Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 100

Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 100
María prinsessa Þessi kokteill er byggður á upp- skrift frá 1917. „Þetta er tilbrigði við Alexander, einn vinsælasta eftirréttakokteil allra tíma, og inniheldur Marberg gin og súkkulaðilíkjör en enga eggja- hvítu eins og originalinn. 30 ml Marberg Barrel Aged Gin 30 ml Tobago Gold Chocolate Rum Cream (fæst í Vínbúð) 30 ml rjómi Allt hrist vel með klaka. Klakinn er svo sigtaður frá og drykkurinn hristur aftur án klaka og borinn fram í coupe glasi með röspuðum kanil yfir. Mér finnst líka fásinna að sækja vatnið yfir lækinn. Ef það sem er við hliðina á þér er nógu gott, þá þarf ekki að leita lengra. Andri Davíð Pétursson hefur lifað og hrærst í barþjóna- bransanum frá því árið 2005 og sérhæft sig í kokteilagerð síðan 2010. Hér deilir hann tveimur uppskriftum að hátíðlegum jólakokteilum þar sem íslensk hráefni fá að njóta sín. jme@frettabladid.is Andri hefur tekið þátt og hlotið gott gengi í fjölda keppna og gaf út kokteilabók fyrir síðustu jól sem nefnist Heimabarinn. „Þetta er eins konar heimabarþjónabiblía með ýmsum kokteilauppskriftum, uppskriftum að sýrópi, fróðleik um ýmis sterk vín og fleira til þess að gera bragðgóða kokteila með góðu jafnvægi. Þess má geta að bókin seldist upp og fer í endur- prentun núna fyrir þessi jól,“ segir Andri. Áhugasömum er bent á að fylgja Andra á instagram, @thevi- ceman. Leitar í náttúruna Barþjónastíll Andra er frábrugðinn því sem gengur og gerist. „Ég fylgi ekki trendum í kokteilgerðinni heldur fer mínar eigin leiðir og leita í íslenska náttúru og fram- leiðslu. Mér þykir spennandi að taka íslenskar hefðir og setja í nýjan búning í drykkjarformi og er einn af þeim sem fer út í náttúruna á sumrin til að tína jurtir. Hér má finna ýmislegt sem gaman er að leika sér með eins og blóðberg, ker- fil, ilmreyr og fleira. Ég er orðinn það vel að mér í þessu að kollegar mínir leita til mín ef þeir eru með spurningar um notkun íslenskra jurta. Ég er líka mikið náttúrubarn og sveitamaður inn við beinið. Það er því ákveðinn flótti frá eril- sömum bransa fyrir mig að komast út í náttúruna. Það veitir mér ró og nærir sköpunargleðina í mér. Mér finnst líka fásinna að sækja vatnið yfir lækinn. Mitt mottó er að ef það sem er við hliðina á þér er nógu gott, þá þarf ekki að leita lengra. Ég er mjög hrifinn af því sem íslenskir sterkvínsframleið- endur, sem eru meðlimir í Samtök- um íslenskra eimingahúsa, eru að gera. Það sem skilgreinir íslenska framleiðslu í þessum geira er raun- verulega að finna innan þeirra veggja. Margir hverjir, eins og Birgir hjá Þoran Distillery og Snorri hjá Reykjavík Distillery, nota íslenskar jurtir og hráefni í sína framleiðslu sem passar mjög vel við það sem ég er að gera. Bláberjalíkjörinn frá Rvk Distillery er til dæmis mjög jólalegur og Marberg gin frá Þoran er mjög skemmtileg tilbreyting frá erlenda gininu.“ Hanastél náttúrubarnsins Birgir Sigurðsson hjá Þoran distillery (t.v.) og Andri Davíð (t.h.) gæða sér á heitu og seyðandi ginglöggi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Marberg jólaglögg Hinn kokteillinn er meira eins og glögg og er borinn fram heitur. Í hann nota ég sitt hvort ginið frá Þoran distillery, svart te, engifersýróp og sítrónusafa. Þennan er hægt að skala upp og búa til heilan pott. Svo má bara halda þessu heitu allt kvöldið í potti. 40 ml Marberg Dry gin 100 ml sterkt, svart te 20 ml engifer sýróp* safi úr hálfu lime kanilstangir eftir smekk Engifer sýróp Látið vatn og sykur í jöfnum hlutföllum, ásamt stórum bita af engifer, sjóða á lágum hita í 30 mínútur. Sigtið engifer frá og setjið sýrópið í f lösku. Hvað finnst þér vanta á íslensk- an áfengismarkað? „Ég vil meira brennivín. Brenni- vínið er okkar hefðbundna sterkvín sem við megum alveg vera stoltari af og það má leika sér meira með það. Frakkarnir eru með koníakið sitt og Mexíkóar Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis blóðgjafirnar á árinu Verslun Guðlaugs A Magnússonar Skólavörðustíg 10 101 Reykjavík sími 562 5222 www.gam.is Jólaskeiðin 2022 síðan 1946 eiga tekíla, en einhvern veginn gerum við alltaf lítið úr íslenska brennivíninu, sem mér finnst miður.“ Þarf alltaf að vera vín? „Bragðsamsetning skiptir mig mestu máli í kokteilgerðinni. Það skiptir minna máli hvort drykkur- inn sé áfengur eða óáfengur. Aðalatriðið er að para saman brögð sem eru áhugaverð og að drykkurinn sé í jafnvægi.“ Andri segist ekki eiga sérstakan uppáhaldsjólakokteil en hann býður oft upp á kokteila yfir hátíðirnar og önnur tilefni. „Ég er meiri kokteilgerðarmaður en kokteildrykkjumaður. Þetta er skapandi handverk fyrir mér og ég hef gaman af því að sjá viðbrögð fólks þegar það smakkar eitthvað sem það hefur ekki fengið áður. Oft vefst kokteilgerð fyrir fólki en hún þarf ekki að vera flókin. Ef fólk horfir í einfaldleikann og vinnur með brögð sem því þykir góð og jólaleg, þá færðu í raun besta jólakokteilinn fyrir þig.“ Tveir jólalegir Andri hefur sett saman tvær girni- legar uppskriftir af hátíðlegum kokteilum sem gaman er að gæða sér á um jólin, í aðdraganda þeirra, eða bara hvenær sem er. n 78 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.