Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Blaðsíða 37
Tafla 29. Meðalfallþungi lamba og mismunur flokka, kg.
Mean dressed carcass weight of lambs and difference between groups, kg.
Kyn Tala Meðalfall Mismunur
sex no. mean dressed carcass difference
A-fl. group A B-fl. group B B-A
Hrútar $ 14 14.68 15.79 1.11***
Oimbrar 2 8 12.56 13.81 1.25**
bæði kyn $ & 2 22 13.91 15.07 1.16***
Meðalskekkja á einstakling S.E. per individual — 0.67 kg, frítala DF — 20.
* Sjá töflu 1 see table 1.
Meðalfallþungi túnlambanna, B-flokks, reyndist 1.16 kg meiri en úthaga-
lambanna, A-flokks, og er sá munur raunhæfur í 99.9% tilfella. Munúrinn á
fiokkunum, innan hvors kyns fyrir sig, 1.11 kg á hrútum og 1.25 kg á gimbr-
um, er einnig raunhæfur.
Þessar niðurstöður sýna greinilegan ávinning af túnbeitinni, þótt sá mun-
ur sæist ekki í þunga lambanna á fæti. Á 24 daga tilraunaskeiði hafa túnlömb-
in að meðaltali bætt við sig 43.0 g meira af kjöti á dag en úthagalömbin.
c. Áhrif á kjötprósentu.
Kjötprósenta lamba af hvoru kyni fyrir sig og báðum kynjum sameiginlega
er gefin í töflu 30.
Tafla 30. Meðalkjötprósenta lamba og mismunur flokka.
Mean dressing percentage of lambs and difference between groups.
Kyn Tala A-flokkur B-flokkur Mismunur
sex no. group A group B difference B—.
Hrútar $ 14 38.46 40.98 2.52***
Gimbrar 2 8 39.97 42.09 2.12*
Bæði kyn $ & 2 22 39.01 41.38 2.37***
Meðalskekkja á einstakling S.E. per individual — 1.54%, frítala DF — 20.
* Sjá töflu 1 see table 1.
Kjötprósenta túnlambanna reyndist 2.37% hærri en úthagalambanna, og
er sá munur raunhæfur í 99.9% tilfella. Munurinn á kjötprósentu flokkanna
innan hvors kyns reyndist einnig raunhæfur. Sá munur er aðeins meiri á hrút-
um en gimbrum, er bendir til, að túnbeitin hafi hækkað kjötprósentu hrút-
anna heldur meira en gimbranna, en er þó ekki raunhæfur. I báðum flokk-
um hafa gimbrar hærri kjötprósentu en hrútar, 1.51% í A-flokki og 1.11%
í B-flokki. Þessi munur er raunhæfur fyrir báða flokka sameiginlega.