Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 84
sem þau hafa skapað saman.
„Við búum til samverujóladagatal
í desember. Galdurinn í því er að
hafa bara tóm umslög og ákveða
daginn áður, eða jafnvel samdæg-
urs, hver samveran er. Hún getur
verið að baka nokkrar „Evu Lauf-
eyjur“ eða mála tilbúið skraut úr
Tiger. Þótt það taki bara 10 mínútur
þá er þetta samt eftirminnilegt.
Ég fer alltaf í Bíó Paradís á Love
Actually og fyrirgef alla karlremb-
una í henni af því það eru jól,“ segir
Hildur og hlær.
Grét yfir jólamatnum
Jólaminningarnar geta líka verið
spaugilegar og jafnvel grátbros-
legar eins og Hildur ljóstrar upp
í viðtalinu. „Fyrstu jólin okkar
Hreiðars fórum við saman til
Prag. Þetta voru fyrstu jólin mín
án elstu dóttur minnar, sem eyddi
þá jólunum með pabba sínum.
Við Hreiðar borðuðum á fínum
veitingastað á hótelinu, en ég grét
allt kvöldið yfir matnum því ég
saknaði dóttur minnar svo mikið
og fannst hræðilegt að vera án
hennar á sjálfum jólunum. Það litu
allir hornauga á Hreiðar, enda leit
það út fyrir að hann væri að segja
mér upp á sjálfan aðfangadag.“
Þar sem þú ert mikið jólabarn
leikur okkur forvitni að vita hver sé
þinn uppáhaldsjólasveinn?
„Þetta verður ekki vinsælt svar
en það er klárlega þessi ameríski,
hann er glaðlegur og margar
skemmtilegar jólabíómyndir um
hann. Þessir íslensku mættu alveg
horfa meira til hans að mínu mati
og hætta að hræða lítil börn og láta
illa,“ segir Hildur og finnst klárlega
að jólasveinarnir eigi að vera gleði-
gjafar.
Eyðum ofurkonu mýtunni
Hildi finnst mikilvægt að muna
að njóta með ástvinum okkar um
jólin og missa ekki sjónar á því
mikilvægasta og gefa gjöf sem
gleður.
„Gefum okkur breik um jólin,
ég er ekkert sérstaklega að tala
til kynsystra minna. Það getur
engin nútíma kona í fullri vinnu,
með þriðju vaktina á bakinu,
bakað margar sortir af smákökum,
eyðum þessari ofurkonu mýtu. Það
þarf enga jólahreingerningu, bara
setja smá glimmer yfir draslið og
það verður hátíðlegt og fyrir þau
sem eiga þess kost og ráð þá mæli
ég með að kaupa þrif.
Ekki gefa gjafir um efni fram, við
erum öll að gefa fólki sem okkur
þykir vænt um og enginn af þínum
heittelskuðu sem vilja að þú hafir
áhyggjur af næstu mánaðamótum.
Leyfum börnunum okkar að
kaupa gjöf undir tréð í Kringlunni,
reynum að gefa okkur tíma til
þess að vinna í sjálfboðavinnu í
Mæðrastyrksnefnd eða hjálpum
jafnvel einhverjum kærkomnum
sem hefur lítið milli handanna
með innkaup fyrir jólin. Makar,
ekki „hjálpa“ mömmu heldur takið
þátt í jólaundirbúningnum til
jafns á við hana. Brosum og óskum
ókunnugum gleðilegra jóla.
Fyrir þá sem vilja fylgjast með
Hildi er hún á Instagram og hana
má finna hana undir nafninu
Hvassó heima @hvassoheima. n
Hildur Gunn-
laugsdóttir
fagurkeri er
einstaklega
hugmyndrík
þegar kemur að
jólaskreytingum
og fer frumlegar
leiðir þar sem
bæði er hægt að
skreyta og njóta
um leið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Bleiki liturinn
gefur tóninn í
jólaskreytingum
Hildar í ár. Jólt-
rén frá KER eru í
miklu uppáhaldi
hjá Hildi og
gefa þetta lát-
lausa yfirbragð
þar sem hvíti
liturinn tónir
vel við grænt og
bleikt.
Bleiku og hvítu pappírsstjörnurnar
koma vel út og prýða bæði handrið
og glugga. Hildur hefur mjög gaman
af því að föndra og þá njóta sín
hennar listrænu hæfileikar.
Það getur engin
nútíma kona í
fullri vinnu, með þriðju
vaktina á bakinu, bakað
margar sortir af smá-
kökum, eyðum þessari
ofurkonu mýtu.
62 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022