Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2012, Síða 159

Andvari - 01.01.2012, Síða 159
ANDVARI BRAUTRYÐJANDI, ELDHUGI OG TRÚMAÐUR 157 Þórhallur Bjarnarson, þá nývígður biskup, sendi prestum hirðisbréf í árs- byrjun 1909. Þar kvað hann ferðir sínar um landið og bréfaskipti við menn víða um land hafa sannfært sig um að sú skoðun væri víða að festa rætur að þarfleysa væri „að hafa presta og kirkjur, og megi kasta hvorutveggju frá sér sem útslitnum tækjum“.4 Áleit hann að þessi viðhorf mætti rekja til vaxandi skólamenntunar og aukins félagsstarfs. Það voru þó ekki þessi framfararöfl sem slík sem ollu hinni neikvæðu afstöðu að hans mati. Meinið var að kirkjan kunni ekki „mál nútímans".5 Áhugaverðar í þessu sambandi eru og hugleið- ingar „gamals prests“ sem birtust í málgagni Þórhalls biskups, Nýju kirkju- blaði, um svipað leyti. Að mati hans hafði guðrækni og trúariðkun greinilega hrakað meðal almennings miðað við áratugina á undan þótt trú þeirra sem á annað borð tryðu hefði orðið meðvitaðri. Hjá þeim virtist honum komin aukin trúarleg glíma í stað umhugsunarlítillar samsömunar áður.6 Um miðjan annan áratug tuttugustu aldar leituðust Sigurður P. Sívertsen (1868-1938) þá dósent við guðfræðideild hins nýstofnaða Háskóla og Þórhallur Bjarnarson við að lýsa tölfræðilega þeirri þróun sem orðið hafði á guðsþjón- ustuhaldi síðan tekið var að halda saman skýrslum presta þar að lútandi. Niðurstaðan varð að dregið hefði úr messuföllum. Var það skýrt með fækk- un prestakalla er ylli því að sjaldnar væri kallað til guðsþjónustu við hverja kirkju. Biskup leit samt svo á að afturför hefði orðið í guðsþjónustuhaldi og kvað guðsþjónustur vera orðnar stopular, jafnvel í þéttbýlum sveitum.7 Þróun altarisgöngusiðarins hafði orðið stórstígari en breytingarnar í almennu guðs- þjónustuhaldi og kvöldmáltíðargestum hafði stórfækkað. Brá biskup upp þeirri mynd að um 1860-1870 hafi langflestir fermdir einstaklingar neytt kvöldmáltíðar á hinum „stóru altarisdögum“, ekki síst norðanlands. Um 1890 er skýrslugerð hófst hafi veruleg hnignun verið orðin þannig að um þriðji hver fermdur hafi gengið reglulega til altaris en um 1915 hafi varla meira en 10. hver gert það. Þátttaka var misjöfn eftir landshlutum þannig að á Suðurlandi (austanfjalls) hafði um fimmti hver fermdur einstaklingur verið til altaris en rösklega 20. hver á Norðurlandi. Virtist biskupi hlutföllin hafa haldist nokkuð stöðug frá um 1890.8 Við túlkun þessara talna ber að hafa í huga að hefðbund- inn altarisgöngusiður hér á landi einkenndist af festu allt fram á síðari hluta 19. aldar, þ.e. langflestir fermdir einstaklingar gengu til altaris en þó aðeins einu sinni eða hugsanlega tvisvar á ári. Var hér byggt á hefð sem festst hafði í sessi á miðöldum.9 Um aldamótin 1900 var þessi siður sýnilega að leysast upp. Af því sem hér hefur verið sagt er ljóst að ýmsir forystumenn íslensku þjóð- kirkjunnar veltu stöðu hennar meðal þjóðarinnar alvarlega fyrir sér á fyrstu áratugum tuttugustu aldar. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að áhrif hennar færu þverrandi, kirkjur stæðu víða hálftómar, þjóðkirkjuna væri að daga uppi í þjóðlífinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.