Þjóðmál - 01.03.2018, Page 79
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 77
Brynjar: Aðgöngumiðinn að
EES-samningnum rándýr
Fjölmörg dæmi er hægt að taka um regluverk
frá Evrópusambandinu sem fellt hefur verið
undir EES-samninginn sem tekur engan
veginn mið af aðstæðum hér á landi. Til að
mynda má nefna af handahófi nýja löggjöf frá
sambandinu sem kveður á um að sérstakur
persónuverndarfulltrúi skuli vera starfandi
í hverju sveitarfélagi í landinu.12 Sömuleiðis
sölubann á hefðbundnar glóperur og
kraft miklar ryksugur13 sem er lýsandi fyrir
tilhneigingu Evrópusambandsins til þess að
vilja stýra smæstu atriðum í lífi venjulegs fólks.
Taka má einnig dæmi um regluverk sem haft
hefur afdrifaríkar afleiðingar hér á landi, eins
og meingallaða tilskipun sambandsins um
innistæðutryggingar.
Mikið hefur verið rætt um það í gegnum
tíðina að regluverk frá Evrópusambandinu
fari á færibandi í gegnum Alþingi án mikillar
umræðu nema í einstaka tilfellum. Þingmenn
hafa ekki sízt talað á þeim nótum. Brynjar
Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
hæstaréttarlögmaður, ræddi til að mynda
þessa stöðu í Bítinu á Bylgjunni í febrúar 2014
og var ekki að skafa utan af því:
„Mér finnst ég gera lítið annað á þinginu
en að innleiða einhverjar reglur frá Evrópu-
sambandinu,“ sagði Brynjar um störf sín á
Alþingi. Lýsti hann aðspurður efasemdum um
að margir þingmenn vissu hvað þeir væru að
samþykkja. Skilaboðin væru einfaldlega þau
að þetta væri regluverkið sem þeir ættu að
innleiða. Ástæðan fyrir því að ekki gengi nógu
vel að innleiða regluverkið væri sú að ekki
væri nógu fjölmennt starfslið til þess hjá hinu
opinbera. „Það er svo dýrt, aðgöngumiðinn að
þessum innri markaði er rándýr fyrir okkur.“
Brynjar sagðist hafa velt því fyrir sér hvort
endurskoða þyrfti EES-samninginn.
„Það eru alls konar hlutir í þessum
samningi sem ég hef aldrei skilið af
hverju við þurfum að fara eftir regluverki
þeirra með. Mér finnst það ekki einu sinni
tengjast þessum innri markaði í raun. En
þetta er bara eitthvað sem hefur gerzt og
maður einhvern veginn situr með þetta í
fanginu og veit ekki sitt rjúkandi ráð.“14
Kemur líklega í veg fyrir fríverzlun við
Bandaríkin
Þrátt fyrir að aðild Íslands að EES-samningnum
meini okkur ekki að gera fríverzlunarsamninga
við önnur ríki gerir regluverk Evrópu-
sambandsins sem tekið er upp hér á landi slíka
vinnu að minnsta kosti erfiðari en ella og í það
minnsta í sumum tilfellum líklega ómögulega.
Ástæðan er einkum sú að við getum ekki
samið um breytingar á regluverkinu til þess að
koma til móts við viðsemjendur okkar enda
ekki reglur settar af okkur. Ríki sem semja við
okkur Íslendinga um fríverzlun verða þannig
áður en formlegar viðræður hefjast að sætta sig
við þann veruleika að hér á landi gildir viðamikið
regluverk frá Evrópusambandinu sem íslenzk
stjórnvöld geta ekki hagað eftir eigin höfði.
Regluverk Evrópusambandsins sem tekið er
upp í gegnum EES-samninginn virkar þannig
í raun með hliðstæðum hætti og beinir tollar.
Regluverkið er í ófáum tilfellum hugsað sem
óbeinar viðskiptahindranir í þeim tilgangi að
vernda framleiðslu ríkja sambandsins fyrir
utanaðkomandi samkeppni. Rétt er að hafa
í huga að Evrópusambandið er í grunninn
tollabandalag, en slík bandalög hafa einmitt
þann tilgang og eru þannig í raun andstæða
fríverzlunar. Rifja má upp að misheppnaðar
fríverzlunarviðræður sambandsins við
Bandaríkin snerust fyrst og fremst um slíkar
óbeinar viðskiptahindranir í formi regluverks
en ekki um beina tolla.
Fulltrúar fyrirtækja á Íslandi sem átt hafa í
umtalsverðum viðskiptum við Bandaríkin
hafa á undanförnum árum vakið máls á því
að EES-samningurinn stuðli í vaxandi mæli að
erfiðleikum í slíkum viðskiptum.