Fréttablaðið - 02.12.2022, Síða 6
Bandaríkjamenn eru
furðu hrifnir af pylsum.
Heiðdís Björk
Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Top Iceland
Isavia spáir því að 7,8 millj-
ónir farþega muni fara um
Keflavíkurflugvöll árið 2023.
Ferðamannaspá Isavia gerir
einnig ráð fyrir 2,2 milljónum
ferðamanna sem sækja munu
Ísland heim sama ár og verður
það næststærsta ferðamanna-
ár í sögu landsins.
helgisteinar@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Farþegaspá Kef la-
víkurf lugvallar fyrir árið 2023
var kynnt á fundi Isavia sem fór
fram í Norðurljósasal Hörpu í gær.
Ferðaþjónusta samsvarar nú 24,5
prósentum af heildarútf lutningi
Íslands, eða um 411 milljónum
króna.
Fram kom að íslensk ferðaþjón-
usta skipti miklu máli þar sem sú
atvinnugrein skapar í kringum 40
prósent af öllum erlendum gjald-
eyri fyrir þjóðarbúið. Vöxtur ferða-
þjónustunnar undangenginn áratug
hafi einnig átt stóran þátt í að gera
Seðlabankanum kleift að byggja
upp óskuldsettan gjaldeyrisvara-
forða sem vegur nú um 30 prósent
af landsframleiðslu, miðað við 5
prósent fyrir 2008.
Á fundinum kom einnig fram
að Ísland sé búið að ná til baka 95
prósentum af allri þeirri ferðaþjón-
ustustarfsemi sem landið tapaði í
faraldrinum, miðað við 50 prósenta
endurheimt á alþjóðavísu.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menn-
ingar- og viðskiptaráðherra hóf
fundinn og lagði áherslu á að það
væri einmitt landfræðileg lega
Íslands sem væri uppspretta hag-
vaxtar og velmegunar. Hún vísaði
einnig til þess að Ísland hafi verið
miðstöð bókmennta fyrr á öldum
af sömu ástæðu, og það hvernig
flugfélög nýti legu landsins sé mjög
mikilvægt.
Sveinbjörn Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Isavia, sagði það vera
framtíðarsýn Isavia að tengja heim-
inn gegnum Ísland og að sterk tengsl
séu á milli tengiflugs og hagvaxtar.
Hann tók einnig fram að sjálfbærni
væri stór þáttur í framtíðarstefnu
Isavia.
Sveinbjörn bætti við að mögulegt
sé að f lugfarþegar framtíðarinnar
muni velja sér tengiflugvöll í sam-
ræmi við sjálf bærni, en alþjóðleg
ferðamennska sé ábyrg fyrir rúm-
lega 8 prósentum af allri kolefnislos-
un í heiminum og um helmingur af
þeirri losun kemur frá flugferðum.
Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri viðskipta og
þróunar hjá Isavia, tók einnig til
máls og sagði að 24 flugfélög muni
f ljúga til og frá Íslandi á næsta ári
og að stefnt sé að því að viðhalda 51
heilsársáfangastað frá Keflavíkur-
flugvelli.
Fram kom í máli Lilju Alfreðs-
dóttur að hún teldi mjög ábatasamt
fyrir íslenska ferðaþjónustu að fá
beint f lug frá f leiri áfangastöðum
og minntist þá sérstaklega á lykil-
höfuðborgir Asíulanda.
„Asía hefur alveg gríðarlegan
áhuga á Íslandi. Ég var til dæmis
úti í Suður-Kóreu, þar sem búa 54
milljónir, og eru þeir alveg vitlausir
í norðurljósin og íslenska náttúru.
Þeir eru líka alveg eins og við hvað
varðar menningu. Þannig að ég sé
að það eru mikil tækifæri í að fá fleiri
ferðamenn inn frá Asíu,“ segir Lilja. n
Nærri átta milljónir farþega lenda á
Keflavíkurflugvelli á komandi ári
Ísland er búið
að ná til baka
95 prósentum
af allri þeirri
ferðaþjónustu-
starfsemi sem
landið tapaði
í faraldrinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
JÓLAGJAFA
HANDBÓK
kristinnhaukur@frettabladid.is
VERSLUN Sending af íslenskum pyls-
um var stöðvuð í Bandaríkjunum
vegna þess að þær innihalda svína-
kjöt. Sendingin var frá fyrirtækinu
Top Iceland, sem selur íslensk mat-
væli og sælgæti til útlanda. Hefur
fyrirtækið nú opnað mál hjá banda-
ríska matvælaeftirlitinu.
„Þetta hefur aldrei verið vanda-
mál áður. Við erum að reyna að
vinna í þessu með sendiráðinu í
Washington til að við getum haldið
áfram að gleðja fólkið í Bandaríkj-
unum með pylsum,“ segir Heiðdís
Björk Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Top Iceland, sem er lítið fjölskyldu-
fyrirtæki í Grundarfirði.
Top Iceland selur mest til Banda-
ríkjanna, bæði til Íslendinga þar
og heimamanna. Meðal viðskipta-
vina eru fyrrverandi hermenn af
vellinum í Keflavík sem ánetjuðust
íslensku góðgæti. Einnig Banda-
ríkjamenn sem hafa dvalið hér í
öðrum tilgangi og ferðamenn sem
hafa kynnst íslenskum mat.
„Bandaríkjamenn eru furðu
hrifnir af pylsum,“ segir Heiðdís.
„En þeir eru líka hrifnir af vissu
sælgæti, til dæmis Þristi og Bingó-
kúlum. Þeir kaupa rosa mikið magn
af því nammi.“
Þrátt fyrir vandræði við pylsu-
söluna er nóg að gera hjá Top Ice-
land fyrir jólin. Aðspurð um hver sé
vinsælasta varan um þessar mundir
segir Heiðdís það vera jólaölið sem
og malt og appelsín. „Það er gott að
bæta upp fyrir pylsuleysið,“ segir
hún.
Bandaríkjamenn stöðvuðu pylsusendingu frá Íslandi
Ég sé að það eru mikil
tækifæri í að fá fleiri
ferðamenn frá Asíu.
Lilja Alfreðs-
dóttir, menning-
ar- og viðskipta-
ráðherra
Útlendingar háma í sig íslenskar
pylsur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
bene diktarnar@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Svokallað sjálf-
bærni ráð var kynnt í gær og sam-
starfs vett vanginum Sjálf bært Ís-
land form lega hleypt af stokkunum.
Sjálf bærni ráð á að hraða að-
gerðum til þess að ná þeim mark-
miðum um sjálf bæra þróun sem
birtast í Heims mark miðum Sam-
einuðu þjóðanna og vel sældar -
áherslum ríkis stjórnarinnar.
Eggert Bene dikt Guð munds son
fer fyrir sjálf bærni ráði sem mótar
stefnu um sjálf bæra þróun og
vinnur að því að rétt lát um skipti í
sam fé laginu séu leiðar ljós í stefnu-
mótun og að gerðum.
„Við viljum tryggja það að við
séum að ná árangri á öllum þessum
sviðum, því við höfum alla burði til
þess,“ sagði Katrín Jakobs dóttir for-
sætisráðherra, sem kvað ráðið vera
mjög metnaðarfullt.
Á samt for sætis ráð herra eiga aðrir
ráð herrar ríkis stjórnarinnar, full-
trúar sveitar fé laga, at vinnu greina-
sam taka, launa fólks, þing flokka og
frjálsra fé laga sam taka sæti í ráðinu.
„Fyrsta skref ið í verk efninu
verður að kort leggja stöðuna. Sumt
erum við að gera vel, sér stak lega
þegar kemur að um hverfis málum,
fé lags legum málum og efna hags-
málum, en við þurfum líka að kort-
leggja hvar við þurfum að bæta
okkur,“ sagði Katrín. n
Sjálf bærniráð um
sjálfbæra þróun
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra og formaður sjálfbærniráðs.
4 Fréttir 2. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ