Morgunblaðið - 12.05.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2022
Þó að kosningabaráttan fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar
sé almennt með daufara móti, sem
stafar meðal annars af því að
áherslumunur er ekki nægilega
skýr, sker stöku
framboð sig úr. Í
Kópavogi hafa sjálf-
stæðismenn til að
mynda farið þá at-
hyglisverðu leið að
birta lista með 100
kosningaloforðum
þar sem fyrsta lof-
orðið er að loforðalistinn verði
opinber þannig að kjósendur geti
fylgst með hvernig gengur að efna
hann á kjörtímabilinu.
- - -
Skýr stefna af þessu tagi er gagn-
leg fyrir kjósendur og veitir
kjörnum fulltrúum aðhald. Ekki er
verra að á listanum er ýmislegt
áhugavert, svo sem loforð um að
„lækka fasteignaskatta á íbúa og
fyrirtæki Kópavogs“ auk þess sem
ætlunin er að stilla öðrum álögum í
hóf og leita leiða til að lækka þær.
- - -
Því miður sést ekki mikið af slík-
um loforðum, en þó eru sjálf-
stæðismenn á Seltjarnarnesi einnig
með áform um að lækka skatta.
Þeir ætla að lækka útsvarið, ólíkt
framboðum Viðreisnar, Pírata og
Samfylkingar, auk „óháðra“, sem
hyggjast hækka útsvarið verulega.
- - -
Þá hafa sjálfstæðismenn í
Reykjavík talað fyrir því að
frysta fasteignagjöldin út kjör-
tímabilið, sem er í áttina, en þau
hafa hækkað mikið vegna svimandi
hækkana á fasteignaverði í boði
meirihlutans þar og allar líkur eru
á að sú þróun haldi áfram.
- - -
Landsmenn greiða mjög háa
skatta. Auðvitað eiga fram-
bjóðendur sem ekki eru til vinstri
að bjóða upp á skattalækkanir við
slíkar aðstæður.
Ásdís
Kristjánsdóttir
Háir skattar
þurfa að lækka
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Kosning til kirkjuþings hefst í dag og henni lýkur
17. maí. Kosningin er rafræn. Þeir einir sem
skráðir eru á kjörskrá og hafa aflað sér fullnægj-
andi auðkenningar geta nýtt kosningarétt sinn.
Hægt er að kanna hvort maður er á kjörskrá á vef
þjóðkirkjunnar (https://kirkjan.is/kirkjan/kirkju-
thing/).
Kosið er til kirkjuþings á fjögurra ára fresti. Á
kirkjuþingi eiga sæti 29 fulltrúar, 12 vígðir og 17
leikmenn. Nöfn þeirra sem eru í framboði má sjá á
vef þjóðkirkjunnar. Þrjú kjördæmi vígðra eru á
landinu þ.e. Reykjavíkurkjördæmi, Skálholtskjör-
dæmi og Hólakjördæmi. Kjördæmi leikmanna eru
níu og skiptast eftir prófastsdæmunum.
Kirkjuþingi þjóðkirkjunnar svipar um margt til
Aþingis. Það setur reglur fyrir kirkjuna, ályktar
um hin ýmsu mál, mótar stefnu í málaflokkum sem
varða kirkjuna, fer með fjárstjórnarvaldið og lítur
eftir starfi yfirstjórnar kirkjunnar, að því er segir
á vef þjóðkirkjunnar.
Með nýjum þjóðkirkjulögum, sem tóku gildi 1.
júlí 2021, fékk kirkjuþing almennt æðsta vald í
málefnum þjóðkirkjunnar. gudni@mbl.is
Kosning til kirkjuþings er hafin
- Svipar til Alþingis
- Æðsta vald í kirkjunni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kirkjuþing 2021 Nú er hafin kosning til nýs
kirkjuþings og lýkur henni hinn 17. maí.
Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, við-
skipta- og menningarmálaráð-
herra, veitti í gær Brynjólfi Björns-
syni, kaupmanni í Brynju við
Laugaveg í Reykjavík, viðurkenn-
ingu og bókargjöf fyrir starf sitt og
verslunarrekstur. Brynjólfur, sem
starfað hefur í Brynju frá 1963, er
nú áttræður og hyggst láta staðar
numið og selja reksturinn. Brynja
sem er á Laugavegi 29 var stofnuð
1919, en hefur verið í eigu sömu
fjölskyldu frá árinu 1953. Hefðir og
minni í starfseminni eru því sterk.
Í Brynju fást járn- og byggingar-
vörur ýmiskonar, verkfæri og
fleira slíkt sem og trésmíðavélar.
Búðin er sömuleiðis vel þekkt fyrir
lása, lykla, póstkassa og fleira.
„Mér finnst mikilvægt að þakka
þeim sem hafa veitt mikilvæga
þjónustu og staðið að farsælum
rekstri í áratugi. Þess vegna gerði
ég mér erindi til Brynólfs í Brynju,
í byggingarvöruverslunina sem
lengi hefur verið einn af föstu póst-
unum hér í Reykjavík,“ segir Lilja
Alfreðsdóttir. sbs@mbl.is
Ráðherrann heiðraði
kaupmanninn í Brynju
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heimsókn Brynjólfur kaupmaður og Lilja ráðherra í Brynju í gær.