé upp runnin hjá suðrænum eða norrænum þjóðum. En auðvelt er að benda á hliðstæður við einkunn gyðjunnar í helgihaldi beggja. Tacitus nefnir einnig dýrkun Germana á Merkúríusi og Mars í öðru riti: Historia. Þar segir frá stríði milli tveggja germanskra þjóðflokka: Hermundura og Katta (58 e. Kr.). Hinir fyrr- nefndu hlutu sigur, því að þeir höfðu vígt óvini sína Mars og Merkúríusi.2 Þessi sögn minnir óneitanlega á þann sið, sig tiltölulega litlar minjar í örnefnum. Ég treysti mér ekki til aö koma með rökstudda skoðun um uppruna hans eða gera upp á milli skoðana þeirra, er hér hefur verið getið. 1 Tacitus: Germania, 9. kap. 2 Sjá Clemen, bls. 12.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.