Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 44
Biscotti
130 g smjör við stofuhita
120 g sykur
100 g púðursykur
1 msk. skyndikaffiduft
2 egg
2 msk. Grand marnier/Baileys/
Kahlúa
1 tsk. vanilludropar
300 g hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
2 tsk. kanill
½ tsk. negull (malaður)
100 g möndlur
150 g dökkt toblerone með
möndlum
Það er um að gera að breyta til
með súkkulaði og prufa eitthvað
nýtt eða aðrar hnetur.
Hitið ofninn í 170 gráður. Setjið
bökunarpappír á bökunarplötu.
Hrærið smjör, sykur, púður-
sykur og kaffi saman þar til
blandan verður ljós og létt. Bætið
eggjum saman við, einu í senn og
hrærið vel. Bætið við líkjör sem
varð fyrir valinu ásamt vanillu-
dropunum.
Blandið hveiti, lyftidufti, salti
og kanil saman í skál og blandið
saman við deigið og hrærið
varlega. Grófsaxið möndlur og
súkkulaði og setjið saman við
deigið og hrærið varlega þar til
allt hefur náð að blandast vel
saman.
Setjið hveiti á eldhúsborðið eða
bretti og hnoðið deigið léttilega
svo það festist saman. Skiptið
deiginu í 2 bita og formið hleifa
úr því, um 10 cm á breidd og
setjið á bökunarplötuna.
Bakið í 25 mínútur.
Takið hleifana út úr ofninum
og látið kólna. Skerið hleifana í
um 2 cm þykkar sneiðar og leggið
á plötuna með sárið upp.
Bakið í 10 mínútur.
Snúið kökunum við á hina
hliðina og bakið í aðrar 10
mínútur.
Kælið kökurnar. Kökurnar eiga
að vera stökkar og góðar.
Sumt er þó
alveg
ómissandi
á þessum
árstíma
eins og að
hitta góða
vini, fara út
að borða
góðan mat,
smakka
gott rauð-
vín, hlæja
og
skemmta
sér.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Margrét Eir Hönnudóttir,
leik- og söngkona, hefur
verið á þeytingi á milli
Reykjavíkur og Akureyrar
undanfarið enda fer hún
með eitt aðalhlutverkið í
söngleiknum Chicago sem
Leikfélag Akureyrar setur
upp. Hún gaf sér þó tíma til
að spjalla aðeins um jólin.
„Já, það er mikið að gera. Ég ætla
samt að finna tíma til að skreyta,“
segir Margrét Eir. „Ég mæti á
æfingar á Akureyri þrisvar í viku
þannig að allt það sem ég er vön
að gera á heilli viku færist nú yfir á
tvo daga,“ bætir hún við. Margrét
kennir söng í FÍH en þar styttist í
tónleika hjá nemendum. Einnig
stjórnar hún Kvennakór Kópavogs
sem verður með tónleika fyrir
jólin. „Ég er mikið á æfingum fyrir
alls kyns aðra jólatónleika auk
æfinganna á Akureyri. Síðan er ég
sjálf með jólatónleika í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði 21. desember
sem eru árlega. Það eru hógværir
tónleikar þar sem ég syng jólalög
sem annars heyrast ekki mikið. Til
dæmis írsk þjóðlög sem er búið að
setja íslenskan texta við. Svolítið
öðruvísi stemning,“ segir hún.
Ómissandi á aðventu
„Mér finnst afskaplega gaman
á aðventunni þótt hún sé anna-
söm. Sumt er þó alveg ómissandi
á þessum tíma eins og að hitta
góða vini, fara út að borða góðan
mat, smakka gott rauðvín, hlæja
og skemmta sér. Það er stór partur
af mér að gera eitthvað skemmti-
legt. Við hjónin förum alltaf með
vinahjónum á jólahlaðborð. Við
reynum að gera kröfur í valinu og
prófa nýja staði. Ef við erum extra
ánægð förum við kannski tvisvar
á sama staðinn. Þetta höfum við
gert á hverri aðventu í þrettán ár.
Núna ætlum við að prófa Monkeys.
Þeir eru ekki með týpískt hlað-
borð heldur spennandi rétti,“ segir
Margrét.
Hægelduð hrossalund
Það er ekki mikið um hefðir á
jólunum í fjölskyldu Margrétar.
„Við erum til dæmis ekki með
hamborgarhrygg á aðfangadag.
Brjálæðislega
metnaðarfullur
kokkur
Það eru spennandi tímar fram undan hjá Margréti Eiri sem leikur eitt aðalhlutverkið í söngleiknum Chicago sem
frumsýndur verður á Akureyri í janúar. Fyrst eru það allir jólatónleikarn ir í desember. FRÉTTABLAÐIÐ/
Börn mannsins míns eru upp-
komin og eitt þeirra býr í Dan-
mörku. Við höfum því bara verið
tvö frá því að móðir mín lést fyrir
tveimur árum. Satt að segja eigum
við bara dásamlegar stundir tvö
ein á aðfangadag. Ég hef stundum
verið að syngja á aðfangadag í
Grafarvogi kl. 18 og kem því seint
heim. Aðventan er annasöm
svo það er frábært að eiga rólegt
kvöld. Þótt ég sé búin að undirbúa
veislumatinn, gera sósuna og þess
háttar, er maturinn ekki fyrr en
rúmlega átta. Og pakkarnir eru
ekki teknir upp fyrr en á ellefta
tímanum. Maðurinn minn, Jökull
Jörgensen, er hárskeri og það er
líka mjög mikið að gera hjá honum
í desember svo það er kærkomið
að eiga huggulegt kvöld,“ segir
Margrét.
„Ég er brjálæðislega metn-
aðarfullur kokkur,“ segir Margrét
hlæjandi. „Ég fletti blöðum og
tímaritum í nokkrar vikur fyrir
aðfangadag til að skoða eitthvað
nýtt og spennandi. Ég býst við að
ég verði með hægeldaða hrossa-
lund núna. Ég set hana í kryddlög
og sous vide en síðan fer hún á
útigrillið ef veður leyfir. Þá verð ég
með eitthvað svaðalegt meðlæti,
smjörsteiktar gulrætur, ferskan
aspas. Mig langar mikið að fara út
fyrir þægindarammann núna og
gera eitthvað alveg nýtt meðlæti.
Ég þarf alltaf að vera að breyta til.
Ég er ekkert sérstaklega hrifin af
reyktum mat, fer ekki vel í mig. Það
er samt alltaf gaman að smakka
eina sneið af hangikjöti en það er
nóg,“ segir Margrét og bætir við
að amma hennar hafi alltaf verið
með smjörgraut í forrétt þar sem
mandlan leyndist, en uppskriftina
kom hún með frá Danmörku og
hún hefur fylgt fjölskyldunni.
„Maðurinn minn er ekki hrifinn
af graut og ég var vinsamlegast
beðin að taka hann af matseðl-
inum. Í grautnum er smjör, mjólk,
hveiti, sykur og salt. Við erum hins
vegar með möndluna falda í eftir-
réttinum sem mjög oft er Tiramisu
eða ís. Það er alltaf spenningur
hvort okkar fær möndluna,“ segir
Margrét og skellir upp úr.
Skreyta úti og inni
Þau hjónin eru dugleg að skreyta
fyrir jólin, bæði innan- og utan-
dyra. „Það er svo gaman að skreyta
dásamlega fallega húsið okkar í
Hafnarfirði. Þetta er svo dúllulegt
hús sem hentar einstaklega vel
til að skreyta. Við fluttum í húsið
2018 þannig að við erum alltaf að
bæta við ljósum í garðinn. Ég set
jólaljós í alla glugga og fer nokkrar
ferðir í Garðheima og Blómaval
fyrir jólin til að skoða. Þá geri ég
alltaf fallegan jóla- og aðventu-
krans. Ég er minna í litlum hlutum
eins og jólasveinum og þvíumlíkt.
Það er yndislegt að hafa mikið af
logandi kertum. Þau gera svo fal-
lega stemningu.“
Þótt það hafi verið mikið að
gera hjá Margréti gaf hún sér
afmælisferð til Balí til að endur-
hlaða batteríin. Þar dvaldi hún í
þrjár vikur í haust og sótti meðal
annars jógatíma. „Ég varð fimmtug
1. ágúst og þá er tilefni til að halda
afmæli. Ég hef reyndar ekki enn
haldið upp á það með tónleikum
en ætla að gera það á næsta ári.
Ég gaf hins vegar út plötu á árinu
með hljómsveitinni Thin Jim and
the Castaways en maðurinn minn
er bassaleikari í henni. Eitt sem
mér finnst að maður eigi að gera á
stórum tímamótum í lífinu er að
fara út fyrir rammann og ögra sér
á einhvern hátt. Gera eitthvað sem
mann hefur dreymt um. Mig hefur
lengi dreymt um Balí,“ segir Mar-
grét og bætir við að hún hafi farið
með vinkonu sinni.
Afmælisferð til Balí
„Við sáum auglýsta ævintýra-
ferð til Balí og ákváðum að skella
okkur. Þetta var bæði jóganám-
skeið og alls konar upplifun. Ég féll
fyrir staðnum, fólkið er yndislegt
og trúir á karma. Það er afar þakk-
látt fyrir alls konar smáa hluti í
daglegu lífi. Maður endurnærist í
svona ferð þótt ég hafi verið þreytt
eftir ferðalagið. Mjög margt hugsa
ég enn um og er að melta eftir
þessa ferð. Eyjan er svo ólík öllu
hér heima. Íslensk náttúra gefur
mér alltaf andagift og er innblástur
en Balí var allt annars konar.
Frábær upplifun hinum megin á
hnettinum.“
Biscotti fyrir jólin
Margrét hefur gaman af því að
baka fyrir jólin og gerir alltaf
ítalskar biscotti sem eru afar vin-
sælar með kaffinu á Ítalíu. „Þær eru
alltaf svo góðar. Síðan geri ég alltaf
jólakúlur eða jollakúlur, eins og
maðurinn minn segir, en kökurnar
koma úr hans fjölskyldu. Síðan er
bara að njóta aðventunnar.“ n
22 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022