Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 54
Greta Salóme Stefánsdóttir
eignaðist sitt fyrsta barn á
dögunum. Hún átti ekki von
á því alveg strax en sonur-
inn kom í heiminn fimm
vikum fyrir settan dag. Hún
hefur nú fengið nýtt hlut-
verk fyrir jólin, besta hlut-
verk sem hún getur hugsað
sér. Sjálf er hún mikið jóla-
barn og jólin eru uppáhalds-
tíminn.
sjofn@frettabladid.is
Stærsta jólagjöfin er sonurinn,
nýfædda jólabarnið. Móðurhlut-
verkið tekur nú við sem verður
ný lífsreynsla og jólin fallegri en
nokkru sinni fyrr. Greta Salóme og
maður hennar, Elvar Þór Karlsson,
byggðu hús í Mosfellsbæ í fyrra.
Þau eru búin að vera að undirbúa
fyrstu alvöru jólin í nýja húsinu og
komu sonarins eftir mikla vinnu-
törn hjá Gretu.
„Lífið snýst meira og minna um
tónlist og hefur gert frá því að ég
man eftir mér. Síðustu ár hef ég
verið mikið að spila erlendis og er
búin að vera á samningi hjá Disney
síðan 2015 og er hjá umboðsskrif-
stofu sem er með höfuðstöðvar í
Flórída en hún sér um alla mína
tónleika erlendis. Þar utan er ég
stanslaust að spila hérna heima
og hef undanfarin ár leikstýrt
og framleitt verkefni, leikstýrði
meðal annars Grease tónleika-
sýningunni í Laugardalshöllinni
í lok meðgöngunnar, 29. október.
Dagarnir eru því eins misjafnir og
þeir eru margir og árið 2023 orðið
uppbókað að mestu.“
Greta ætlaði að taka því rólega
á aðventunni og undirbúa komu
jólabarnsins þegar sonurinn mætti
í heiminn nánast fyrirvaralaust.
„Þessi tilfinning, að fá son okkar í
fangið, er ólýsanleg. Ef ég á að draga
það saman þá er það eins og lífinu
sé snúið á hvolf á einni sekúndu og
lífið fái nýjan tilgang. Maður skilur
ekki neitt en um leið skilur maður
allt einhvern veginn,“ segir hún.
Var á námskeiði deginum áður
Greta var búin að ímynda sér
fæðinguna allt öðruvísi en raunin
varð. „Ég átti mjög auðvelda með-
göngu og var að túra erlendis til
25. viku án þess að vera búin að
tilkynna um óléttuna. Ég eiginlega
gleymdi því reglulega að ég væri
barnshafandi og gat falið það mjög
lengi. Fæðingin var hins vegar eitt-
hvað sem ég hræddist mjög mikið
og þurfti að tækla þann ótta með
því að afla mér upplýsinga og vera
búin að fræðast um fæðingar.
Það hjálpaði mikið að þegar
ég fór af stað í fæðinguna hafði
ég verið á fæðingarnámskeiði
deginum áður, ég var í miðjum
hríðum en hélt að ég væri með
fyrirvaraverki. Við áttum ekki
von á honum fyrr en eftir rúm-
lega mánuð og það setti líka strik í
reikninginn að ég trúði ekki að ég
væri komin í virka fæðingu. Þegar
ég svo loksins lét til leiðast að fara
upp á spítala var mér sagt að ég
væri með fimm í útvíkkun og langt
komin í fæðingu. Þá var ég búin að
Besta jólagjöfin
að verða móðir
Greta Salóme er búin að fá stærstu jólagjöfina sem hún getur hugsað sér, soninn sem flýtti sér í heiminn fyrir aðventuna og hún er full tilhlökkunar fyrir jólunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Greta Salóme lagði mikla vinnu í að skreyta jólatréð rétt áður en hún lagðist
inn á fæðingardeildina. Tréð er ákaflega fallega skreytt og sómir sér vel.
vera heima að anda mig í gegnum
verki í 36 tíma ekki vitandi að
þetta væri staðan. Svo þegar kom
að rembingnum var mér sagt að
það tæki sennilegast um klukku-
tíma en hann kom á 12 mínútum.
Bara 8,6 merkur og 43 sentímetrar
en fullkominn. Þetta var því allt
talsvert auðveldara en ég átti von
á þótt þetta séu auðvitað átök.
Svo get ég ekki lofað starfsfólkið á
LSH sem sá um okkur nóg. Þvílíkir
englar í mannsmynd.“
Alltaf mikið að gera á aðventu
Í fyrsta skiptið síðan Greta byrjaði
í tónlistinni ætlaði hún að hafa
það rólegt á aðventunni og bíða
eftir jólabarninu en í stað þess fær
hún að njóta aðventunnar með
syninum. „Jólaundirbúningurinn
hjá mér hefur alltaf endurspeglast
af því að ég hef verið mikið að fram
í desember, spila og syngja úti um
allt.
Ég var búin að gera ráð fyrir að
vera að bíða eftir fæðingunni sem
var áætluð 19. desember og ætlaði
að taka því rólega en mun í staðinn
verja aðventunni í að kynnast syn-
inum og ná mér eftir fæðinguna
þannig að maður geti farið inn í
nýtt ár af krafti, bæði sem tónlist-
arkona og núna móðir. Ég held að
ég gæti ekki verið hamingjusamari
og þakklátari. Fyrst og fremst er
ég þakklát fyrir að hafa fengið
heilbrigt barn í hendurnar. Það er
stærsta jólagjöfin.“
Jólin mikilvægur þáttur
Greta veit ekkert skemmtilegra en
að njóta jólanna. „Ég er svo heppin
að eiga yndislega og mjög sam-
heldna fjölskyldu, jólin hafa alltaf
verið mikilvægur þáttur í okkar lífi
og mikið af hefðum og umstangi í
kringum jólin. Ég er mikil „all in“
manneskja og jólin eru hættu-
lega skemmtilegur tími fyrir týpu
eins og mig. Ég á það til að fara
32 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022