Saga - 2015, Page 118
Jensen fjallar síðan um birtingarmyndir sögunnar í hversdagslífi,
tungumáli, skóla og vísindum. Raunar er meirihluti bókarinnar
helgaður sagnfræði en þó jafnan í ljósi lífheimsins. Að vísu geta
sagnfræðingar stundað sín fræði í litlum menningarkima en margir
hafa fyrr og síðar hugleitt tengslin milli lífheims og fræðigreinar,
segir Jensen og vitnar þar til Ludvigs Holberg (1735) sem var um -
hugað um tilgang sagnfræði (Historie), sem væri sá að „kenna og
vera spegill þar sem sjá má hið liðna og draga af því lærdóm um það
sem koma skal, læra að þekkja sjálfan sig og jafnframt aðra …“47
Jensen vitnar einnig til Friedrichs Nietzsche og áhyggna hans af
„gagnsemi og vanköntum sagnfræðinnar fyrir lífið“ þegar sagn -
fræð in haslaði sér völl sem vísindagrein á seinni hluta 19. aldar og
hafði tilhneigingu til að einangra sig. Þessar áhyggjur hafa lifað
áfram og Jensen tekur undir þær en vill þó ekki setja sagnfræðinni
einungis hagnýtt hlutverk í þröngum skilningi. Hún getur víkkað
sjóndeildarhring manna með því að vísa út fyrir lífheiminn, auka
forvitni og leikgleði.48
Minningarsjónarhornið sem ráðandi aðferðafræði og stefna hefur
haldið innreið sína í Norðurlönd hin allra síðustu ár og hefur eina
höfuðstöð í Miðstöð um evrópurannsóknir (Centre for euro pean
Studies) við háskólann í Lundi.49 Í fararbroddi eru fræði menn sem
eiga rætur í evrópulöndum þar sem átök og miklar umbreytingar
hafa átt sér stað, einkum eftir lok kalda stríðsins. Talsvert er sótt í
kenningar um tráma og áföll, en kenningaramminn einskorðast þó
ekki við þau því í tengslum við þessa starfsemi hefur verið búið til
tengslanet norrænna fræðimanna um minningarannsóknir, einkum
varðandi evrópufræði.50 Í Danmörku var tengslaneti komið á fót
2011 í samvinnu háskólafólks í Árósum og kaupmannahöfn, „Net -
værk for erindringskultur“ með áherslu á listræna miðla.51
kenningar frumkvöðlanna í minningarfræðum, Maurice Halb -
wachs og Pierre Nora, miðuðust að mestu leyti við takmarkað rými,
þorsteinn helgason116
47 Sama heimild, bls. 359. „… underviise og at være et Speil, hvorudi man af
forbigangne Ting kan se og dømme om tilkommende, lære at kiende sig selv
tillige med andre …“ Tilv. í Ludvig Holberg, Dannemarks Riges Historie.
48 Bernard eric Jensen, Historie — livsverden og fag, bls. 361–362.
49 Centre for european Studies, Lunds universitet http://www.cfe.lu.se/
50 Towards a Common Past. A Nordic Research Network in Memory Studies,
Lunds universitet http://www.cfe.lu.se/o.o.i.s/21447.
51 Netværk for erindringskultur. Aarhus Universitet. http://memory.au.dk/.