Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 112
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Haraldur Leví Gunnarsson
kýs jólaplötur fram yfir stök
jólalög. Jafn ólíkir flytjendur
og Brunaliðið, Bob Dylan,
Ella Fitzgerald og Sigurður
Guðmundsson & Memfis-
mafían bera ábyrgð á uppá-
haldsjólaplötum hans.
Jólaplötur og jólalög skipta
Harald Leví Gunnarsson, eiganda
Plötubúðarinnar.is, mjög miklu
máli. „Ég kemst eiginlega aldrei
í almennilegan jólagír fyrr en ég
er farinn að setja jólaplöturnar á
fóninn.“ Og tímasetningin þarf
að vera rétt að hans mati. „Fyrsti í
aðventu er rétti tíminn fyrir fyrstu
jólalögin. Það gerist allavega ekki
fyrr hjá mér.“
Ólíkar uppáhaldsplötur
Haraldur er meira fyrir að spila
heilu jólaplöturnar, frekar en að
hlusta á einstök lög. „Uppáhalds
íslensku jólaplöturnar mínar eru
Með eld í hjarta, með Brunaliðinu,
og svo Nú stendur mikið til, með
meistara Sigurði Guðmundssyni
& Memfismafíunni. Í erlendu
deildinni held ég svo mikið upp á
Christmas, með Low, Christmas
In The Heart, með Bob Dylan, og
Pretty Paper, með Willie Nel-
son. Songs For Christmas, með
Sufjan Stevens, er líka ómissandi.
Einnig má nefna It’s A Cool Cool
Christmas frá árinu 2000 sem er
alveg stórkostleg safnplata fyrir
alla indíhausa. Á henni má finna
frábærlega vel heppnuð jólalög
með Dandy Warhols, Eels, Belle
and Sebastian, Flaming Lips og
fleirum.“
Að lokum nefnir hann Ella Wis-
hes You a Swinging Christmas með
Ellu Fitzgerald. „Á þessari plötu er
að finna líklega bestu útgáfu allra
tíma af Sleigh Ride í f lutningi Ellu
Fitzgerald. Algjörlega stórkostleg
jólaplata sem passar fullkomlega
Jólin byrja
með Dylan
Haraldur Leví
Gunnarsson,
eigandi Plötu-
búðarinnar.is,
kemst almenni-
lega í jólagírinn
þegar fyrsta
jólaplatan er
komin á fóninn.
fréttablaðið/
ErNir
Uppáhaldsjólalög Haraldar
Here Comes Santa Claus
Bob Dylan
Þetta er fyrsta lagið á jólaplötu Bob Dylans og
þetta er bara lagið sem byrjar jólin hjá mér.
Just Like Christmas
Low
Þetta er algjörlega stórkostlegt lag. Ég man bara
þegar ég heyrði þetta lag fyrst á It’s A Cool Cool
Christmas safnplötunni og keypti mér jólaplöt-
una með Low í framhaldinu. Þá á geisladisk.
Joy To The World
Sufjan Stevens
Þetta er alveg frábær útgáfa af laginu Joy To The
World. Sufjan setur það í mjög skemmtilegan en
hátíðlegan búning. Jólaplatan hans er fimm-
föld, með 42 lögum, svo það er erfitt að velja
eitthvað eitt uppáhalds en þetta er afskaplega
vel heppnað.
A Night In Christ mas town
Lada Sport
Jólalagið sem við félagarnir í Lödu Sport gáfum
út árið 2006 hefur líka verið í miklu uppáhaldi
hjá mér. Ég hef alltaf verið mjög stoltur af út-
komunni á þessu frumsamda jólalagi okkar.
með hátíðarmatnum hjá mér.
Svo er fullt af f leiri plötum sem
mér finnst ómissandi um hver
jól.“
Baggalútur ómissandi á jólum
Aðventan er annasamasti tími
ársins hjá Haraldi í búðinni en
hann reynir þó að eiga góðar
stundir með fjölskyldunni líka.
„Við fjölskyldan förum til dæmis
á síðustu laugardagstónleika
Baggalúts á hverju ári og það er
alveg klárlega ómissandi þáttur af
jólunum á mínu heimili. Þeir eru
aldrei vonbrigði.“
Haraldur nefnir hér nokkur af
uppáhaldsjólalögunum sínum. n
Jólaplötur með
Low og Ellu Fitzgerald rata á
plötuspilarann öll jól.
elin@frettabladid.is
Þessar fallegu konfektkökur eru
frábærar um jólin en uppskriftin
er einföld. Smákökurnar innihalda
bæði heslihnetur og súkkulaði
og eru vinsælar hjá öllum aldurs-
hópum. Það er því ekki úr vegi að
hafa uppskriftina tvöfalda. Einföld
uppskrift gefur 35-40 kökur.
Konfektkökur
175 g smjör
175 g sykur
1 egg
1 tsk. lyftiduft
200 g hveiti
100 g súkkulaði, má vera suðu-
súkkulaði
75 g heslihnetur
Hitið ofninn í 200°C.
Þeytið smjör og sykur svo úr
verði smjörkrem. Hrærið egginu
saman við og loks hveiti og lyfti-
dufti.
Hakkið súkkulaðið niður í litla
bita og sömuleiðis hneturnar.
Bætið út í deigið og hærið allt
saman með sleif.
Leggið bökunarpappír á ofn-
plötu. Búið til jafnstórar kúlur úr
deiginu og hafið gott bil á milli
þeirra. Um það bil eina teskeið af
deigi fyrir hverja kúlu. Athugið að
kúlurnar stækka við bakstur.
Bakið smákökurnar í miðjum
ofni í um það bil 10 mínútur.
Kökurnar eiga að vera gylltar á
endunum. Kælið áður en kökurnar
eru settar á rist. Látið þær kólna
alveg áður en þær eru settar í köku-
boxið.
Piparkökumúffur
Í þessari uppskrift er aðeins
brugðið út af vananum til að gera
jólalegt bragð. Í þeim eru muldar
piparkökur sem gefa klassískt jóla-
bragð. Ofan á þær má setja glassúr
eða ostakrem og skreyta síðan að
vild. Uppskriftin gefur 8 múffur.
100 g smjör
70 g sykur
70 g púðursykur
2 egg
1 dl mjólk
150 g hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
0,25 tsk. kardi-
mommur
0,25 tsk. negull
15 piparkökur,
hakkaðar
Ostakrem
125 g hreinn rjóma-
ostur
50 g smjör, mjúkt
75 g púðursykur
1 tsk. sítrónusafi
Hitið ofninn í 180°C.
Hrærið smjör og sykur þangað til
blandan verður ljós og létt. Hrærið
einu eggi saman við í einu.
Þá er hveiti, lyftidufti og kryddi
blandað saman við og hrært þar til
deigið verður jafnt og fínt. Loks er
mjólk bætt út í og hökkuðu pipar-
kökunum.
Sett í múffuform og bakað í
miðjum ofni í um það bil 25–35
mínútur.
Smjörkremið
Hrærið saman mjúku smjöri og
púðursykri þar til blandan verður
jöfn og loftmikil. Bætið þá við
mjúkum rjómaosti og sítrónu-
safa. Hrærið þar til
þetta verður
að fallegum
glassúr.
Skreytið eftir
smekk. n
Konfektkökur og piparkökumúffur
Pipar-
kökumúffur
sem eru
skemmtilegar
á kaffiborðið á
aðventunni.
Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar
Heyrnartól
Rafmagnsfiðla
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus míkrafónn
Gítarinn ehf
Söngkerfi
Ukulele
í úrvali
Jólagjafir
Hljómborð í úrvali
Kajun tromma
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
90 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022