Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 20
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Rúmföt frá okkur eru hin
fullkomna jólagjöf því þau eru
eitthvað sem allir geta notað, en
dettur kannski ekki í hug að kaupa
handa sjálfum sér. Við heyrum
sögur frá viðskiptavinum okkar
sem hafa gefið börnunum sínum
rúmföt frá okkur í jólagjöf og núna
vilja þau fá fleiri. Það eru svona
sögur sem ylja okkur um hjarta-
stöðina og fá okkur til að gera enn
betur. Við erum nefnilega alltaf að
bæta vöruúrvalið og gera búðina
okkar skemmtilegri,“ segir Hildur.
Hildur Þórðardóttir, verslunar-
stjóri hjá Rúmföt.is, segir að versl-
unin hafi tekið miklum stakka-
skiptum eftir að hún hóf störf hjá
fyrirtækinu. „Þetta hefur undið
heilmikið upp á sig. Fyrir fjórum
árum fluttum við hingað á Nýbýla-
veginn og þetta eru önnur jólin
síðan við stækkuðum verslunina
um meira en helming og bættum
þá heilmiklu við vöruúrvalið,“
segir Hildur. „Fagmennska er það
sem við viljum standa fyrir. Við
erum eina sérverslunin á landinu
sem sérhæfir sig í rúmfötum og
veitum þjónustu í samræmi við
það,“ bætir hún við.
Þýskar lúxus-dúnsængur
„Við erum sérstaklega stolt að geta
boðið upp á sennilega flottustu
sængur í heimi sem ekki kosta
bílverð, frá þýska fjölskyldu-
fyrirtækinu OBB. Fyrirtækið var
stofnað árið 1900 og er í dag eitt
fárra sem eru með alla fram-
leiðslulínuna innanhúss. Flestir
sængurframleiðendur í Þýskalandi
kaupa dúninn tilbúinn til að setja
í sængina. OBB er hins vegar með
tækjakost til að bæði hreinsa/
flokka dúninn og blanda honum
saman í hvaða hlutföllum sem
er. Við heimsóttum fyrirtækið í
fyrsta skipti núna í sumar og var
það alveg ógleymanlegt. Við látum
framleiða fyrir okkur 100% dún-
sængur úr Kanadagæsadúni sem
er a.m.k. 850 CUIN. Venjulegar
gæsadúnsængur sem margar búðir
selja á Íslandi eru 450-650 CUIN.
En þessi CUIN tala mælir einangr-
unargildið eða hversu loftkenndur
dúnninn er. Sæng með háu CUIN
gildi er því bæði léttari og hlýrri en
jafnþung sæng með lægra gildi.“
Gámur á dag kemur skapinu í lag
Björn Þór Heiðdal, eigandi Rúmföt.
is, segist vera með ólæknandi rúm-
fatadellu og elskar að sofa undir
mjúkum rúmfötum. Til að svala
þessari dellu sinni hefur hann
heimsótt sýningar úti um allan
heim og fengið prufur frá hundr-
uðum vefara af öllum stærðum
og gerðum. „Heimtextil er stærsta
textílsýning í heimi og er haldin
í Frankfurt. Þarna koma saman
mörg þúsund fyrirtæki til að sýna
framleiðslu sína.
Ég er búinn að heimsækja
sýninguna fimm sinnum og er
alltaf að rekast á eitthvað nýtt og
spennandi. Fyrsta daginn á fyrstu
sýningunni sem ég heimsótti
fattaði ég hvað Ísland er pínulítið.
Ég var í Asíu-hlutanum þegar ein-
hver vel skeggjaður herramaður frá
Pakistan tók mig á eintal og spurði
hversu marga gáma á mánuði ég
væri líklegur til að panta. Ég horfði
einlægur í augun á honum og
sagði: „Gámur á dag kemur skapinu
í lag, en fyrst þyrfti ég að opna
búð,“ sem ég gerði stuttu síðar.“
300, 600 og 900 þráða satín
„Okkar vinsælustu rúmföt eru úr
hágæða 300 og 600 þráða áprent-
uðu satíni. Við látum framleiða
þessi rúmföt fyrir okkur í Kína úr
langþráða bómull í verksmiðju
sem er ein sú fullkomnasta í
heimi. Reyndar eru þetta nokkrar
verksmiðjur sem við skiptum við.
Ein vefur 300 og 600 þráða efnin,
Magga saumar
dýrindis rúmföt
úr silkidamaski
og satíni frá
Ítalíu. MYNDIR/
AÐSENDAR
Okkar vinsælustu rúmföt eru úr hágæða 300 og 600 þráða áprentuðu satíni
og eru framleidd í Kína. Rúmfötin fást í ýmsum litum eða með áprentuðu
mynstri.
600 þráða satín og silkidamask rúmfötin sem Magga saumar fyrir verslunina
rjúka út eins og heitar lummur fyrir jólin.
Einfaldasta leiðin til þess að fríkka upp á svefnherbergið er að klæða rúmið
með fallegum rúmfötum í heillandi litum og mynstrum.
Góður koddi getur gert kraftaverk og er tilvalinn í jólapakkann.
Við erum eina
sérverslunin á
landinu sem sérhæfir sig
í rúmfötum og veitum
þjónustu í samræmi við
það.
Hildur Þórðardóttir
önnur vefur 900 þráða satínið og
síðan er verksmiðja sem sérhæfir
sig í að prenta á rúmfötin. Svo er ég
með Kínverja í vinnu sem heldur
utan um þetta allt saman og sér
um samskipti við þessa aðila.
300 þráða bómullarsatínið
okkar er mjög vandað efni og til
með mörgum mynstrum. 600
þráða rúmfötin eru síðan enn betri
og líka til einlit í nokkrum litum.
Grá rúmföt eru vinsæl en við
eigum líka sinnepsgul og pipar-
myntugræn fyrir fólk sem þorir. Ég
er samt persónulega hrifnastur af
900 þráða rúmfötunum okkar. Þau
eru alveg meiri háttar. Ef fólk vill
eitthvað verulega mjúkt og kósí þá
eru þau málið.
Mér skilst að Rúmföt.is sé eina
búðin í Evrópu sem selur rúmföt úr
þessu efni. Þetta er nefnilega ætlað
fyrir kínverska milljarðamæringa
í Hong Kong með alveg óraunveru-
legar kröfur um áferð og mýkt.“
Lúxus í bresku höllinni
„Við bjóðum líka upp á rúmföt frá
allra flottustu og vönduðustu vef-
urum Ítalíu. Meðal annars erum
við með rúmföt frá ítalska vefar-
anum Quagliotti sem vefur dúka
og sængurföt fyrir bresku hirðina.
Fyrir rúmum fjórtán árum ákvað
Hotel Ritz í París að bjóða gestum
sínum upp á rúmföt frá Quag-
liotti eftir ítarlega leit að bestu
rúmfötum í heimi. Ég hef það líka
eftir áreiðanlegum heimildum að
þegar Karl og Camilla giftu sig, hafi
Quagliotti saumað rúmföt fyrir
brúðkaupsnóttina. Oftast eru rúm-
fötin sérstaklega ofin fyrir hvern
viðskiptavin eftir óskum hans.
Við skiptum líka við aðra ítalska
verksmiðju sem er stærri og hefur
útvegað okkur ótrúlega flott satín
og silkidamask efni sem Magga
saumakona saumar síðan úr eins
og henni einni er lagið. Því miður
er Magga bara með tvær hendur og
annar ekki eftirspurn. Við höfum
því flutt inn tilbúin rúmföt úr sömu
efnum beint frá saumastofu á Ítalíu.
Ég held að það sé engin önnur búð á
Íslandi að selja svona flott lúx-
usrúmföt frá Ítalíu,“ segir Björn Þór
Heiðdal, eigandi verslunarinnar.
Góður svefn í jólagjöf
„Ekki má heldur gleyma kodd-
unum sem við seljum og silki-
koddaverum sem eru alltaf vinsæl
í jólagjafir. Góður svefn er gulli
betri og það að gefa í jólagjöf eitt-
hvað sem stuðlar að betri svefni,
er ein hugulsamasta jólagjöf sem
ég get hugsað mér,“ segir Björn að
lokum. n
Rúmföt.is verslun er staðsett
að Nýbýlavegi 28. Búðin er opin
milli 12-17.30 virka daga og 11-15
laugardaga. Sími: 565-1025. Vef-
verslunin rumfot.is er opin allan
sólarhringinn.
2 kynningarblað A L LT 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR