Saga - 2012, Síða 54
valdboð í krafti meirihlutavilja varhugavert.65 Hann leit á tilvist rík-
isvalds sem réttlætingu á ofbeldi því vald ríkisins byggðist á því.
Væri það markmið 20. aldarinnar að útrýma stríði og ofbeldi yrði að
útrýma ríkisvaldinu, ef deyða ætti alla morðingja yrði að „hengja
alla dómara og hengjara, þar næst alla löggjafa og síðan allt fram-
kvæmdavaldið.“ Annað væri hræsni og tvískinnungur.66
Anarkismi var (og er) umdeild hugmyndastefna og blöð og
tímarit þessara ára voru uppfull af fréttum af „illvirkjum“ og „vítis-
vélum“ anarkistanna sem jafnvel voru taldir ógna siðmenningunni
sjálfri. Í Bandaríkjunum var, eins og áður sagði, William McKinley
forseti skotinn þann 6. september 1901. Þar var að verki hinn pólsk-
ættaði anarkisti Leon Czolgosz og lést forsetinn af sárum sínum
rúmri viku síðar. Upphófst mikið fjölmiðlafár í Bandaríkjunum og
umræðan teygði anga sína til samfélags Íslendinga í Kanada, en
bæði Heimskringla og Lögberg birtu í kjölfar morðsins greinar um
„skaðsemi anarkistastefnunnar.“67
Hafi Sigfús svarað þessum greinum opinberlega eru þau svör
horfin í glatkistuna. Hann hélt engu að síður áfram að birta greinar
um og eftir anarkista í ritum sínum og það dugði til að koma honum
víða í ónáð. Ólafi Torfasyni í Selkirk hefur verið sérstaklega í nöp við
Sigfús og sakaði hann m.a. um að hafa stundað það að pynta og
drepa grísi í bænum, enda væri það „andi sá, sem sérstaklega ein-
kennir og stjórnar starfsemi Anarkista félagsins“, sem Sigfús á að hafa
stofnað í Selkirk.68 Ritstjóri Heimskringlu varaði lesendur við „fals-
kennendum“ á borð við Sigfús sem vísvitandi bæru á borð blekking-
ar um anarkistastefnuna, sem í raun væri „versta eitur í mannfélag-
inu“, og Sigfúsi var lýst sem „fyrirmynd í öllu sem ilt er.“69
Af þeim takmörkuðu heimildum sem varðveist hafa er ekki
hægt að sjá að Sigfús hafi nokkurn tíma reynt að stofna félagsskap
vilhelm vilhelmsson52
65 Selkirkingur 17. nóvember 1900, bls. 2.
66 Tuttugasta öldin 11. nóvember 1910, bls. 2.
67 Sidney Fine, „Anarchism and the Assassination of McKinley“, bls. 777–799;
„Skaðsemi anarkistastefnunnar“, Heimskringla 19. september 1901, bls. 2;
„Hvað á að gera við anarkistana?“ Lögberg 30. janúar 1902, bls. 4–5.
68 Ólafur Torfason, „Frá Selkirk“, Heimskringla 7. júlí 1904, bls. 3 og 28. júlí 1904,
bls. 3. Svar Sigfúsar er: S. B. Benedictsson, „Ódáðaverkin í Selkirk“, Lögberg 8.
september 1904, bls. 6.
69 „Anarchism“, Heimskringla 31. mars 1904, bls. 2; Lárus Guðmundsson,
„Fyrirmynd í flestu illu: S. B. Benedictsson“, Heimskringla 5. október 1905,
bls. 3.
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:46 Page 52