Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 86
Skoðaðu úrval gjafabréfa á vefsíðu Laugarvatn Fontana
Upplifðu vellíðan, frábær tengsl við náttúru og stórfenglegt umhverfi.
Gjafabréf í Laugarvatn Fontana er tilvalin jólagjöf.
Í Skandinavíu er pörusteik
algengur matur á aðventu
eða um jólin. Hér á landi er
yfirleitt alltaf boðið upp á
pörusteik á jólahlaðborði
enda eru Íslendingar einnig
hrifnir af steikinni.
elin@frettabladid.is
Þegar reikna skal magn er almennt
mælt með 300 g af pörusteik á
mann. Ef það verður afgangur er
kjötið mjög gott kalt með brauði.
Pörusteik
Miðað er við sex manns
2 kg pörusteik
3 tsk. salt
2 tsk. pipar
2 dl vatn
Skerið raufar þversum í pöruna.
Gætið að því að skera ekki ofan í
kjötið. Sumum finnst gott að setja
negulnagla og lárviðarlauf í sárin
en það er smekksatriði. Nuddið
salti vel inn í pöruna og piprið.
Pakkið í álpappír og látið bíða í
ísskáp í tvo til þrjá daga.
Leggið kjötið í ofnskúffu með
pöruna upp. Gott að hafa grind
undir kjötinu. Setjið vatn í botninn.
Hitið ofninn í 230°C. Setjið
formið í miðjan ofninn og eldið í
45-60 mínútur. Lækkið þá hitann
niður í 200°C og eldið áfram í einn
til einn og hálfan tíma. Bætið smá-
vegis vatni í botninn. Látið kjötið
hvíla í 20 mínútur áður en það er
skorið niður.
Pörusteikin er alltaf vinsæl um jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Panna cotta er bæði góður réttur og fallegur.
Jólgjafir til barna óskast
jme@frettabladid.is
Það þarf ekki að vera kvöð að
borða hollt yfir hátíðirnar þó svo
mann langi kannski helst í pipar-
kökur í morgunmat. Hér er ein
skemmtileg tilbreyting við nætur-
hafragrautinn með piparköku-
bragði sem mun koma flestum í
gott jólaskap í desember.
Piparkökugrautur
1 dl mjólk að eigin vali
1 dl tröllahafrar
½ dl grísk jógúrt
1 msk. púðursykur
1 msk. hörfræjamjöl
1 msk. mólassi
½ tsk. vanilludropar
¼ tsk. kanill
¼ tsk. malaður engifer
¼ tsk. salt
smáklípa af múskati
smáklípa af möluðum negul
smáklípa af allspice
3 msk. rúsínur (ef vill)
3 msk. kurlaðar valhnetur
Blandaðu öllu, nema valhnetum,
saman og kældu í ísskáp í 8 klst.
eða yfir nótt. Best er að geyma
að setja valhneturnar út í þar til
hafragrauturinn er borðaður, svo
þær séu enn stökkar. Rúsínurnar
má líka geyma þar til grauturinn
er borðaður ef mjúkar rúsínur
heilla ekki. Einnig er gott að bera
grautinn fram með eplabitum. n
Jólagrauturinn þarf ekki að vera í
desert. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Oft verður paran stökk af sjálfu
sér, en ef ekki er hægt að hækka
hitann í lokin og færa kjötið hærra
í ofninn. Vel skal fylgjast með
þessu ferli svo paran brenni ekki.
Pörusteik er gjarnan borin fram
með sykurbrúnuðum kartöflum,
rauðkáli, baunum, eplum og góðri
sósu sem er gerð úr soðinu af
kjötinu.
Frábær eftirréttur
Panna cotta er vinsæll ítalskur
eftirréttur. Réttinn er hægt að
bragðbæta með karamellu eða
kirsuberjum eftir smekk. Oft
er hann líka borinn fram með
hindberjasósu, rétt eins og Ris a la
mande.
Panna cotta
4,5 matarlímsblað
1 vanillustöng
7,5 dl rjómi
1,5 dl sykur
Hindberjasósa
1 poki frosin hindber
100 g sykur
2 msk. sítrónusafi
Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn
í 5 mínútur. Skolið vel og kreistið.
Kljúfið vanillustöngina og skafið
fræin úr.
Sjóðið varlega upp mjólk, sykur,
vanillustöng og -fræ. Takið af
hitanum, takið vanillustöngina úr
og hrærið matarlíminu saman við
rjómann.
Hellið blöndunni í sex litlar
skálar og kælið í að minnsta kosti
3 tíma. Panna cotta er hægt að gera
deginum áður.
Setjið berin, sykurinn og
sítrónusafa í matvinnsluvél og
hrærið þar til blandan verður jöfn
og fín. n
Gott jólabragð í morgunsárið
gummiih@frettabladid.is
Hjálpræðisher-
inn í Reykjavík
óskar eftir gjöfum
til barna sem leita
til félagasamtakanna.
Hjálpræðisherinn vill
einfalda gjafaferlið og
óskar eftir því að fólk gefi
gjafir í gjafapoka og merki
þá kyni og aldri. Aldurinn
er 0-3 ára, 3-6 ára, 7-10 ára,
11-14 ára og 15-18 ára. Í
hverjum gjafapoka þarf að
vera tannbursti, tannkrem
og til dæmis sjampó eða
sápa og/eða aðrar hrein-
lætisvörur sem passa aldri
þess sem fær,
leikfang, húfa,
vettlingar, hlýir
sokkar, sælgæti
og litabók, litir
og spil. Óskað er
eftir því að gjöfunum
sé ekki pakkað inn
heldur settar í opinn
gjafapakka merktan
kyni og aldri barna.
Einnig má hafa gjafirnar
hlutlausar.
Hjálpræðisherinn
tekur á móti gjöfum
frá og með deginum
í dag til 15. desember á
opnunartíma Kastalakaffis,
Suðurlandsbraut 72. n
Pörusteik
og panna cotta
64 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022