Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Blaðsíða 65
63
c. Áhrif á kjötprósentu.
Kjötprósenta lamba af hvoru kyni fyrir sig og báðum kynjum sameiginlega
er gefin í töflu 53.
Tafla 53. Meðalkjötprósenta lamba og mismunur flokka.
Mean dressing percenlage of lambs and difference between groups.
Flokkur group Hrútar $ Gimbrar $> o+ w H
i. Meðalkjötprósenta rnean dressing percentage
A 38.61 41.11 39.86
15 41.66 41.43 41.54
C 41.25 41.36 41.30
D 37.78 43.07 40.42
ii. Meðalmunur tlokka mean group difference
A-D 0.83 — 1.96 — 0.56
B-D 3.88*** — 1.64* 1.12
C-D 3.47** — 1.71* 0.88
A-B — 3.05** - 0.32 — 1.68*
A—C — 2.64* — 0.25 — 1.44
B-C 0.41 0.07 0.24
Meðalskekkja á einstakling S.E. per individual = 2.45%, frítala DF = 54
* Sjá töflu 1 see table 1
Það er athyglisvert, að munur á meðalkjötprósentu flokkanna, þegar bæði
kyn eru tekin sameiginlega, er lítill og óraunhæfur, nema munurinn á A- og
B-flokki er raunhæfur í 95% tilfella. í öllum flokkum sameiginlega er meðal-
kjötprósenta hrúta 39.90, en gimbra 41.74. Munurinn, 1.84%, er raunhæfur
i 99.9% tilfella. Samvirk áhrif flokka og kynja eru raunhæf í 99% tilfella, er
bendir til þess, að meðferð tilraunalambanna hafi ekki haft sömu áhrif á lömb
af báðum kynjum. Þetta er einnig augljóst af töflu 53, þar sem gimbrar í A-,
B- og C-flokki hafa raunhæft lægri kjötprósentu en gimbrar í D-flokki, en
brútar í B- og C-flokki hafa raunhæft hærri kjötprósentu en hrútar í D-flokki.
Hrútar í B- og C-flokki hafa líka raunhæft hærri kjötprósentu en hrútar í A-
flokki. Er því augljóst, að kjötprósenta hrútanna, sem gengu á ræktuðu landi,
hefur hækkað á tilraunaskeiðinu, en hið gagnstæða hefur átt sér stað hjá
gimbrunum. Hinn mikli munur á kjötprósentu hrúta og gimbra í D-flokki,
5.29%, bendir ennfremur til þess, að af tilviljun hafi valizt gimbrar með
óvenju háa kjötprósentu í D-flokk í byrjun tilraunar. Ef svo hefur verið,
truflar það niðurstöður tilraunarinnar eitthvað á þann veg, að framför gimbr-
anna í A-, B- og C-flokkum hefur verið eitthvað meiri en í Ijós kemur við
uppgjörið.
d. Áhrif á gæðamat falla.
Tafla 54 sýnir tölu falla í hverjum gæðaflokki, fyrir hrúta og gimbrar sér
og fyrir bæði kyn sameiginlega í ölluni tilraunaflokkum.