Studia Islandica - 01.06.1970, Blaðsíða 80
78
men som hvert Aar nmdt om i Verden bliver kastet i
livsvarigt Fængsel eller domt til Doden.1
Vér morðingjar voru fnnnsýndir í Dagmarleikhúsinu í
Kaupmannahöfn 2. marz 1920 með Thorkild Roose og Clöru
Pontoppidan í aðalhlutverkum.2 Leikmnn var tekið með
kostum og k}mjum; Guðmundur Kamban hafði unnið óve-
fengjanlegur sigur.3 Um haustið sama ár var leikritið sýnt
í Osló, og hin víðfræga leikkona, Johanna Dybwad, lék
Normu.4 Frumsýning Leikfélags Reykjavikur á Oss morð-
ingjum var 7. okt. 1920.5 Heldur virðist henni hafa verið fá-
lega tekið og áhorfendur ekki almennilega hafa áttað sig á,
hvað höfundur var að fara.6 Síðan hefur það fjónnn sinnrnn
verið sýnt á Islandi, síðast vorið 1968 í tilefni áttræðisaf-
mælis höfundarins. Var þeirri sýningu tekið með mikilli
hrifningu og einróma lofi í leikdómum dagblaðanna.7
Vér morðingjar öfluðu Guðmundi Kamban bæði fjár og
frama, og fóru nú í hönd beztu ár ævi hans.8 Fyrri hluta árs
1921 samdi hann gamanleikinn Hin arabísku tjöldin, sem
Dagmarleikhúsið sýndi sama haust tmdir leikstjórn höfund-
ar.9 Ári áður hafði Konungsglíman verið sýnd í Konunglega
leikhúsinu við fálegar viðtökur, og ekki varð sýning Hinna
1 Politiken 14. 3. 1920.
2 Sbr. t. a. m. Berlingske Tidende 2. 3. 1920.
3 Sjá t. a. m. Politiken og Berlingske Tidende 3. 3. 1920. Einnig Til-
skueren, April 1920, 298-299, en þar segir Louis Levy m. a.: „Man gyser
ved en saa stor Alvidenhed hos en saa ung Forfatter."
4 Sbr. Alþýðublaðið 8. 12. 1920.
5 Sbr. Leikfélagið 50 ára, 261.
6 Um þetta vísast til Lögréttu 20. 10. 1920, Vísis 1. 11. og 8. 11. 1920,
Alþýðublaðsins 11. 10. 1920 og Isafoldar 18. 10. 1920.
7 Sjá Þjóðviljann 25. 4. 1968, Vísi 23. 4. 1968, Alþýðublaðið 23. 4.
1968, Tímann 28. 4. 1968 og Morgunblaðið 23. 4. 1968.
8 Sjá Kristján Albertsson 1968, 22.
9 De arabiske Telte komu út í Kaupmannahöfn 1921. Á íslenzku
verður leikritið bréðlega gefið út og er til í eiginhandarriti höfundar hjá
Gisla Jónssyni með fyrirsögninni Hin arabísku tjöldin. Sjá Masken 9.-15.
Sept. 1921; Berlingske Tidende 17. 9. 1921; Kristján Albertsson 1968, 22.