Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 100
María prinsessa
Þessi kokteill er byggður á upp-
skrift frá 1917. „Þetta er tilbrigði
við Alexander, einn vinsælasta
eftirréttakokteil allra tíma,
og inniheldur Marberg gin og
súkkulaðilíkjör en enga eggja-
hvítu eins og originalinn.
30 ml Marberg Barrel Aged Gin
30 ml Tobago Gold Chocolate
Rum Cream (fæst í Vínbúð)
30 ml rjómi
Allt hrist vel með klaka.
Klakinn er svo sigtaður frá og
drykkurinn hristur aftur án
klaka og borinn fram í coupe
glasi með röspuðum kanil
yfir.
Mér finnst líka
fásinna að sækja
vatnið yfir lækinn. Ef
það sem er við hliðina á
þér er nógu gott, þá þarf
ekki að leita lengra.
Andri Davíð Pétursson hefur
lifað og hrærst í barþjóna-
bransanum frá því árið 2005
og sérhæft sig í kokteilagerð
síðan 2010. Hér deilir hann
tveimur uppskriftum að
hátíðlegum jólakokteilum
þar sem íslensk hráefni fá að
njóta sín.
jme@frettabladid.is
Andri hefur tekið þátt og hlotið
gott gengi í fjölda keppna og gaf út
kokteilabók fyrir síðustu jól sem
nefnist Heimabarinn. „Þetta er
eins konar heimabarþjónabiblía
með ýmsum kokteilauppskriftum,
uppskriftum að sýrópi, fróðleik
um ýmis sterk vín og fleira til þess
að gera bragðgóða kokteila með
góðu jafnvægi. Þess má geta að
bókin seldist upp og fer í endur-
prentun núna fyrir þessi jól,“ segir
Andri. Áhugasömum er bent á að
fylgja Andra á instagram, @thevi-
ceman.
Leitar í náttúruna
Barþjónastíll Andra er frábrugðinn
því sem gengur og gerist. „Ég fylgi
ekki trendum í kokteilgerðinni
heldur fer mínar eigin leiðir og
leita í íslenska náttúru og fram-
leiðslu. Mér þykir spennandi að
taka íslenskar hefðir og setja í
nýjan búning í drykkjarformi og er
einn af þeim sem fer út í náttúruna
á sumrin til að tína jurtir. Hér má
finna ýmislegt sem gaman er að
leika sér með eins og blóðberg, ker-
fil, ilmreyr og fleira. Ég er orðinn
það vel að mér í þessu að kollegar
mínir leita til mín ef þeir eru með
spurningar um notkun íslenskra
jurta. Ég er líka mikið náttúrubarn
og sveitamaður inn við beinið.
Það er því ákveðinn flótti frá eril-
sömum bransa fyrir mig að komast
út í náttúruna. Það veitir mér ró og
nærir sköpunargleðina í mér.
Mér finnst líka fásinna að sækja
vatnið yfir lækinn. Mitt mottó er
að ef það sem er við hliðina á þér
er nógu gott, þá þarf ekki að leita
lengra. Ég er mjög hrifinn af því
sem íslenskir sterkvínsframleið-
endur, sem eru meðlimir í Samtök-
um íslenskra eimingahúsa, eru að
gera. Það sem skilgreinir íslenska
framleiðslu í þessum geira er raun-
verulega að finna innan þeirra
veggja. Margir hverjir, eins og Birgir
hjá Þoran Distillery og Snorri hjá
Reykjavík Distillery, nota íslenskar
jurtir og hráefni í sína framleiðslu
sem passar mjög vel við það sem
ég er að gera. Bláberjalíkjörinn frá
Rvk Distillery er til dæmis mjög
jólalegur og Marberg gin frá Þoran
er mjög skemmtileg tilbreyting frá
erlenda gininu.“
Hanastél náttúrubarnsins
Birgir Sigurðsson hjá Þoran distillery (t.v.) og Andri Davíð (t.h.) gæða sér á heitu og seyðandi ginglöggi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Marberg jólaglögg
Hinn kokteillinn er meira eins
og glögg og er borinn fram
heitur. Í hann nota ég sitt hvort
ginið frá Þoran distillery, svart
te, engifersýróp og sítrónusafa.
Þennan er hægt að skala upp og
búa til heilan pott. Svo má bara
halda þessu heitu allt kvöldið
í potti.
40 ml Marberg Dry gin
100 ml sterkt, svart te
20 ml engifer sýróp*
safi úr hálfu lime
kanilstangir eftir smekk
Engifer sýróp
Látið vatn og sykur í jöfnum
hlutföllum, ásamt stórum bita
af engifer, sjóða á lágum hita í
30 mínútur. Sigtið engifer frá og
setjið sýrópið í f lösku.
Hvað finnst þér vanta á íslensk-
an áfengismarkað?
„Ég vil meira brennivín. Brenni-
vínið er okkar hefðbundna
sterkvín sem við megum alveg
vera stoltari af og það má leika sér
meira með það. Frakkarnir eru
með koníakið sitt og Mexíkóar
Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til
styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi.
Íslenskt handverk. Fæst um land allt.
Þríkrossinn
Stuðningur til sjálfstæðis
blóðgjafirnar á árinu
Verslun Guðlaugs A Magnússonar
Skólavörðustíg 10
101 Reykjavík
sími 562 5222
www.gam.is
Jólaskeiðin 2022
síðan 1946
eiga tekíla, en einhvern veginn
gerum við alltaf lítið úr íslenska
brennivíninu, sem mér finnst
miður.“
Þarf alltaf að vera vín?
„Bragðsamsetning skiptir mig
mestu máli í kokteilgerðinni. Það
skiptir minna máli hvort drykkur-
inn sé áfengur eða óáfengur.
Aðalatriðið er að para saman
brögð sem eru áhugaverð og að
drykkurinn sé í jafnvægi.“
Andri segist ekki eiga sérstakan
uppáhaldsjólakokteil en hann
býður oft upp á kokteila yfir
hátíðirnar og önnur tilefni. „Ég
er meiri kokteilgerðarmaður en
kokteildrykkjumaður. Þetta er
skapandi handverk fyrir mér og ég
hef gaman af því að sjá viðbrögð
fólks þegar það smakkar eitthvað
sem það hefur ekki fengið áður.
Oft vefst kokteilgerð fyrir fólki
en hún þarf ekki að vera flókin.
Ef fólk horfir í einfaldleikann og
vinnur með brögð sem því þykir
góð og jólaleg, þá færðu í raun
besta jólakokteilinn fyrir þig.“
Tveir jólalegir
Andri hefur sett saman tvær girni-
legar uppskriftir af hátíðlegum
kokteilum sem gaman er að gæða
sér á um jólin, í aðdraganda þeirra,
eða bara hvenær sem er. n
78 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022