Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Síða 50
IX. KAFLI.
TILRAUN Á HESTI 1957
1. RANNSÓKN AREFNI OG AÐFERÐIR.
í þessa tilraun voru notuð 100 lömb, jafnmörg af hvoru kyni, eign Hest-
búsins, þau rýrustu, sem voru komin í heimaland 2. september, er tilraunin
hófst. Hún stóð til 4. október eða í 32 daga.
Þann 2. september var lömbunum skipt í 5 jafna flokka eftir þunga á fæti,
kyni og ætterni á sama hátt og lýst er í kafla I og kafla VIII. Flokkarnir voru
nefndir A, 15, C, D og E.
Lömbin í A-flokki voru höfð með mæðrum sínum á úthaga allt tilrauna-
skeiðið. Á sama tíma voru iömbin í B-flokki höfð móðurlaus á fóðurkáli, lömb-
in í C-flokki móðurlaus á vetrarrúgi og höfrum, lömbin í D-flokki móðurlaus
á nýrækt og lömbunum í E-flokki var slátrað 3. september til þess að fá vitn-
eskju um, hvc mikið tilraunalömbin legðu sig jrá.
Fóðurkálið var á 0.8 ha spildu, því var sáð í fyrstu viktt júní, og jrað var vel
sprottið, er tilraunin hófst. Lömbin á kálinu höfðu jafnframt aðgang að all-
stórri spildu af óræktuðu landi. Var kálstykkið girt í sundur jtannig, að h'imb-
in höfðu aðeins aðgang að lduta af kálinu hverju sinni, en girðingin færð til
eftir jrörfum.
Á tilraunaskeiðinu bitu lömbin sem svaraði y5 ha af kálinu. Þann 6. sept.
var uppskera vegin af óbitnu káli og var uppskeran þá 6330 kg Jmrrefnis af
ha, sem mun jafngilda 5754 F.E. Lætur því nærri, að lömbin hafi bifið 1.35
F.E. hvert á dag að meðaltali.
Landið, sem rúgurinn og hafrarnir voru I, var 1.0 ha að stærð, og var sáð
höfrum í annan helming þess svo seint, að þeir voru tiltölulega lítið sprottnir,
70 cm að hæð, er tilraunin hófst. í hinn helming spildunnar var sáð vetrarrúgi,
sem var J)að sprottinn, er tilraunin hófst, að gróðurinn var alljréttur og 35
cm hár. Helmingurinn af hvoru stykki var afgirtur og sleginn i september, en
lömbunum beitt á hinn helminginn, en þó var varið horn af rúgspildunni.
Þau höfðu jafnframt aðgang að óræktuðu landi. Uppskera mæld 6. sept. sýndi,
að hafrarnir gáfu 2872 F.E. á ha, en rúgurinn 2378 F.E. á ha.
Nýræktin var á 1. ári 1.5 ha að stærð, og var sáð I landið um mánaðamótin
júní—júlí. Það var fremur lítið sprottið, en J)ó ágæt beit á því, er tilraunin
hófst.
Lömbin á ræk'taða landinu þrifust vel allt tilraunaskeiðið.
Þann 5. október var öllum tilraunalömbunum slátrað. A-flokkslömbin