Saga - 2015, Síða 91
Fyrstu tveir áfangar, ferningurinn milli Bræðraborgarstígs og
Hofs vallagötu, mynda samfellda heild, randbyggð utan um inni -
garð. Íbúðarhæðir eru tvær auk kjallara undir öllu húsinu. Þak er
lágreist með mæni í miðju og jöfnum halla til beggja hliða. Lengjum
er deilt í stigaganga (húsnúmer) þar sem tvær íbúðir eru á hverri
hæð, samtals fjórar íbúðir um hvern stigagang. Íveruherbergi eru
tvö til þrjú og í öllum íbúðum eru eldhús og baðherbergi. Í kjallara
eru þvottahús og þurrkherbergi fyrir hvern stigagang, sérgeymslur
fyrir hverja íbúð og fáein rými sem fylgja tilteknum íbúðum. ein -
kenni fúnksjónalismans eru skýr þótt enn eimi eftir af nýklassískum
stíl einkennum líkt og í vínardæmunum. Í þessu samhengi má t.a.m.
benda á samhverfan gafl, með bogadregnu opi að undirgöngum, á
miðri húsa röð inni sem snýr að Hofsvallagötu, þ.e. þeim áfanga sem
Guðjón áritaði. Mælikvarðinn líkist þó ekki randbyggð í stórborgum
eins og vínarborg heldur miklu fremur sambýlishúsum í Gartenvor -
stadt Gesundbrunnen í Halle. Gluggar fylgja almennt markaðri
sam hverfu og eru skreyttir með deri að ofan og þykkri gluggakistu
að neðan. Innra bera stigar, handrið, frágangslistar og karmar ný -
klassísk einkenni. Í skýrslu Minjasafns Reykjavíkur um verka-
mannabústaðina eru klassísk einkenni ekki talin til vansa og þar eru
allir þrír áfangar sagðir dæmi um snemmbúna nytjastefnu.32 Rand -
bygg ing var í samræmi við skipulagsskilmála og raunar í takt við
ríkj andi skipulagshugmyndir borgaryfirvalda um þessar mundir.
Skipulagsskilmálar virðast þó ekki hafa verið fastir í hendi, ef marka
má auglýsta samkeppnisskilmála þar sem óskað var eftir tillögu-
uppdráttum að sérbyggingum og sambyggingum. Óvíst er hvernig
höfundar samkeppnisgagna hugsuðu sér „sjerstakan blett handa
hverri íbúð“. Það er auðvelt í sérbýli en hér var niðurstaðan afmark -
aður garðhluti fyrir hvern fjögurra íbúða stigagang.
Ágætlega tókst til með fyrstu tvo áfanga. Byggingarfélag alþýðu
uppskar eins og að var stefnt og kaupendur eignuðust íbúðir, sem
hæfðu þörfum þeirra, með viðráðanlegum skilmálum. Húsin voru
vönduð og nýstárleg enda eru þau enn eftirsótt til búsetu rúmum
átta áratugum eftir að þau voru tekin í notkun. Innigarðurinn er
skjólsæll, vel gróinn og ákjósanlegur til útivistar. vel hefði mátt
félagslegar íbúðir og fagurfræðileg sýn 89
32 Páll v. Bjarnason og Drífa kristín Þrastardóttir, „Húsakönnun“, bls. 10. Sjá
einnig texta með einstökum húsnúmerum bls. 22–65, þar sem ekki er gerður
greinarmunur milli áfanga um varðveislumat undir liðunum byggingarlist og
menningarsögulegt gildi.