Studia Islandica - 01.06.1963, Page 37

Studia Islandica - 01.06.1963, Page 37
35 með hvaða hætti Dómalda var blótað. 1 Ynglingatali segir: Ok landherr af lífs vönum dreyrug vápn Dómalda bar. En samkvæmt Historia Norvegiæ var Dómaldi hengdur. Hugsanlegt er þó, að báðar sagnirnar geymi minningar um blótsið, sem bæði hafi falið í sér hengingu og aftöku með vopnum. Slík blót tíðkuðust í Uppsölum á dögum Adams frá Brimum, og ekkert mælir gegn því, að þau eigi sér fornar rætur. Sögnina um hengingu Dómalda ber Folke Ström saman við frásögn um dauða Agna konungs í Ynglingatali: Þat telk undr, ef Agna her Skjalfar ráð at sköpum þóttu, þás gæðing með gullmeni Loga dís at lopti hóf. Vísa þessi er að ýmsu leyti torskilin, en samt virðist ljóst, að Agni konungur hefur verið hengdur í gullmeni að ráðum Skjálfar, sem Snorri segir, að verið hafi eigin- kona hans.1 Varla þarf að efa, að Skjálf og Logadís er hin sama, enda hefur Snorri litið svo á, og sá skilningur kemur líka bezt heim við Historia Norvegiæ: „Istum uxor sua juxta locum Agnafit, qui nunc Stokholmr dicitur, propriis manibus interfecit suspendendo ad arborem cum catena aurea.“ Þ. e.: Eiginkona hans drap hann með eigin hendi á Agnafit, sem nú heitir Stokkhólmur, með því að hengja hann á tré með gullmeni. Ef það er rétt, að henging hafi verið liður í dísablótum konunga í Uppsölum, er freistandi að bera þau saman við blót Artemisar hinnar grísku. En hún var tignuð á þann hátt, að mynd hennar sjálfrar eða blótdýr henni helgað var hengt upp á tré.2 1 Heimskringla, Yngl.s., 19. kap. 2 Sjá Frazer IV, 1, bls. 291—92.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.