Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 43

Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 43
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 41 Hvítir karlmenn telja sig hafa orðið undir Við víkjum talinu aftur að kosninga baráttunni. Palmer segir að þetta hafi verið í fyrsta sinn í forsetakosningum vestanhafs sem báðir flokkar buðu fram einstaklinga sem stórum hluta landsmanna líki illa við. „Þau eru bæði fráhrindandi einstaklingar á sinn hátt,“ segir Palmer. „Hillary Clinton er spillt og fólk skildi það. Þó svo að hún neiti því er alveg ljóst að hún naut góðs af þeim styrkjum sem komu í gegnum velgjörðarsjóð þeirra hjóna frá erlendum ríkjum og fyrirtækjum. Daginn eftir að hún tapaði kosningunum stoppuðu öll framlög þessara aðila í sjóðinn og þeir sem höfðu skuldbundið sig til að leggja fjármagn í sjóðinn hættu við. Það ætti að segja okkur eitthvað. Þau hafa neitað því að hafa persónulega notið góðs af rekstri sjóðsins en sjóðurinn greiddi fyrir öll ferðalög þeirra hjóna og dóttur þeirra, þar sem flogið var um á einkaþotum, dvalið á lúxushótelum o.s.frv.“ Hvað Trump varðar segir Palmer að margir stuðningsmanna hans myndu fylgja honum fram af bjargbrún enda hafi hann sinnt þeim hópi mjög vel, bæði á meðan á kosningabaráttunni stóð og á því rúma ári sem liðið er frá því að hann sór embættiseið. „Hann hefur sjálfur sagt opinberlega, þannig að þetta er ekki bara dómharka í mér, að hann gæti gengið út á götu og skotið mann – en þessir stuðningsmenn hans myndu samt styðja hann,“ segir Palmer. „Þegar nánar er að gáð kemur í ljós að þetta eru að mestu leyti ómenntaðir hvítir karlmenn. Og þetta er vandamál. Við sem aðhyllumst frjálslyndi rekumst hér á vegg og við vitum ekki almennilega hvernig best er að svara þessu. Þessir einstaklingar telja að þeir hafi verið sviptir einhverjum réttindum, að þeir séu fórnarlömb aðstæðna, t.d. alþjóðaviðskipta, og eru þess vegna reiðir.“ Palmer segir að frjálslyndir menn hafi í yfir 200 ár lagt upp með þá kenningu að velgengni eins sé ekki á kostnað annars; þó svo að einum gangi vel séu tækifæri til staðar fyrir aðra að ganga vel líka. Aðrar stjórnmálaskoðanir, t.d. sósíalismi, gangi út á það að velgengni eins sé á kostnað annars og því þurfi að taka af þeim sem hafi gengið vel. „En maðurinn er þannig gerður að hann er sífellt að meta stöðu sína í þjóðfélaginu,“ segir Palmer. „Hver er bestur í íþróttum, hver á hvað og svo framvegis. Á síðustu áratugum hefur þjóðfélagsstaða fjölmargra hópa stórbatnað. Konur komu inn á vinnumarkaðinn, þær stjórna nú stórfyrirtækjum, ná langt í stjórn- málum o.s.frv. Blökkumenn hafa einnig náð árangri, þeir eru að mennta sig, ná langt og við vorum með blökkumann sem forseta. Það mætti halda langa svona tölu, inn flytjendur, samkynhneigðir og alls konar minnihluta- hópar hafa risið upp og öðlast betri þjóðfélagsstöðu en áður var. Og jafnvel þó svo að þeir hafi ekki risið á kostnað annarra telja margir nú að svo sé og það viðhorf er nokkuð nýtilkomið. Til að teikna þetta upp myndrænt getum við tekið 100 manns úr ýmsum þjóðfélagshópum og stillt þeim upp í stiga. Það er alveg ljóst að fulltrúar minni- hlutahópa hafa komist ofar í stigann. En þá spyrjum við okkur, hverjir hafa þurft að færa sig neðar? Svarið við því er; ómenntaðir hvítir karlmenn. Þeir hvítu menn sem hafa menn- tun hafa ekki undan neinu að kvarta en þeir sem ekki hafa sótt sér menntun telja að þeir hafi orðið eftir í lífsgæðakapphlaupinu og verða við það reiðir. Menn átta sig ekki á því að margir geta staðið saman í hverri tröppu.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.