Andvari - 01.01.2012, Page 149
ANDVARI
DOKAÐ VIÐ EFTIR DICKENS
147
Nú er það út af fyrir sig rétt hjá þýðandanum að Dickens hefur löngum
komið út í styttum gerðum, sem lagaðar eru að yngri lesendum, og þýðing
Sigurðar, sem kom út á vegum barnablaðsins Æskunnar, byggir á slíkum út-
drætti sem hafði birst á ensku. A hinn bóginn má velta því fyrir sér hvers
vegna lesendur eigi að hafa áhuga á að lesa hin langdregnu verk síðar í heild-
arútgáfu áfrummálinu en ekki á sínu eigin máli (auk þess sem hver og einn
lesandi hefur ekki aðgang að mörgum frummálum þegar horft er til heims-
bókmenntanna). Þegar Nicholas Nickleby birtist ellefu árum síðar, 1944, í
þýðingu Haraldar Jóhannssonar og Hannesar Jónssonar, er hið sama uppi á
teningnum. Skáldsagan er stórlega stytt, eiginlega skorin við trog, og í for-
mála segir: „Þótt Charles Dickens sé frábær höfundur, hefur jafnan þótt einn
ljóður á ráði hans. Hann er afar langdreginn. Hann virtist hafa svo nákvæmt
og glöggt auga fyrir því, sem hann var að lýsa, að hann gat alls ekki tak-
markað sig. Hann varð að segja frá öllu því sem hann sá og heyrði á sjónar-
sviði skáldadísarinnar góðu. Þess vegna eru öll verk hans löng og sum þeirra
alls ekki vel aðgengileg fyrir unglinga.“ Fram kemur að þýdd hafi verið stytt
gerð A. F. Jacksons, sem, eins og segir í formálunum, „er talinn einn bezti
endursegjandi Dickens-sagnanna. Hann hefur endursagt útgáfu þá af Nikulási
Nickelby, sem hér birtist og hlotið mikið lof fyrir, bæði í heimalandi sínu og
erlendis.“19
Nokkrum árum áður, 1938, hafði komið út önnur bók eftir Dickens á ís-
lensku, svolítið kver sem nefnist Lífsferill lausnarans - og hafði birst í fyrsta
sinn á ensku fjórum árum áður undir heitinu The Life of Our Lord). Þetta er
sagan af Jesú Kristi, og í þetta sinn var Dickens í hlutverki endursegjandans.
Hann hafði skrifað þessa gerð af sögu Jesú handa börnum sínum en hún var
ekki ætluð til almennrar birtingar. Þessi litla saga undirstrikar vissulega að
þau lífsgildi sem Dickens beitti sér fyrir í verkum sínum eru í samræmi við þá
lífssýn sem hann fann hjá Kristi. Um hann segir Dickens í þessari frásögn að
enginn hafi „lifað hér á jörðu jafn góður og hann, jafn ástríkur og jafn mildur.
Hann aumkvaði þá, sem illa breyttu, fann til með þeim, sem sjúkir voru og
óhamingjusamir.“20 Kverið birtist í íslenskri þýðingu Theodórs Arnasonar og
var endurútgefið fimmtíu árum síðar, 1988.
Ævintýri Olivers og Pickwicks
Þegar horft er um öxl er greinilegt að Charles Dickens hafði, þegar fyrir
miðja síðustu öld, fest í vissum skorðum í íslensku bókmenntalífi og þar
hefur hann setið fastur æ síðan. Snemma var tekið að horfa til hans sem
frásagnarmanns fremur en skáldsagnahöfundar. Sótt var í styttri sögur
hans. Sumar þeirra hentuðu ungum lesendum vel og þar með tekur að mót-