Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 34
Íþróttakennarinn Arna
Steinsen ætlar ásamt fjöl-
skyldu sinni að dvelja á
Tenerife um jólin, eins og
þúsundir annarra Íslendinga
en reiknað er með að allt að
fimm þúsund Íslendingar
muni verða á eyjunni vin-
sælu í suðri um hátíðirnar.
gummih@frettabladid.is
Arna fagnar einnig tímamótum
á Tenerife, en þann 27. desember
heldur hún upp á stórafmæli sitt
en þá verður hún 60 ára gömul.
Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem
hún dvelur erlendis um jólin og
segist hún kunna því vel, þótt
henni finnast líka gott að vera á
Fróni og halda jólin heima.
„Ég var alltaf ákveðin í því að
vera ekki heima á sextugsafmæli
mínu en ég hugsa að ég haldi
eitthvað upp á það þegar ég kem
heim,“ segir Arna, sem sest upp í
f lugvélina á leið til Tenerife þann
19. þessa mánaðar. Með henni í för
verður eiginmaðurinn, Magnús
Pálsson, börnin þeirra þrjú,
tengdabörn, barnabarn, móðir
hennar, tengdamóðir og bróðir
Magnúsar, ásamt stórfjölskyldu
hans.
„Okkur finnst mjög ljúft að vera
úti um jólin. Við hjónin vorum
á Ventura-svæðinu í Bandaríkj-
unum ásamt börnunum okkar
þremur árið 2012 þegar ég varð
fimmtug og þá fór ég í raun og veru
í fyrsta skipti almennilega í golf,“
segir Arna, en segja má að hún
hafi smitast af golfbakteríunni í
þessari ferð.
Gott að geta farið núna
„Árið 2018 vorum við erlendis
um jólin ásamt fjölskyldunni
hans Magga og einnig 2019,
en þá með minni fjölskyldu
og fögnuðum þar áttræðisaf-
mæli pabba. Ég veit að Maggi
minn myndi vilja vera
úti um öll jól en ég er
alveg tilbúin að fara út
önnur hver jól. Mér
finnst líka yndislegt
að vera heima um
jólin. Þó svo að við
höfum ákveðið
Ljúft að vera úti um jólin
með löngum fyrirvara að fara í
þessa ferð núna þá finnst mér það
persónulega gott að geta farið, þar
sem pabbi dó í sumar.
Allar hefðir sem maður er
með heima um jólin hefðu verið
öðruvísi eftir andlát hans og fyrir
mömmu að koma með okkur út
er gott. Það væri erfiðara fyrir
hana að vera heima um þessi jól.
Mamma og pabbi ætluðu að koma
út á afmælinu mínu en það breytt-
ist auðvitað þegar hann dó og
mamma verður með okkur allan
tímann,“ segir Arna.
Eru þið að taka með ykkur ein-
hvern jólamat svona til að halda í
venjurnar?
„Við gerðum það í fyrstu
ferðinni. Við tókum þá með okkur
hangikjöt sem ég var með á jóla-
dag en það var öðruvísi þar sem
við vorum í húsi og gátum eldað
í því. Í tveimur síðustu ferðum og
núna gistum við á hóteli og förum
bara út að borða. Í raun og veru
minnir ekkert á jólin þegar maður
er úti. Það eru engir jólapakkar, en
það eina sem við höldum í er að
við förum út að borða klukkan 6 á
aðfangadag og gamlársdag. Það er
ekkert annað sem minnir mann
á jólin. Þetta er öðruvísi en alveg
yndislegt samt,“ segir Arna, sem
telur líklegra en ekki að hún verði
úti á golfvellinum og í sólbaði þess
á milli á aðfangadegi jóla.
„Vissulega er þetta öðruvísi.
Maður heldur að maður sakni alls
heima en þegar út er komið þá er
ekkert verið að spá mikið í það
og sérstaklega þegar öll stórfjöl-
skyldan er saman. Það
er líka gott að kom-
ast úr jólastressinu
á Íslandi. Það eru
fáar jólagjafir sem
ég þarf að kaupa
til að skilja eftir
hér heima. Í eitt
skiptið þegar við
fórum út um jólin þá höfðum við
þann háttinn á að allir drógu hver
ætti að gefa hverjum jólapakka.
Það var gert um miðjan desember
og við áttum að kaupa jólagjöf
að andvirði 5 þúsund krónur.
Á aðfangadag mynduðum við
svo hring saman úti á svölum og
pökkunum var dreift á milli. Það
var mjög skemmtilegt. Við vitum
hvernig krakkar upplifa jólin.
Þau verða rugluð í hausnum yfir
pakkaflóðinu hér heima. Þarna
fengu þau einn pakka og þeim
fannst það æðislegt,“ segir Arna,
sem skilur heimili sitt eftir vel
skreytt áður en þau hjónin halda
utan.
„Ég myndi segja að ég skreyti
svona upp á 80 prósent. Það
verður ekkert jólatré þetta árið en
jólaseríur og jólaljós. Ég vil njóta
aðventunnar. Við förum ekki út
fyrr en 19. desember og mér finnst
það tilheyra að skreyta heimilið
vel á aðventunni,“ segir Arna og
bætir því við að Maggi hennar
væri alveg til í að sleppa því að
skreyta.
Arna segir að fyrir löngu sé
búið að skipuleggja afmælis-
daginn. „Það er búið að panta á
veitingastað á f lottum stað á La
Caleta-ströndinni. Við borðuðum
á þessum stað í febrúar ásamt
foreldrum mínum. Þetta er yndis-
legur staður úti á verönd og mér
finnst tilvalið að fara aftur á hann
á afmælisdaginn. Þetta verður
góð ferð og maður kemur vel
úthvíldur, búinn að spila mikið
golf, borða góðan mat, drekka góð
vín og njóta lífsins.“ n
Arna og
Magnús klár með
ferðatöskurnar áður
en þau halda með
stórfjölskyldunni til
Tenerife.
Upplýsingar og pantanir:
Ostahusid.is
ostahusid@ostahusid.is
565-3940
Úrval af girnilegum ostakörfum og öskjum
sem kalla fram sælkerabros yfir jólin
Sælkerajól
12 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022