Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Page 81
XIII. KAFLI.
TILRAUN Á DÝRFINNUSTÖÐUM 1958
1. RANNSÓKNAlíEFNI OG AÐFERÐIR.
Þcssi tilraun var endurtekning á tilraun þeirri, sem gerð var haustið 1957
á Dýrfinnustöðum.
í tilraunina voru notuð 60 lömb, 36 hrútar og 24 gimbrar. Tilraunin hófst
17. sept. og lauk 16. okt. og stóð því í 29 daga.
Þann 17. sept. var lömbunum skipt í 3 jafna flokka, A-, B- og C-fl., eftir
þunga á fæti og kyni, þannig að 12 hrútar og 8 gimbrar voru í hverjum flokki,
á sama hátt og lýst er í kafla I. Lömbin í A-flokki voru höfð með mæðrum
sínum á úthaga allt tilraunaskeiðið, en B-fl. lömbin voru höfð móðurlaus á
fóðurkáli sama tíma, og höfðu þau einnig aðgang að há með kálinu.
Fóðurkálið var á 0.8 ha spildu, en það var lítið sprottið vegna óvenju þurrar
og kaldrar veðráttu vorið og framan af sumri 1958. Því miður var látið fleira
fé á kálið en þessi tilraunalömb, og svo fór, að allt kálið var uppbitið nokkru
áður en tilrauninni lauk. Mun það hafa dregið úr þroska lambanna á til-
raunaskeiðinu.
Lörnbin í A- og B-flokkum voru vegin á fæti 16. október og þeim slátrað
daginn eftir, en C-flokks lömbunum var slátrað 18. september til þess að sjá,
hvernig lömbin legðu sig, er tilraunin hófst. Nýrnamör var veginn með föll-
unum.
2. NIÐURSTÖÐUR TILR AUN ARINNAR.
a. Áhrif á þunga á fæti.
Meðalþungi lambanna á fæti í öllum flokkum, fyrir hvort kyn sér og bæði
kyn sameiginlega í byrjun tilraunar og við slátrun, er gefinn í töflu 68 ásamt
þyngdaraukningu lambanna í A- og B-flokki á tilraunaskeiðinu.
Á tilraunaskeiðinu bættu lömbin í A-flokki 3.25 kg, en í B-flokki 1.87 kg
við þunga á fæti að meðaltali. Þessi þyngdaraukning beggja flokka er raunhæf
í 99.9% tilfella fyrir bæði kyn sameiginlega. Munurinn á þyngdaraukningu
A- og B-flokks lamba, 1.38 kg A-flokks lömbunum í vil, er raunhæfur í 99%
tilfella, er sýnir, að lömbin, sem gengu á úthaga, bættu meira við þunga á
fæti en þau, sem gengu móðurlaus á káli.
I báðum flokkum sameiginlega þyngjast hrútar 0.63 kg meira en gimbrar.
Sá munur er þó ekki raunhæfur.