Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 10
Segja má
að Míla sé
vaxtarfyrir-
tæki.
Daniel von der
Schulenburg,
framkvæmda-
stjóri hjá Ardian
Okkar hlutverk er að
byggja upp innviði og
við höfum fé til að
styðja við uppbygg-
ingu Mílu.
Daniel von der Schulenburg
Framkvæmdastjóri hjá Ardi-
an segir að í flestum löndum
tali samkeppniseftirlit fyrir
því að fjarskiptafélögum sé
skipt upp á sama veg og unnið
er að með Símann og Mílu.
Það er mikilvægt fyrir orðspor Ardi-
an að rekstur Mílu gangi vel fyrir
sig á meðan fjarskiptainnviðafyrir-
tækið lýtur okkar stjórn því það er
grundvöllur þess að við getum fjár-
fest á nýjan leik í innviðum í öðrum
löndum. Þetta segir Daniel von der
Schulenburg, framkvæmdastjóri hjá
hinu franska Ardian.
Kaup innviðasjóðs Ardian á fjar-
skiptainnviðafyrirtækinu Mílu er
stærsta erlenda fjárfesting hér á
landi frá árinu 2008, samkvæmt
gögnum frá Íslandsstofu. Heildar-
virði kaupanna, það er samanlagt
virði hlutafjár og skulda, er 78 millj-
arðar króna (e. enterprise value).
Ardian er einn stærsti fjárfestir í
innviðum í heiminum. Fjárfestar á
borð við lífeyrissjóði og trygginga-
félög leggja fé í sjóðina sem Ardian
stýrir.
Schulenburg segir að unnið sé
að því að íslenskir lífeyrissjóðir
eignist 20 prósenta hlut í Mílu. „Við
vinnum með þeim hætti í f lestum
löndum. Samstarfið hjálpar okkur
að aðlagast staðháttum og skilja
markaðinn. Það er sömuleiðis
jákvætt fyrir okkur að hafa inn-
lenda bandamenn en að sama skapi
er það gott fyrir landið því þá geta
innlendir hluthafar haft hagsmuni
þjóðarinnar að leiðarljósi,“ segir
hann.
Schulenburg segir að í f lestum
löndum tali samkeppniseftirlit
fyrir því að fjarskiptafélögum sé
skipt upp á sama veg og unnið er
að með Símann og Mílu, sem sé að
fjarskiptainnviðir séu reknir í sjálf-
Orðsporið
er undir við
kaup á Mílu
Daniel von der
Schulenburg,
framkvæmda-
stjóri hjá Ardian.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ríkið getur ekki fjár-
magnað allar fjárfestingar
í innviðum
„Að mínum dómi er það af
hinu góða að innviðir séu
fjármagnaðir af einkafjár-
festum,“ segir Schulenberg
aðspurður hvað honum
finnist um umræðu um að
innviðir eigi að vera í eigu
hins opinbera. „Innviðir, sér-
staklega fjarskiptainnviðir,
kalla á miklar fjárfestingar.
Ríkið getur ekki fjármagnað
allar fjárfestingar í innviðum.
Þess vegna er skynsamlegt
að fá fjárfesta að borðinu.
Aridan hefur fjárfest víða
um heim í innviðum. Við
getum því dregið að erlenda
sérþekkingu sem mun auka
hagkvæmni í rekstri,“ segir
hann.
Nei, við munum ekki
hækka verð
„Nei, við munum ekki hækka
verð,“ segir Schulenburg
spurður hvort Ardian muni
hækka verð hjá Mílu eins og
sumir óttast ef marka má
opinbera umræðu. „Meirihluti
tekna Mílu er ákvarðaður af
Fjarskiptastofnun og því geta
stjórnendur fyrirtækis ekki
hækkað verð þó þeir vildu
en við horfum heldur ekki til
þess.“
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill
@frettabladid.is
stæðu félagi og fjarskiptafélög sem
veiti endanotendum þjónustu starfi
sjálfstætt.
Ardian sér tækifæri í því að sjálf-
stæð Míla geti aflað viðskipta sem
fyrirtækinu tekst ekki á meðan það
er í eigu Símans. Keppinautar Sím-
ans setja það fyrir sig að eiga í við-
skiptum við dótturfyrirtæki hans,
að sögn Schulenburg.
Aðspurður hve mikill vöxturinn
geti orðið þegar Míla tilheyri ekki
lengur Símanum segir Schulenburg
erfitt að segja til um það. Hann horf-
ir fram á tekjuvöxt í ljósleiðarakerf-
inu, farsímakerfinu og því að fjar-
skiptafyrirtæki deili innviðum auk
þess sem mikill vöxtur sé almennt
í fjarskiptum. „Segja má að Míla sé
vaxtarfyrirtæki,“ segir hann.
Schulenburg segir að undir stjórn
Ardian muni Míla fjárfesta hraðar í
innviðum en áður. Síminn hafi stað-
ið frammi fyrir þeim valkostum að
fjárfesta í innviðum eða þjónustu en
arðsemin af þjónustu sé alla jafna
meiri. Ardian vilji fjárfesta í ríkari
mæli í ljósleiðaravæðingu víða um
land og 5G-farsímaneti. Við það
verði gagnaflutningar hraðari.
„Við viljum bjóða upp á bestu
tengingarnar á besta verðinu,“ segir
hann. „Stafrænir innviðir eru mikil-
vægir fyrir Ísland.“
Aðspurður hve mikið eigi að auka
fjárfestinguna segist Schulenburg
ekki geta sagt til um það að svo
stöddu. Samkeppniseftirlitið og
þjóðaröryggisráð eigi eftir að sam-
þykkja söluna. Vonandi verði það í
vor. Að svo búnu geti Ardian unnið
nánar með stjórnendum Mílu.
Fram hefur komið í Markaðnum
að forstjóri Mílu geri ráð fyrir því að
fjárfestingarnar aukist úr um það
bil tveimur til þremur milljörðum
króna á ári í fjóra milljarða á ári eftir
að kaupin ganga í gegn.
Schulenburg segir að fjárfest-
ingarnar verði fjármagnaðar með
blöndu af nýju hlutafé og lánum.
„Við erum einn stærsti innviðafjár-
festir í heimi. Okkar hlutverk er að
byggja upp innviði og við höfum fé
til að styðja við uppbyggingu Mílu,“
segir hann.
Aðspurður hvort Míla muni
greiða arð á sama tíma og fjár-
fest verði í ríkari mæli í innviðum
félagsins segir Schulenburg að í
upphafi verði „litlar ef einhverjar“
arðgreiðslur því fjármunir verði
nýttir til að fjármagna uppbygg-
inguna. Það sé hefðbundið verklag
hjá Ardian.
Líftími sjóðsins sem keypti Mílu
er 15 ár og er eitt ár liðið frá stofnun.
Það þýðir að Ardian hefur í raun 14
ár til að selja Mílu í því skyni að skila
fjárfestum í sjóðnum fjármunum
sínum. „Við framlengjum oft sjóð-
ina,“ segir Schulenburg og bætir við
að eins stofni Ardian nýja sjóði sem
geti tekið við eldri fjárfestingum.
Því geti Ardian haft Mílu innan
sinna vébanda lengur en líftími
sjóðsins gefi til kynna.
Aðspurður hvort það sé einhver
sem Schulenburg myndi ekki vilja
selja Mílu til segir hann að Ardian
lúti reglum Evrópusambandsins
sem snúi að því að fyrirtækið verði
að þekkja vel við hvern það eigi
viðskipti. „Það útilokar alla sem þú
vilt ekki að kaupi fyrirtækið. Ef við
seljum Mílu viljum við að salan sé
farsæl fyrir Mílu og Ísland. Að sama
skapi myndi ríkisstjórnin taka söl-
una til skoðunar, rétt eins og í okkar
tilfelli, og getur hafnað henni.“ n
MARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR