Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Síða 25
23
3. HELZTU NIÐURSTÖÐUR.
1. Tilraun var gerð haustið 1954 í Blöndudalshólum í Austur-Húnavatns-
sýslu með að bera saman framför lamba, sem gengu með mæðrum, annars
vegar á túni (há), en hins vegar í úthaga, í 28 daga frá 18. september til 16.
október. í tilraunina voru notuð 40 lömb, 28 hrútar og 12 gimbrar, sem
skipt var 18. september í tvo jafna flokka A og B eftir þunga á fæti og
kyni. Lömbin í A-flokki gengu með mæðrum sínum í úthaga, en lömbin
í B-flokki með mæðrum á túni til 16. október, er þau voru vegin á fæti
og slátrað næsta dag.
2. Er tilraunin hófst vógu lömbin í A-flokki 31.92 kg og í B-flokki 31.90 kg.
Á tilraunaskeiðinu þyngdust lömbin í A-flokki 3.68 kg og í B-flokki 4.52
kg að meðaltali á fæti. Afurðir lambanna á blóðvelli vógu að meðaltali: í
A-flokki fall 13.42 kg, mör 0.85 kg og gæra 2.75 kg, en í B-flokki fall 14.20
kg, mör 0.92 kg og gæra 2.95 kg. Meðalafurðir lambanna, sem gengu á
túni (B-fl.) í kjöti, mör og gæru, urðu 1.05 kg meiri en þeirra, sem gengu
í úthaga (A.-fl.), er sýnir nokkurn liag af háarbeit fyrir sláturlömb, jafn-
vel þótt tíð sé svo köld, að háin spretti lítið að haustinu.