Saga - 2015, Qupperneq 136
örlögum. Ég hef undanfarin ár heimsótt söguhetjur mínar, farið í
kirkjugarðana þar sem þær eru jarðsettar og helst einnig svipast um
á heimaslóðum þeirra. Þetta á við um þær konur sem um árabil hafa
leikið lykilhlutverk í rannsóknum mínum, nokkra uppáhaldskarla
einnig, og svo er það Sigríður. Þannig reyni ég að komast nær þessu
fólki, þótt ég viti að nálægðin sé blekking. Návist Sigríðar, þegar ég
les bréfin hennar eða heim sæki staðina hennar, er svolítið eins og
svipur — hún er þarna en þó er ekki hönd á henni festandi, eins og
félagsfræðingurinn Avery F. Gordon ræðir í Gosthly Matters. Þar fjall-
ar hún um svipi og reimleika fortíðar, þó í öðru samhengi en hér er
gert, þ.e. ofbeldisfulla og jafnvel trámatíska fortíð og atburði (s.s.
einræðisstjórnir) sem ganga aftur og hafa á ýmsan hátt áhrif á sam-
félagið án þess að vera endilega sýnilegir, nánast eins og svipir eða
draugar.38 Þótt efnið sé ólíkt getur verið gott að nota þessa hug -
mynd á fortíðina og fólkið sem við eltumst við, það er þarna og þó
ekki.
Ég horfði heim að Hallfreðarstöðum í Hróarstungu, fæðingar -
stað Sigríðar, þegar ég gerði mér ferð um Tunguna fyrir fáeinum
árum, áður en Sigríður varð formlegt rannsóknarefni mitt, og heim-
sótti sóknarkirkju hennar, kirkjubæ. Þá var ég einkum að hugsa um
aðra uppáhaldskonu, Jakobínu Jónsdóttur, sem þar bjó 1849–1853
ásamt foreldrum sínum. Það var faðir Bínu, séra Jón Þorsteinsson frá
Reykjahlíð, sem lét byggja kirkjuna sem enn stendur.39 Síðar hef ég
séð í bréfi Þórunnar, systur Sigríðar, að þar liggja þau öll saman: for-
eldrar þeirra systra, Páll sýslumaður Guðmundsson, Malene Jens -
dóttir, amman Sigríður Örum og ein eða tvær litlar systur.40 og
kannski Þórunn sjálf. Nú stefni ég austur aftur til að finna þetta leiði
og anda að mér sögunni í Hróarstungu, og í vopnafirði líka því
þangað liggja rætur sýslumannsdótturinnar Sigríðar. Í krossavík bjó
afi hennar, sýslumaðurinn Guðmundur Pétursson, forríkur, átti 30
erla hulda halldórsdóttir134
38 Avery Gordon, Ghostly Matters. Haunting and the Sociological Imagination
(Minne apolis: University of Minnesota Press 2008 [1997]).
39 Um Jakobínu má sjá í bók minni Nútímans konum. einnig erla Hulda Halldórs -
dóttir, „Framfaravonir og veruleiki Jakobínu Jónsdóttur“, Kvenna slóðir. Rit til
heiðurs Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi. Ritstj. Anna Agnars dóttir, erla
Hulda Halldórsdóttir, Hallgerður Gísladóttir, Inga Huld Hákonardóttir,
Sigríður Matthíasdóttir og Sigríður k. Þorgrímsdóttir (Reykjavík: kvenna -
sögusafn Íslands 2001) bls. 162–174.
40 Lbs. 2415 b 4to. Þórunn Pálsdóttir til Páls Pálssonar 7. september 1834.