Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Side 76
XII. KAFLI.
TILRAUN Á DÝRFINNUSTÖÐUIVi 1957
1. RANNSÓKNAHEFNI OG AÐFERÐIK.
Þessi tilraun var gerð til þess að bera saman framför lamba að haustinu,
með mæðrum á úthaga annars vegar og móðurlausra á fóðurkáli hins vegar.
I þessa tilraun voru notuð 60 lömb á Dýrfinnustöðum í Akrahreppi, 36
hrútar og 24 gimbrar. Tilraunin hófst 4. september og stóð til 6. október,
eða í 32 daga.
Þann 4. september var lömbunum skipt í 3 jafna flokka, A, B og C, eftir
þunga á fæti og kyni, þannig að 12 hrútar og 8 gimbrar voru í hverjum flokki,
á sama hátt og lýst er í kafla I. Lömbin í A-flokki voru höfð með mæðrum
'iínum á úthaga allt tilraunaskeiðið, en B-flokkslömbin voru höfð móðurlaus
á fóðurkáli sama tíma, og höfðu þau einnig aðgang að óræktuðu beitilandi
með kálinu. Lömbunum í C-flokki var slátrað, er tilraunin hófst. til þess að
fá vitneskju um, hve mikið lömbin legðu sig þá.
Fóðurkálið var á 1.2 lia spildu, og var það prýðilega sprottið. Þessi 20 lömb
átu aðeins lítinn hluta af kálinu. Spilda af túni, ca. i/3 ha, og óræktaðir skurð-
bakkar voru innan sömu girðingar og kálið. Þann 6. október voru öll lömbin
í A- og B-flokki vegin á fæti og þeim slátrað morguninn eftir. Nvrnamör var
veginn með föllunum.
2. NIÐURSTÖÐUR TILR AUNARINNAR.
a. Áhrif á þunga á fæti.
Meðalþungi lambanna á fæti í öllum flokkum, fyrir hvort kyn sér og bæði
kyn sameiginlega í byrjun tilraunar og við slátrun, er gefinn í töflu 63 ásamt
þyngdaraukningu lambanna í A- og B-flokki á tilraunaskeiðinu.
Tafla 63. Meðalþungi Iamba og þyngdaraukning í A- og B-flokki, kg.
Mean live xveight of lambs and mean live weighl gain in gröup A and B, kg.
Meðalþungi á fæti mean live weight Þyngdaraukning
Kyn Tala A-flokkur B-flokkur C-fl. live weight gain
sex 710. group A group B gr. C A-fl. B-fl. Mism. diff.
4/9 6/10 4/9 6/10 4/9 gr.A gr. B B—A
Hrútar $ 12 34.25 41.21 34.25 40.38 34.29 6.96 6.13 —0.83
Girabrar 9 8 29.19 33.81 29.56 35.38 29.38 4.62 5.82 1.20
Bæði kyn $ & 9 ! 20 32.22 38.25 32.37 38.38 32.32 6.03 6.01 —0.02
Meðalskekkja á þyngdaraukningu á einstakling S.E. of live weight gain per individual
= 2.07 kg, frxtala DF — 18.